Þá er talningu lokið eftir þennan örlagaríka dag. 52,8% sögðu nei við aðildarumsókn að ESB, 47,2% sögðu já. Það var engan vegin ljóst þegar fyrstu tölur bárust, hvor hliðin myndi bera sigur úr býtum. Já og Nei skiptust á að tróna á toppnum. En undir það síðasta varð ljóst að Nei-hliðin hafði betur. Fyrir það ber að þakka. Munurinn er lítill, sex prósentustig, það hefði verið hressilegra ef munurinn hefði verið þrisvar sinnum stærri. Evrópusambandið klýfur þjóðina og í þessa atkvæðagreiðslu hefði aldrei átt að fara. Að auki er hún ólögmæt að mati Loga Kjartanssonar sem kært hefur málið til úrskurðarnefndar kosningamála.
Komist úrskurðarnefndin að sömu niðurstöðu og Logi Kjartansson að atkvæðagreiðslan sé ólögmæt, þá yrði það enn eitt hneyksli ríkisstjórnar Kristrúnu Frostadóttur sem lofaði fyrir síðustu alþingiskosningar að spurningin um ESB yrði ekki tekin á þessu kjörtímabili. Þorgerður Gunnarsdóttir hefur tekið sér vald sem hún hefur ekki lögum samkvæmt og keyrt yfir þing og þjóð með framgöngu sinni í málinu.
Sú tilraun sem Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa gert í nafni ESB-elítunnar á Íslandi átti að sanna frásögn elítunnar um hinn vonda Trump og vondu Bandaríkjamenn sem ásælast Grænland. Það er aldrei talað um það að Bandaríkin eru með herstöð á Grænlandi og það er heldur ekki talað um það að evrópskir skattgreiðendur greiða allan kostnað af rekstri úkraínska ríkisins. Það er heldur ekki talað um það að Evrópusambandið vill ekki semja við Rússland um frið í Úkraínu. ESB heldur áfram að dæla fjármagni sem í seinni tíð er tekið til láns í hergagnaiðnað og vopn fyrir Úkraínu. Í undirbúningi er allsherjarárás á Rússland svipað og Hitler gerði í Barbarossa árásinni 22. júní 1941. Út frá þessu markmiði eru allir viðmælendur Pútíns dæmdir prúðudúkkur hans, þar með talin Bandaríkjastjórn og forseti Bandaríkjanna Donald Trump.
Jafnframt var vakin von í herbúðum ESB að Ísland gæti bjargað andliti elítunnar í Brussel með því að sanna að ESB hefði ekki tapað aðdráttarafli sínu fyrir nýjum meðlimum. Bjölluat 2.0 fór út um þúfur eins og bjölluat 1.0. En Kristrún Frostadóttir lýsir yfir ánægju sinni með umræðurnar, því það fylgir ábyrgðarlausri stefnu hennar að „hrista upp í” málunum. Hún hefur sósíalisma á stefnuskrá sinni fyrir Ísland og stefnir á frama innan alþjóðahreyfingar sósíalismans í heiminum og í þágu glóbalizta.
Því miður fyrir já-menn þá skorti þá öll rök. Þess vegna töpuðu þeir. Þjóðin sá í gegnum brelluna um að kíkja í pakkann. Ríkisstjórnin getur sjálfri sér kennt um ófarirnar, því hún ætlaði að plata þjóðina til að segja já af því að hér væri ekki verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu, heldur aðeins verið að athuga hvaða þýðingu reglur sambandsins hefðu fyrir Ísland. Fólk var beðið um að fara í leiðangur sem átti að enda með aðildarsamningi Íslands við ESB en átti að telja því trú um að svo væri ekki.
Íslensk þjóð vill vera frjáls. Að ráða sjálfur yfir málum sínum er besti eiginleiki landsmanna frá því landið byggðist.
Fyrir þennan eiginleika getum við glaðst í dag og fagnað niðurstöðunni með þjóðinni.
Vonandi hætta þeir já-menn sem bara hafa ausið svívirðingum og skömmum á nei-sinna iðju sinni og snúi sér að lifibrauðinu í staðinn. Það sem er mikilvægast fram undan er eins og stjórnarandstaðan þreytist ekki á að benda á:
Ná tökum á verðbólgunni, bæta rekstrarskilyrði fyrirtækjanna í landinu svo verðmætasköpunin vaxi áfram. Allir Íslendingar græða á því.
Áfram Ísland!
