Þátttakendum á WEF boðnir mjölormar án þess að vita af því

Glóbaliztarnir reka áróður fyrir pödduáti og nútímalegum pöddubúskap svo hægt sé að losna við leiðinlegar, gamaldags, prumpandi beljur og bjarga loftslaginu samtímis. Hvernig ætli þessu sama fólki finnist sjálfu að fá skordýr í matinn? Og það án þess að vita af því? Þetta gerðist á glóbaliztaráðstefnunni í Davos í vikunni.

Kanadíski blaðamaðurinn Ezra Levant hjá Rebel News segir í viðtali á Infowars við Alex Jones að þetta hafi komið þeim í opna skjöldu á meðan þau dvöldu í Davos en glóbaliztafundinum lauk í dag.

Vegfarendum voru boðnar „Pumba orkustangir“ til að fá aukaorku í kroppinn. Þeir höfðu hins vegar enga hugmynd um hvaða efni voru í þessum orkustöngum.

Allir eiga að vita hvað „Alphitobius Diaperinus“ er

Þetta voru orkustangir frá fyrirtækinu Pumba sem voru afhentir vegfarendum. Það kom í ljós að eitt af orkuefnunum er „Whole Buffalo Powder.“ Þegar málið var athugað nánar kom í ljós að Whole Buffalo Powder er unnið úr „Alphitobius Diaperinus,“ Það er latneska heitið á mjölormum.

Þetta er náttúrulega óskiljanlegt fyrir flesta og þegar Levant sagði manni sem ætlaði að borða orkustöngina að hann væri að fara að borða mjölorma, ætlaði maðurinn að „kasta upp.“

Þetta er svindlið: í stað þess að skrifa hvaðan efnið kemur, þar sem enginn kaupir eða leggur sér mjölorma til munns, þá eru latnesk heiti notuð, sem enginn veit hvað þýða og þarf að fá lífríkis-og latínusérfræðing til að skilja hvaðan koma.

Ef einhver önnur efni fylgja með í stönginni geta skapað orku, já, þá fer hún bara öll í að gefa líkamanum kraft til að kasta upp ormunum.

Fara efst á síðu