Það var þá Kína sem stjórnaði Biden eftir allt saman

Seint á árinu 2020 fjallaði The Gateway Pundit um áhrif Kína á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum það ár. Þá var þeirri spurningu velt upp hver það væri í raun sem stýrði Biden.

Í grein í desember 2020, var því haldið fram að Kína hefði átt þátt í því að hnekkja niðurstöðu forsetakosninganna 2020. Miðillinn greindi frá því að birt hefði verið myndskeið á mandarín-kínversku af símtali þar sem óskað var eftir fölsuðum kjörseðlum sem áttu að vera sérframleiddir í kínverskri verksmiðju. Samkvæmt greininni var framleiðandinn staðsettur í Guangdong-héraði í Kína.

Árið 2025 var greint frá því að Alríkislögreglan (FBI) hefði haft upplýsingar um meinta áætlun Kína til að hafa áhrif á bandarískar kosningar og að FBI hefði síðan þaggað málið niður. Nú vill Kash Patel fá skýringar.

Ný gögn sem hafa verið gerð opinber af Kash Patel, forstjóra FBI, og Dan Bongino, aðstoðarforstjóra FBI, benda samkvæmt þeim til þess að FBI undir stjórn Chris Wray hafi tekið saman leyniupplýsingar um meinta áætlun Kína um að framleiða fölsuð skilríki sem áttu að nota við ólögleg póstatkvæði fyrir Joe Biden. Toll- og landamæravernd Bandaríkjanna (CBP) lagði hald á 20.000 fölsuð skilríki í Chicago í Illinois, þar sem J.B. Pritzker er ríkisstjóri. FBI skipaði að leyniupplýsingarnar yrðu eyðilagðar.

Eftir forsetakosningarnar 2020 gerði Biden-stjórnin ekkert sem skaðaði Kína. Það var eins og Kína hefði í raun stjórnað Bandaríkjunum síðustu fjögur árin.

Nú hefur þetta bæst við:

Rannsóknarblaðakonan Catherine Herridge segist hafa fundið gögn sem bendi til þess að fjölskylda Joe Biden hafi verið kúguð af Kína (og birtir skjölin), en ríkjandi fjölmiðlar hafi hunsað sönnunargögnin.

„Það sem við sáum þegar skjölin voru birt var, að mínu mati, ákveðin viljandi blindni hjá fjölmiðlum, eða hefðbundnum fjölmiðlum. Þeir vildu einfaldlega ekki skoða skjölin. Það tók aðeins nokkrar klukkustundir að fara yfir þau. Ég fann skjöl þar sem rætt er um kúgun af hálfu Kína. Þetta var ætlað fyrir daglegan upplýsingafund forsetans. Ég tel að hægt sé að draga þá ályktun að líklega hafi verið um að ræða tilraunir til að beita fjölskyldu hans þrýstingi.“

Hún útskýrir jafnframt fyrr í viðtalinu að samkvæmt hennar mati hafi þessar upplýsingar verið hunsaðar og grafnar niður af FBI, CIA og fjölmiðlum til að tryggja að Demókrataflokkurinn héldi völdum.