
Innanríkisráðherra Þýskalands, sósíaldemókratinn Nancy Faeser, braut lögin, þegar hún bannaði stærsta valkostamiðil Þýskalands, Compact og lét loka miðlinum.
Stjórnlagadómstóll Þýskalands kvað upp þann úrskurð í dag.
Lýðræðissinnar fagna dómnum. Jafnaðarmenn syrgja.
16. júlí síðastliðinn fyrirskipaði innanríkisráðherra jafnaðarmanna, Nancy Faeser, að stærsta valkostamiðli Þýskalands með 40 þúsund áskrifendur, Compact, yrði tafarlaust lokað. Nancy Faeser skrifaði þann mmorgun á X:
„Í dag hef ég bannað hægri öfgatímaritið ‘COMPACT-Magazin’. Það kyndir undir ógeðfelldar árásir gegn Gyðingum, múslimum og lýðræði okkar. Bann okkar er hart högg á hægri öfgasamfélagið.“

Sama morgun og bannið var tilkynnt gerðu grímuklæddir lögreglumenn húsleit á heimili ritstjóra blaðsins, Jürgens Elsässer, og fjölskyldu hans. Einnig var gerð húsleit á heimilum nokkurra annarra ritstjórnarmanna. Skrifborð og annar skrifstofubúnaður var gerður upptækur.
Lén blaðsins var gert óvirkt og ríkisstjórnin fyrirskipaði netrisunum að fjarlægja efni blaðsins af vettvangi sínum. Google braut fyrirmælin, Compact fékk að halda YouTube-reikningi sínum.
Ritskoðunarákvörðunin mætti mikilli andstöðu frá unnendum málfrelsis. Jafnaðarmenn voru gagnrýndir fyrir einræðisleg vinnubrögð. Í lýðræði verða stjórnvöld að þola að það séu til blöð sem manni mislíki við, ákvörðun Faesers skapi hættulegt fordæmi sem framtíðarstjórnir geti notað ef þeim mislíkar skoðanir einhvers fjölmiðils.
Á það er einnig bent, að Nancy Faeser hafi sjálf tengsl við Antifa, ofbeldisfulla vinstri hreyfingu og að ákvörðun hennar sé pólitísk til að koma höggi á stjórnmálaandstæðinga.
Sigur fyrir dómi
Compact áfrýjaði til hæsta stjórnlagadómstóls landsins. Tæpum mánuði síðar aflétti dómstóllinn banni stjórnvalda tímabundið á meðan verið væri að rannsaka lagahliðar málsins.
Og í dag, næstum ári síðar, ógildir stjórnlagadómstóllinn endanlega ritskoðunarákvörðun rauðgrænu ríkisstjórnar Þýskalands og segir hana ólöglega. Dómstóllinn telur meðal annars að jafnvel þeir sem eru taldir „óvinir frelsisins“ eins og ríkisstjórnin skilgreinir Compact, eigi rétt á tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Að auki telur stjórnlagadómstóllinn að ekki sé hægt að banna fólki og dagblöðum að gagnrýna stefnu stjórnvalda í innflytjendamálum. Dómstóllinn skrifar í úrskurðinum:
„Margar af þeim yfirlýsingum sem gagnrýna eða berjast gegn innflytjendum og verjandinn (þýska ríkisstjórnin) nefnir sem ástæðu fyrir banninu, má skoða sem ýktar í ljósi grundvallarréttinda í samskiptum en engu að síður leyfilega gagnrýni á innflytjendastefnuna.“
„Að auki getur lögleg krafa um strangari reglur til að öðlast ríkisborgararétt og hærri aðlögunarkröfur í meðborgarlögum í sjálfu sér ekki talist andstæð mannlegum réttindum eða lýðræðisreglunni.“
Paul Klemm, ritstjóri Compact, fagnaði úrskurði dómstólsins. „SIGUR!!!“ skrifar hann á X:
