Þögn í eina mínútu á Íslandstorgi í Köben

Dómsmálaráðherra Danmerkur, Nicolai Wammen, tók þátt í mínútuþögn til að minnast morðsins á sænska lögreglumanninum Christian Zedig sem var drepinn í slagsmálum sem komu í kjölfar heimsmeistarleiks Svíþjóðar og Frakklands sem sýndur var á stórskjám í Kaupmannahöfn. Christian var 32 ára gamall og skilur eftir sig tvö börn.

Um kvöldið kom upp slagsmál sem Svíinn reyndi að stöðva, en varð þess í stað sjálfur fyrir ofbeldi og hlaut lífshættulega áverka. Hann lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Christian var sænskur lögreglumaður og ódæðismaðurinn grunaður um morðið er frá Afríku.

Atvikið átti sér stað í borgarhverfinu Islands Brygge, þar sem fjöldi fólks hafði safnast saman til að fylgjast með leikjum heimsmeistaramótsins í Norður-Ameríku á risaskjá. Um kvöldið voru meðal annars sýndir leikir Noregs gegn Fílabeinsströndinni og áttunda úrslitaleikur Svía gegn Frökkum.

Skömmu eftir klukkan 21 var lögreglan í Kaupmannahöfn kölluð á vettvang eftir að slagsmál höfðu brotist út. Þegar lögreglumenn komu á staðinn fundu þeir Christian alvarlega slasaðan og var hann fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús. Morðinginn er þekktur ofbeldismaður og hafði meðal annars hlotið dóm fyrir morðtilræði 2017 og var þá dæmdur í 7 ára fangelsi. Slagsmálin náðust á myndband og sýna að Christian hlaut mikið högg á höfuðið sem leiddi til heilablæðingar.

Charlie Weimers ESB þingmaður Svíþjóðardemókrata segir að hér sé ekki um sorglegt slys að ræða heldur beina afleiðingu af þeim misheppnaða fjöldainnflutningi sem valdhafar í Svíþjóð og ESB hafa þvingað upp á íbúana í áratugi: