Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er mjög í mun að komast í mjúkinn hjá Þjóðverjum. 19. október 2025 undirritaði Þorgerður varnarmálayfirlýsingu fyrir hönd Íslands með Þýskalandi, þegar þýski varnarmálaráðherrann Boris Pistorius var í opinberri heimsókn til Íslands í boði Þorgerðar. Engin sýnileg opinber umræða fór fram í fjölmiðlum um þessa samstarfsyfirlýsingu áður en hún var undirrituð. Þann 18. mars 2026 undirritaði Þorgerður Katrín og Kaja Kallas sameiginlega yfirlýsingu ESB og Íslands um aukið samstarf Íslands og ESB á sviði öryggis- og varnarmála. Engin sýnileg umræða fór fram opinberlega um málið fyrir undirskriftina.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hóf feril sinn í utanríkisráðuneytinu á því að fara til Brussel 15. janúar 2025 og leggja upp framkvæmda áætlun um innlimun Íslands í Evrópusambandið á fundum með Kaja Kallas og Maroš Šefčovič. Síðan hefur hún sem og öll ríkisstjórnin fylgt áætlun ESB um samstarfsyfirlýsingar um stuðning Íslands við stefnu ESB sem bindur Ísland sífellt meiri böndum þétt að ESB ásamt tilhögun ESB-kosninganna 29. ágúst næst komandi. Þegar Þorgerður fór til Brussel 15. janúar, einungis þremur vikum eftir að hún tók við embætti, þá var áætlun ríkisstjórnarinnar að halda kosningar eigi síðar en 2027. Eftir fundi Þorgerðar með ESB í Brussel var skyndilega tekin ákvörðun um að halda kosningarnar í flýti þann 29. ágúst með nær engum möguleikum fyrir almenning að kynna sér málin og mynda sér heildstæða skoðun.
Þorgerður sækir hugmyndir sínar meðal annar til Guy Verhofstadt sem var aðalgestur og flutti aðalræðu á landsþingi Viðreisnar í september 2025. Honum var ákaft fagnað að lokinni ræðu þar sem hann talaði sig hásan fyrir að ESB yrði að einu ríki og þyrfti að verða „veldi manngæskunnar“ („empire of the good“) og að framkvæmdastjórn ESB væri í reynd ríkisstjórn sambandsins. Verhofstadt hefur árum saman talað fyrir að ESB verði að einu ríki með sameiginlegri utanríkis- og varnarmálastefnu sem verið er að tengja Ísland við að landsmönnum forspurðum. Guy vill einnig afnema neitunarvald einstakra ríkja í ráðherraráðinu.
Guy Verhofstadt sækir sinn blauta draum í blautan draum Joschka Fischer frá því að hann varð utanríkisráðherra Þýskalands árið 1998 um að umbreyta ESB í ríki. Í viðtali við Frankfurter Rundschau í nóvember 1998 sagði Fischer meðal annars:
„Að umbreyta Evrópusambandinu í eitt ríki með einn her, eina stjórnarskrá og eina utanríkisstefnu er úrslitaverkefni samtímans.“
Þessa afstöðu útfærði hann síðar enn frekar í frægri ræðu við Humboldt University of Berlin 12. maí 2000, “From Confederacy to Federation”, þar sem hann lagði til að Evrópusambandið þróaðist úr sambandi fullvalda ríkja yfir í evrópskt sambandsríki (European Federation) með:
- evrópskri stjórn
- sterkara Evrópuþingi
- stjórnarskrá
- sameiginlegri utanríkis- og öryggisstefnu
- og síðar sameiginlegum varnarmætti.
Fischer hefur haldið þessari stefnu til streitu. Árið 2018 sagði hann í viðtali við Euronews að Evrópa þyrfti eigin her til að geta staðið á eigin fótum í breyttu alþjóðlegu öryggisumhverfi.
Sameiginlegt með þessum einstaklingum er hatur á Bandaríkjaforseta Donald Trump samanber nýlega bók Verhofstadt Að sigra Trumpismann en hann telur Trump vera stærstu hindrun í vegi þeirra afla sem vilja koma á stórveldi að hætti nazismans í Evrópu sem þá mætti alveg eins kalla Fjórða ríkið.
Ríkisstjórn Íslands er verkfæri í höndum þeirra afla sem vilja skaða hagsmuni Bandaríkjanna
Að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur ánetjast öflum sem vilja skaða hagsmuni Bandaríkjanna, þýðir að hún er að vinna með öflum sem vilja skaða hagsmuni Íslands af nánu samstarfi við Bandaríkin. Hún er með öðrum orðum að vinna fyrir markmið þess ríkjabandalags sem vill fara í stríð gegn Rússlandi og vinnur gegn Bandaríkjunum vegna þess að Donald Trump talar við Vladimir Pútín forseta Rússlands.
Þessi framkoma er stórhættuleg Íslandi sem þjóð og í skærri andstöðu við utanríkisstefnu Íslands frá stofnun lýðveldisins 1944. Vonandi verður vandlega farið yfir svik utanríkisráðherrans gagnvart þjóðinni síðar og ábyrgð hennar spegluð með landslögum svo réttvísan fái tækifæri til að halda velli.
