„Það er ósk mín að þið sýnið þá forystu sem fólk á rétt á að vænta af kjörnum fulltrúum sínum“

Ræða Svíakonungs við þingsetningu sænska þingsins

Þinghúsinu í Stokkhólmi, 29. september 2026 (skjáskot YouTube).

Herra þingforseti,
háttvirtu þingmenn.

Kosningar hafa farið fram í Svíþjóð.

Þið sitjið nú á sænska þinginu og hafið fengið umboð til að vera fulltrúar sænsku þjóðarinnar. Það er heiður að fá að taka þátt í að móta þá stefnu sem land okkar tekur á komandi árum.

Háttvirtu þingmenn.

Við lifum í heimi óvissu og breytinga. Hrottafengin árás Rússlands á Úkraínu heldur áfram, rétt eins og barátta úkraínsku þjóðarinnar fyrir frelsi sínu, sjálfstæði og rétti til að lifa í friði. Jafnframt ríkir ólga í alþjóðastjórnmálum í Mið-Austurlöndum sem hefur afleiðingar langt út fyrir landamæri svæðisins.

Það verður sífellt ljósara hversu nátengd öryggi okkar og velsæld eru þróun mála í umheiminum. Alþjóðlegum áskorunum verður að mæta með alþjóðlegu samstarfi. Öryggi okkar sjálfra eykst með eflingu landvarna og samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Aðild okkar að Evrópusambandinu, Atlantshafsbandalaginu og Sameinuðu þjóðunum styrkir jafnframt sameiginlegan viðnámsþrótt okkar.

En áskoranirnar snúast ekki aðeins um öryggismál. Við lifum á tímum aðkallandi loftslagsmála, efnahagslegra umbreytinga og örra tækniframfara. Þess vegna þurfum við að byggja áfram á því sem ávallt hefur verið styrkur Svíþjóðar: nýsköpunarkrafti okkar, framúrskarandi rannsóknum og hæfni til að hugsa á nýjan hátt.

Árangur Svíþjóðar og áhrif á alþjóðavettvangi byggjast einnig á því sem við stöndum vörð um heima fyrir: trausti milli fólks, öflugu réttarríki og tiltrú á lýðræðið. Þingið gegnir lykilhlutverki við að varðveita þessi gildi. Hér mætast ólíkar skoðanir og reynsla, og hér eru teknar ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf fólks og leggja grunn að tækifærum komandi kynslóða.

Háttvirtu þingmenn.

Við búum í borgum og sveitum, við erum ung og gömul og reynsla okkar er ólík. En það sem sameinar okkur öll er þráin eftir góðu lífi og öruggri framtíð.

Við deilum einnig þeirri von að landi okkar sé stjórnað af ábyrgð, með hag allrar sænsku þjóðarinnar að leiðarljósi og af virðingu fyrir þeim lýðræðislegu grundvallarreglum sem samfélag okkar hvílir á.

Þið sem eruð ný á þingi hafið ef til vill ekki veitt því athygli að Móðir Svea stendur yfir inngangi þinghússins. Henni til hvorrar handar eru táknmyndir Árvekni og Íhugunar. Þetta er lýsandi tákn fyrir það verkefni sem hvílir á hverju og einu ykkar: að vera vakandi fyrir áskorunum samtímans en jafnframt ígrunda vel þær ákvarðanir sem móta framtíðina.

Að standa vörð um Svíþjóð felur í sér að bregðast við málum sem krefjast tafarlausra aðgerða, en einnig að horfa lengra fram á veginn en til næstu umræðna, næstu fjárlaga eða næsta kjörtímabils.

Það er því ósk mín að þetta þingár einkennist af samstarfsvilja, heiðarleika og langtímahugsun. Að þið hlustið hvert á annað, jafnvel þegar þið eruð ósammála, og leitið sameiginlegra lausna. Og að þið sýnið þá forystu sem fólk á rétt á að vænta af kjörnum fulltrúum sínum.

Leggjum okkar af mörkum saman til samfélags trausts og öryggis, þar sem lýðræðið stendur traustum fótum og bjartsýni og framtíðartrú fá svigrúm til að vaxa.

Ég óska ykkur, kjörnum fulltrúum sænsku þjóðarinnar, styrks, hugrekkis og visku í ykkar mikilvæga starfi.

Ég lýsi hér með þingið 2026–2027 sett.