Tékkland afnemur útvarpsgjaldið og sker niður hjá ríkisfjölmiðlum — blaðamenn boða verkfall

Íhaldssöm samsteypustjórn Tékklands undir forsæti Andrejs Babiš vinnur nú að því að efna kosningaloforð sitt um að afnema skyldugjald heimila vegna útvarps og sjónvarps. Jafnframt verða fjárveitingar til ríkisfjölmiðla landsins skertar um um það bil 15 prósent. Áformin hafa vakið harða gagnrýni meðal starfsmanna fjölmiðlanna, sem hafa boðað eins dags verkfall til að mótmæla niðurskurðinum.

Frumvarpið var samþykkt við fyrstu umræðu í neðri deild tékkneska þingsins snemma á laugardagsmorgun, að sögn Radio Prague. Atkvæðagreiðslan fór fram klukkan 04.36 eftir níu klukkustunda langar og á köflum heitar næturumræður, þar sem stjórnarandstaðan reyndi árangurslaust að stöðva framgang málsins.

Breytingin felur í sér að sérstakt afnotagjald, sem nemur 205 tékkneskum krónum á mánuði á hvert heimili — jafnvirði rúmlega 1.100 íslenskra króna — verður afnumið frá og með næsta ári. Þess í stað verða sjónvarpsfélagið Česká televize og útvarpsfélagið Český rozhlas fjármögnuð beint úr ríkissjóði.

Breytingunni fylgja jafnframt umfangsmiklar sparnaðaraðgerðir hjá ríkisfjölmiðlunum. Árlegar fjárveitingar lækka samtals um um það bil 15 prósent miðað við áætlaðar tekjur af afnotagjöldum á þessu ári. Það samsvarar lækkun um rúmlega átta milljörðum íslenskra króna.

Blaðamenn boða verkfall

Samkvæmt frumvarpinu á ríkisendurskoðun landsins einnig að fá heimild til að kanna hvernig ríkisfjölmiðlarnir fara með eignir sínar. Fjárveitingar verða auk þess frystar við hina nýju fjárhæð og hækka ekki fyrr en uppsöfnuð verðbólga fer yfir tíu prósent. Eftir atkvæðagreiðsluna á laugardag fer frumvarpið nú til nefndar í þinginu. Síðan bíða þess önnur og þriðja umræða í neðri deild áður en það fer að lokum til afgreiðslu öldungadeildarinnar og forsetans.

Umbótaáform ríkisstjórnarinnar hafa vakið mikla reiði innan ríkisfjölmiðlanna. Stéttarfélög og starfsfólk bæði tékkneska sjónvarpsins og útvarpsins hafa boðað heilsdagsverkfall þriðjudaginn 3. nóvember og segja niðurskurðinn ógna sjálfstæðri blaðamennsku.

Um helgina komu einnig þúsundir mótmælenda saman á Gamla bæjartorginu í Prag undir kjörorðinu „Hendur af fjölmiðlunum“. Um 4.000 manns mótmæltu í Brno, næststærstu borg landsins. Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að vilja þagga niður í gagnrýnum blaðamönnum og hótar að vísa málinu bæði til stjórnlagadómstólsins og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Babiš stendur fast á sínu

Andrej Babiš forsætisráðherra og samsteypustjórn hans hafa lengi gagnrýnt ríkisfjölmiðlana fyrir pólitíska slagsíðu og sóun á fé almennings. Á mánudag staðfesti forsætisráðherrann að ríkisstjórnin myndi ekki draga frumvarpið til baka þrátt fyrir mótmæli helgarinnar, að sögn Novinky.

Babiš leggur áherslu á að ríkisstjórnin sé að efna skýrt kosningaloforð með því að leysa heimilin undan skyldugjaldinu, sem fyrri ríkisstjórn hækkaði svo seint sem í fyrra. Hann bendir einnig á að almannaþjónustumiðlar víða í Evrópu þurfi að spara á meðan tékknesku ríkisfjölmiðlarnir hafi hingað til sloppið við sparnaðarkröfur.

„Öll Evrópa sparar, en þessir tveir fjölmiðlar spara ekki og enginn hefur eftirlit með þeim,“ sagði Andrej Babiš þegar frumvarpið var kynnt.

Á Facebook hafnaði forsætisráðherrann jafnframt ásökunum um að ríkisstjórnin hygðist stýra efni útsendinganna. Hann skrifaði að „ekkert stríð gegn óháðum fjölmiðlum“ stæði yfir og að „ekki væri verið að undirbúa ríkisvæðingu fjölmiðlanna“.

„Við munum aldrei skipta okkur af ritstjórnarstörfum eða starfsmannamálum tékkneska sjónvarpsins og útvarpsins,“ sagði hann á mánudag.

Mörg Evrópuríki hafa afnumið afnotagjöldin

Í frumvarpi sínu vísar tékkneska ríkisstjórnin til þess að sífellt fleiri Evrópuríki hafi afnumið gamla fyrirkomulagið með sérstökum afnotagjöldum í þágu fjármögnunar með skattfé. Sambærileg breyting tók gildi í Svíþjóð um áramótin 2019, þegar fyrra útvarps- og sjónvarpsgjaldinu var skipt út fyrir skyldugjald til almannaþjónustumiðla sem innheimt er með sköttum. Ísland lifir á steinöld í opinberri fjölmiðlun. Leggja á afnotagjaldið niður og taka RÚV af auglýsingamarkaði og skera starfsemi að mestu niður. Með nýrri tækni koma fram margir nýir einkamiðlar sem gegn fréttamennsku oft mun betur en RÚV.