Þeir sem rugga bátnum falla stundum í sjóinn

Það var merkilegt að horfa á valkyrjurnar kyrja um ágæti sitt úr pontu Alþingis. Stærsti ósigur ríkisstjórnarinnar sem þjóðin gerði afturreka með ESB-umsóknina kalla þær stórkostlegan sigur fyrir lýðræðið. Á Kristrúnu Frostadóttur mátti heyra hvernig ofurgóðmenni ríkisstjórnar hennar hefðu „grætt gömul sár”:

„…með því að efna þetta loforð til þjóðarinnar – með því að treysta þjóðinni til að taka þessa ákvörðun – höfum við lagt okkur fram um að græða gömul sár og efla aftur traust til íslenskra stjórnmála. Þetta skiptir máli: Loforð gefin – loforð efnd.“

Yfirlýsingin á ekkert skylt við staðreyndir og hljómar eins og rispuð ræða einvaldsherra, sem gengur um með raunveruleika í heilanum sem allir aðrir eiga að fylgja eftir. Fyrir það fyrsta, hvaða gömlu sár er valkyrjan að tala um? Ósigur ESB og útrásarvíkinganna í Icesave? Fyrir ESB-sinna og útrásarvíkingana var dómur EFTA-dómstólsins raunverulegt sár svo það gæti passað. Eða var hún að meina sárindi fyrstu hreinu vinstri stjórnarinnar að verða á flæðiskeri með ESB-umsóknina 2013? Það var mikið sár alla vega fyrir Samfylkinguna sem næstum hvarf af Alþingi eftir hroðalega útkomu úr kosningunum á eftir. Er þetta kannski skýringin á að valkyrjurnar fóru í þessa vegferð til að græða sárindi ESB-sinna sem ekki komust inn í bjölluati númer eitt í Brussel. Eitt er vitað, að Nei var ekki markmiðið með sáralækningu valkyrjanna. Og talandi um loforð. Þau sem Kristrún hefur brotið eru orðin svo mörg að ekki er lengur hægt að telja á fingrum sér.

Þess vegna er þetta meira en upplýsingaóreiða eða samsæriskenning, þetta er vísvitandi blekkingarleikur sem forsætisráðherrann heldur meðvitað í gangi sem sannast í bréfi utanríkisráðherra um úrslit atkvæðagreiðslunnar en þar segir orðrétt (leturbreyting/GS):

„UTANRÍKISRÁÐHERRA

Reykjavík, 8. september 2026

Kæra Helen,

Eins og þér er kunnugt greiddi meirihluti atkvæði gegn því að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026. Ríkisstjórn mín virðir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og mun því ekki beita sér fyrir því að aðildarviðræður verði hafnar á ný, en staða aðildarferlis okkar helst óbreytt.

Þjóðaratkvæðagreiðslan snerist í meginatriðum um að kanna frekari skref í Evrópusamruna Íslands með því að hefja aðildarviðræður á ný. Niðurstaðan var hins vegar sú að halda samstarfi okkar áfram á þeim trausta og rótgróna grunni sem fyrir er.“

Hérna stendur svart á hvítu að aðildarumsóknin sem þjóðin hafnaði, eigi að vera í fullu gildi áfram. Það þýðir að ESB ásamt fimmtu herdeild ESB-sinna á Íslandi undirbúa þegar nýtt áhlaup á þjóðina við fyrsta besta tækifæri. Ísland skal með góðu eða illu verða þjónusturíki miðstjórnarinnar í Brussel.

Staðreyndin er sú að byrjað var að gróa yfir aðildarumsóknina, þegar valkyrjurnar ákváðu einhliða að rífa upp umsóknarlíkið og opna ESB-sárið á ný. Þeim tókst það og hafa enn á ný klofið þjóðina í herðar niður. En þær geta ekki tekið niðurstöðunni að þjóðin hafi ekki sagt já svo hægt væri að véla landið í ESB. Virðingin við afstöðu þjóðarinnar er bundin tilkynningu til Brussel um að svo stöddu haldi Ísland ekki áfram aðildarumsókninni en hún verði samt sem áður full virk áfram. Það er sá sigur sem allt þetta brambolt hefur fært þeim, að það sem landsmenn héldu að væri ekki í gildi er núna staðfest í gildi. ESB getur því amk. andað út í bili og tilkynnt Ísland sem umsóknarríki enn á ný.

Þorgerður Gunnarsdóttir – fullkomin tímaskekkja – vitlausu megin í sögunni

Þorgerður Gunnarsdóttir segir í þekktum einræðisherrastíl:

„Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði né fyrir hvað hún stendur. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar breytir hvorki gildum okkar Íslendinga né áratuga utanríkisstefnu okkar.“

Lýðræði er bara frasi í munni valkyrjunnar og ekki við neinu öðru að búast af konu sem heldur að hún sé ríkið. Hún skilur ekkert í því, að fólkið í Evrópu er að vakna eins og þegar hefur gerst í Bandaríkjunum. Þorgerður getur notað öll þekkt og óþekkt skammaryrði um andstæðinga sína í stjórnmálum, sem er þegar best lætur, lýtalaus afritun af stefnu miðstjórnarinnar í Brussel. Þorgerður gengur gegn þjóðlegum straumum álfunnar sem rísa upp gegn yfirtöku glóblizmans á vestrænum samfélögum. Hún hefur sama álit á meirihluta eigin landsmanna og hún hefur til dæmis á meirihluta þeirra Þjóðverja sem kusu Valkost fyrir Þýzkaland í Saxlandi um síðustu helgi. Sannleikurinn er sá að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir veit ekkert og hefur engan áhuga á því að vita hvað lýðræði er.

Sagan mun sýna að vókið með öllu sem því fylgir er ekkert annað en gamli kommúnisminn í nýjum búningi. Frjálslyndi utanríkisráðherrans endar í eigin peningabuddu og hagsmunum. Hún hefur ekki vit á því að skammast sín fyrir aðkomu að fjármálahruninu og samábyrgð á að hafa gert tugþúsundir landsmanna eignalausa. Nægilega vitlaus til að hafa stofnað stjórnmálaflokk og haft áhrif á nokkur þúsund Íslendinga sem trúa blekkingunni um ESB sem himnaríki á jörðu.

Dómur sögunnar um utanríkisráðherrann og Viðreisn mun koma og hann verður ekki náðugur. Reynslan sýnir nefnilega mörg dæmi um að þeir, sem rugga bátnum, detta stundum sjálfir í sjóinn.