Umræðurnar halda áfram um hið pólitíska íslam, sem boðar sjaría lög og yfirtöku heilu landanna. Allir vita hversu lýðræðið er brothætt gegn böðlum bókstafstrúarmanna sem drepa til að fá vilja sínum framgengt, það sést skýrast á löndum fyrir botni Miðjarðarhafs. Áður kristin lönd með lýðræði og frelsi. Núna hertekin lönd af klerkastjórnum og sjaríalögum.
Að sjálfsögðu á þessi ógurlega hugmyndafræði ekki heima á Íslandi. Um þetta skrifar Jón Magnússon hrl. á bloggi sínu í dag.
Jón Magnússon skrifar:
„Gefur auga leið
Í Sovétríkjunum var haft á orði, að stjórnendur landsins væru að ljúga um ástandið í landinu og þeir sem allir borgarar landsins vissu að þeir væru að ljúga, en samt gerðu þeir það og kæmust upp með það.
Fyrr í vikunni prédikaði öfgafulli íslamski trúarleiðtoginn Múhameð Usmani í stórmoskunni í Reykjavík. Usmani prédikaði þar um gildi fornaldarsjónarmiða og sharía dómstóla sem gætu dæmt fólk til dauða fyrir að ganga af trúnni, eða vera samkynhneigt auk þess að grýta konur fyrir brot, sem vægar refsingar lægu við fyrir karla auk ýmis annars.
Af sjálfu leiðir að Usmani hefði ekki talað í stórmoskunni nema þeir sem þar ráða ríkjum hefðu fengið hann til þess og af sjálfu leiðir einnig að þeir samsama sig þá að einhverju leyti e.t.v. öllu með sjónarmiðum og skoðunum Usmani.
Þegar leiðtogi stórmoskunar fer undan í flæmingi eins og greint er frá í Morgunblaðinu í dag, þá gildir það sama um málflutning hans og forustumanna Sovétríkjanna forðum.
Hvað á þá kristin lýðræðisþjóð að gera, sem telur skoðanafrelsi vera grundvallaratriði í lýðræðisþjóðfélagi, byggir á jafnstöðu karla og kvenna sem og réttindum samkynhneigðs fólks til að njóta sömu stöðu í samfélaginu og aðrir. Kirkjan tekur sér frí frá því að svara eins og henni komi ekki við trúarleg málefni.
Meloni forsætisráðherra Ítalíu svaraði því hinsvegar með einföldum hætti. Hún rak viðkomandi úr landi og sagði að þau sjónarmið sem hötuðust út í grundvallaratriði lýðræðis og mannréttinda á hinni kristnu Ítalíu ættu ekki heima í landinu.
Ættum við ekki að gera það sama og Meloni?”
