Tíu staðreyndir Ólafs Ragnars Grímssonar forseta um ESB og evruna

Eftir að Samfylkingin sveik kosningaloforð sitt um að taka ekki upp Evrópusambandsaðild á þessu ári og blindauga stjórnarráðsins sett á utanríkisráðherrann sem hefur hrifsað til sín starfssvið forsætisráðherrans, þá hafa stöllurnar kastað þjóðinni út í botnlaust fen ónýtrar deilu landsmanna um ESB. Eins og sést hefur á ýmsum stöðum í Evrópu, þá berjast fylkingar ESB undir fána ESB gegn þeim sem standa á grundvelli sjálfsákvörðunarréttar og þjóðfána sínum. Er það sú sýn sem ríkisstjórnin vill sjá á Austurvelli þann 29. ágúst nk.?

Ólafur Ragnar Grímsson sýndi skýrt í Icesave átökunum hversu mikill klettur hann er fyrir þjóðina. Hann er ekki af baki dottinn og fær ekki tækifæri að setjast í helgan stein með því fólki sem vill eyðileggja aldalanga uppbyggingu landsmanna á þjóð sinni og tryggt með stofnun lýðveldisins 1944. Með fullri virðingu fyrir öðrum forsetum, þá hefur Ólafur Ragnar Grímsson sýnt þjóðinni drengskap sinn og fylgni og stóðst þá eldraun sem árás ESB á Ísland var og átti að setja Ísland í skulda- og þrælabönd kynslóðir fram í tímann.

Nei við ESB tók saman tíu helstu rök Ólafs forseta fyrir að kjósa Nei í kosningunum þann 29. ágúst: