Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir plampar í popúlisma

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsti sjálfri sér sem fórnarlambi í höndum glæpahóps sem stundar upplýsingaóreiðu og er birtingarmynd öfga, þegar hún ræddi um kæru á hendur sér fyrir landráð í Kastljósi. Vesalings ráðherrann fær ekki að vinna störf sín í friði; glæpahópar og alls konar hópar og líka ríki reyna að þagga niður í henni og hræða frá því að vera í stjórnmálum.

Utanríkisráðherrann sagði í Kastljósi 16. júní:

„Mér finnst þetta líka ákveðin birtingarmynd öfga í lýðræðissamfélagi. Það er þessi pólun. Við erum að sjá ákveðna þöggunartilburði eiga sér stað. Það er verið að hræða okkur sem erum í pólitík, bæði að segja okkar skoðanir eða leggja fram mál sem eru mikil þjóðþrifamál eins og bókun 35 er.“

„Það er náttúrulega fráleitt að kæra ráðherra fyrir landráð einfaldlega fyrir það að leggja fram frumvarp.“ 

Dæmigerður popúlismi að tala um eitthvað annað en málið varðar

Að kæra ráðherra fyrir landráð er ekki daglegt brauð á Íslandi. Ráðherrann er ekki kærður fyrir að leggja fram frumvarp. Allir vita og eru sammála um að það er hennar hlutverk. Ráðherrann er kærður fyrir að leggja fram frumvarp sem afsalar Alþingi stjórnarskrárbundnu löggjafarhlutverki sínu í hendur erlends valds. Að ráðherrann skautar hjá þessu atriði og reynir að villa um fyrir landsmönnum að kæran sé um eitthvað allt annað er hennar eigin popúlíska „samsæriskenning“ gegn kærendum í Þjóðfrelsi.

Ráðherranum er engin vorkunn að hafa anað út í botnlaust fen þeirrar þversagnar að láta lög EES hafi forgang fram yfir ný lög Alþingis sem takmarkar löggjafarvald Alþingis og er óheimilt samkvæmt stjórnarskránni. Popúlistasöfnuður frumvarpsins valtar yfir þá sem best þekkja til málsins sem margir hafa tekið til máls og varað við þessari vegferð. Þar hafa embættismenn Hæstaréttar haft sig frammi og verður niðurstaða fv. hæstaréttardómara Jóns Steinars Gunnlaugssonar ekki sögð með skýrari orðum: „Alþingi hefur ekki stjórnskipulega heimild til að lögfesta þetta frumvarp.“

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra er fjarri raunheimum og spjátrar sig með hæstu embættismönnum alþjóðlegra stofnana sem slefa í hæstu öfgum hver framan í annan. Þar á bæ er litið á alla gagnrýni sem hatursglæp og að fangelsa eigi þá sem dirfast að líta skakkt á popúlistaguðina.

Þorgerður Katrín verður að svara þeirri spurningu hvort hún telur að fv. hæstaréttardómari tilheyri einhverjum glæpahóp sem er að reyna að þagga niður í henni? Hún minnist á aðra hópa, hverjir eru þeir? Hún talar um ríki…telur hún Þjóðfrelsi vera í samstarfi við Vladimir Pútín til að reyna að hindra störf hennar sem utanríkisráðherra Íslands? Það væri þá dæmi um öfgauppskafningu að telja sig svo þýðingarmikla að Pútín fari að gjóa augum í þá áttina.

Með Bókun 35 verður pandóruaskja réttarfarskerfisins á Íslandi opnuð fyrir ESB. Ísland með öllu sem tilheyrir landsmönnum, fiskinum, orkunni, bönkunum, lífeyrissjóðunum m.fl. verða aðgengileg í þeirri lögleysu sem frumvarpið skapar. Ef að Bókun 35 væri það smámál sem sagt er til varnar, þá þyrfti ekki að vera að leggja hana fram. Verið er að afnema varnaglann sem settur var við EES samninginn í upphafi einmitt til að tryggja forgangsreglu íslensku stjórnarskrárinnar á Íslandi.

Í samhengi við atlögu ríkisstjórnarinnar með skattahækkunum á grundvallaratvinnuvegi þjóðarinnar er verið að eyðileggja efnahagslíf landsmanna. Það skapar þá kreppu sem áróðursmeistarar popúlismans þurfa til að básúna út boðskap himnaríkis fyrir þá sem ganga inn í ESB. Að minnsta kosti tvær af þremur valkyrjum ganga um með þá girnd í maganum að fá embættisstöðu hjá Brussel-skrímslinu. Og að sjálfsögðu á að þjarma að allri stjórnmálaandstöðu. Þar eru haturslögin með aðstoð Stasi78 og brottrekstur heiðarlegra starfsmanna frá störfum aðeins byrjunin.

Hér að neðan má sjá samantekt Írisar Erlingsdóttur af samtali Þórdísar Kolbrúnu og Jóns Steinars um málið á Facebook fyrir skömmu:

Fara efst á síðu