Þakka þér Ólafur Ragnar Grímsson

Eftir að hafa hlýtt á fyrrum forseta þjóðarinnar, Ólaf Ragnar Grímsson, í viðtali í Spursmálum hjá Stefáni Einari Stefánssyni, þá fyllist hjartað bæði gleði og þakklæti fyrir að við skulum enn hafa tækifæri til að njóta nærveru Ólafs Ragnars. Hann er fullur auðmýktar gagnvart því mikla trausti sem þjóðin sýndi honum með því að kjósa hann – ekki bara einu sinni – heldur fimm sinnum sem forseta sinn. Hann lýsti því á einlægan hátt að hann finnur til ábyrgðar gagnvart þjóðinni og gaf sig fram í kosningabaráttuna til að geta miðlað reynslu sinni og sagt sannleikann. Hann lýsti því sem skyldu sinni að koma að þessu máli, því honum stæði ekki á sama hvað yrði um lýðveldið okkar eða völd Íslendinga að halda örlögum sínum í eigin höndum. Hann hefur víða sýn í heimsmálum eftir að hafa stofnað Hringborð Norðurslóða en árlega sækja um og yfir 2000 fulltrúar frá um 70 ríkjum ráðstefnuna í Hörpu.

Ólafur Ragnar Grímsson lyftir allri umræðunni um aðildarviðræður fyrir inngöngu Íslands í ESB upp á æðra plan laust við stjórnmálaþras og kergju einstakra ráðherra og ráðamanna. Hann ræðir efnislegt innihald spurningarinnar sem ríkisstjórnin hefur lagt fyrir þjóðina þann 29. ágúst og bendir á að hvergi sé minnst á Maastricht- eða Lissabonsáttmálann, sem er það regluverk sem Ísland þarf að aðlagast ef landið gengur inn í ESB. Hins vegar hafi Landskjörstjórn gert það í bæklingi sínum sem dreift hefur verið inn á öll heimili í landinu en þar segir:

  • Reglur ESB geta tekið gildi og haft áhrif beint í aðildarríkjunum án aðkomu innlendra stofnana, þótt það gildi ekki í öllum tilvikum.
  • Reglur ESB ganga almennt framar reglum aðildarríkjanna (hafa forgangsáhrif).
  • Aðildarríki fela stofnunum ESB vald í ákveðnum málaflokkum. Á sumum sviðum fer ESB eitt
    með völdin. Í öðrum málaflokkum skiptast völdin milli ESB og aðildarríkjanna á ákveðinn hátt.

Ólafi Ragnari Grímssyni finnst það miður að sjá hvernig jásinnar kaupa leikara til að flytja auglýsingaskrum í stað þess að taka efnislega umræðu um málið og bendir á að utanríkisráðuneytið hafi í reynd breyst í áróðursmiðstöð Evrópusambandsins.

Það er fengur af nærveru Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrum forseta okkar sem setti efnahagskröfur erlendra aðila á skuldum íslenskra óreiðumanna í dóm þjóðarinnar. Afstaða hans í samspili með öðrum lýðveldissinnum varð til þess að EFTA dómstóllinn dæmdi Íslandi í vil í frægum ICESAVE dómi sínum. Þar sat ESB á fremsta bekk og ætlaði að hlæja að óförum Íslands ef dómstóllinn hefði látið undan þrýstingi ESB og dæmt gegn Íslandi.

Ólafur Ragnar hefur nefnt þann ójafna leik sem 0,1% sæti við borðið hefur meðal þeirra stóru þjóða sem ákveða ferð Evrópusambandsins. Hann lýsti þessu með þeim hætti að 100 þúsund manna her, um 70 þúsund búrókrata ESB í Brussel ásamt 30 þúsund hagsmunavörðum, sem mynda 100 þúsund manna her sem eingöngu talar í nafni hagsmuna síns eigin kerfis. Þar skipta hagsmunir Íslands nánar engu og 0,1% veitir engin völd.

Íslendingar geta þakkað fyrir að geta enn notið krafta Ólafs Ragnars Grímssonar sem ann þjóð sinni af heilum hug í takt við hjarta hennar.

Þeir Íslendingar sem enn eru í vafa hvora leiðina skuli velja, já eða nei, geta óskorið kosið nei í trausti þeirra raka sem okkar fyrrverandi forseti færir þjóðinni á þessari örlagastund.

Fyrir það skal Ólafur Ragnar hafa verðskuldað þakklæti.