Þeim glymur klukkan, paník og ótti í augum  

Paník ráðafólks vex með hverjum degi. Klukkan glymur stríðs-óðri ráðstýru Dísu Reykás sem boðar hervæðingu þjóðar ásamt Nato von Stoltenberg í viðtölum á lygaveitu Glæpaleitis. Sendistýra afhendir heilalausum Joe Biden trúnaðarbréf í Washington á sama tíma er karlinn ófær um að kynna forseta Indlands; Who is Next? Sturlun botnlaus, botnlaus sturlun. Heilalaust gamalmenni með hönd á rauðum kjarnorkuhnappi boðar eldflaugaárásir á Rússland. Kókaín Zelinsky í Washington boðar sigurplan; Victory-Plan. Þau boða stríð, sakbitin full angistar með ótta í augum. Svo er að vonum. Eru 1-2-3 mínútur í kjarnorkustríð … Þið munið klukkuna og endi mannkyns. Dísa Reykás og Nato von Stoltenberg vita, dong … dong … dong.

Keflavíkurflugvöllur ein helsta herstöð Nato er óhjákvæmilegt skotmark í heimstyrjöld; prime-target. F-35 orrustuþotur á Nato-Kef, B-2 kjarnorku váfuglar voru sendir í lágflug yfir Reykjavík. Helguvík er heimahöfn kjarnorkukafbáta. Tugir milljarðar til vopnakaupa. Þau eru svipt hugarró, heilaþvegin á Nato-klíku-fundum, raunar örlög ráðamanna um áratugaskeið. Munið Kötu litlu Jak sem lagði upp með slagaranum: „Ísland úr Nato, Herinn burt“ með íslenska fánann í hönd en gerðist harðasti stríðs-agitatör í sögu íslenska lýðveldisins.

Sendistýra fær jobb fyrir þögn & þöggun

Við horfum upp á siðrof Íslands. Svanhildur Hólm sendistýra í Washington fékk jobbið fyrir þögn og þöggun á þjófnaði nítján fósturvísa, innbrot 109 lækna 3.350 sinnum í sjúkraskrár hjóna með lífbörn úti í bæ. Hólm hafði verið framkvæmdastýra Viðskiptaráðs í tíð Ara Fengers. Það varð uppnám í ráðinu þegar lögkvendið Eva Bryndís LMG lögmönnum – situr í Viðskiptaráði – kærði hjónin Gunnar Árnason og Hlédísi Sveinsdóttir til lögreglu með nafnlausum rógsbréfum. Í júní 2023 laug Eva upp á hjónin að þau hefðu sent ráðsmeðlimum nafnlaus hótunarbréf. Sumir forstjórar í ráðinu fengu bréf, aðrir ekki en nöfn þeirra voru samt á lista til lögreglu. Hólm yfir skrifstofunni safnaði bréfum sem bárust ráðsmönnum saman fyrir Fenger og svo varð þessi sprenging á síðustu aðventu. Viku fyrir jól var tilkynnt að Svanhildur væri á leið til Washington með viðhlutinn Loga Bergmann og Ari Fenger hrökkklaðist úr ráðinu.

Persónuofsóknir ríkisins

Spillingin er alls staðar, öllu er logið. Helga Þórisdóttir hylmir yfir með 44 læknum. Hún hefur breytt Persónuvernd í Persónuofsóknir ríkisins. Herför er gegn drengjum í skólum, ólæsi drengja landlægt. Börn eru transvædd og limlest, krakkarúv heilaþvær börn til að heilaþvo börn. Plágu var stefnt á þjóðina sem var blekkt til að taka eitursprautur lyfjarisa. Ofbeldi erlendra glæpagengja stigmagnast. 15-18 glæpahópar í stjórnlausu landinu. Palestínskt Kronogård-gengi í Trollhattan kveikti í bifreið lögreglumanns fyrir ári vestur í bæ. Skilaboð voru skýr. Heilaþvegnir kjánar með palestínufána vilja fleiri Palestínumenn.

Uppflettingar ekki af mannavöldum & gervimaðurinn

Á eftirlit LÖKE líf utan kerfis? Vaktar “gervimaður“ með stýriaðgang að LÖKE hjónin í fósturvísamálinu? Skatturinn/Tollstjóri neitar að gefa upp tímasetningar uppflettinga því það muni torvelda embættinu að upplýsa um tímasetningu uppflettinga í LÖKE!!! Embætti Ríkislögreglustjóra skrifar: “Engin uppfletting af mannavöldum.“ Hlerun með flóknum tæknibúnaði í Valhöll vaktar borgara. Menn í svörtu með svört sólgleraugu aka á svörtum amerískum jeppum hafa uppi ógnandi hegðun. Landspítalinn bannar starfsfólki að lesa Þjóðólf. Landspítalinn bannar starfsfólki að tjá sig nema með samþykki “samskiptanefndar“ að viðlögðum brottrekstri. Nýr öryggisstjóri Landspítalans er fyrrum sérsveitarforingi. Ritskoðun facebókar og googlanda er stýrt í Nóatúni í fyrirtækinu Aranja. Stóri bróðir stendur vaktina.

Keisarinn er án fata

Demókrataflokkurinn ameríski undir stjórn óseðjandi stórkapitals Wall Street, lyfjarisa Big-Pharma og hermaskínu Military Complex er á endatíma … Fyrir átta árum trúði fólk lygaveitum falsmiðla; fake news. Fólk hélt að Hollywood skemmti fólki, styrjaldir væru í þágu lýðræðis, sprautur væru nauðsyn, Ameríka væri kyndilberi frelsis. Keisarinn er án fata. Í Bandaríkjum Ameríku hefur fólkið í landinu tekið yfir Repúblikanaflokkinn en djúpríkið ræður enn demókrötum. Frelsisbylgja fer um Ameríku frá strönd til strandar. Afnám skattpíningar er boðuð. Skattleysi á yfirvinnu, þjórfé og lífeyrisgreiðslur; örorkubætur og eftirlaun. Losað um hreðjatak 101 Washington og Fed á almenningi. Í kjölfarið losnar um hreðjatak 101 Reykjavík á íslenskri þjóð, ofurvöxtum Seðlabanka, skattpíningu. Fólk trúði RÚV fyrir átta árum, stíflan er að bresta. Evrópa hendir esb á haugana, vestrænar þjóðir hrista af sér hernaðarhyggju Nato. RÚV senn skellt í lás og lyklum hent.

Senn rís nýr dagur, sal sér völvan, sólu fegra, gulli þaktan á Gimlé. Völuspá.

Fara efst á síðu