Taka ber Samtökin 78 af fjárlögum ríkisins og stöðva villutrú biskups

Það er gott að heyra kirkjunnar menn tala eins og séra Geir Waage, pastor emeritus, sem segir biskup Ísland brjóta þrenningarlærdóm guðs og boða villutrú með því að „skipta föðurnum, skaparanum, út fyrir eitthvað annað.“ 

Séra Geir Waage á heiður skilið fyrir að standa upp fyrir kristnum gildum og nær væri að hann væri biskup Íslands í stað Guðrúnar Karls Helgudóttur biskup Íslands sem minnir meira á trans aðgerðasinna en andlegan leiðtoga. 

Samtökin 78 virðast hafa biskupinn í vasanum og þaðan vellur öll þessi kynjafræði fram enda trúa hvorki S78 né biskupinn að kynin séu líffræðilega tvö. Geir Waage segir:

„Hér er um óvita­skap að ræða. Mér vit­an­lega eru kyn­in líf­fræðilega tvö, karl­ar og kon­ur. Svo eru til alls kon­ar af­brigði sem hafa alltaf verið, bæði hvað varðar lík­ams­gerð og hneigðir.“

Biskup sagði í ávarpi til prestastefnu: 

„að taka ber tillit til kröfu nútíma samfélags um að talað sé mál allra kynja í þjóðkirkjunni, því ég tel ákaflega mikilvægt að þau sem koma til kirkju upplifi að þau séu velkomin og ávörpuð.“

Í handbókardrögum biskups er Guð kvengerður og óður til Allah birtur á arabísku í íslenskri sálmabók. Biskupinn sjálfur hamast í ljósmyndakeppni við málun transfána fyrir framan kirkjudyr landsins. Þá er hún mjög meðvituð um fötin sín eins og tískufyrirsætan enda ekki svo skrýtið, þegar að hún segir að hún ætlaði eiginlega að verða rokkstjarna en varð óvart biskup í staðinn.

Taka ber Samtökin 78 tafarlaust af fjárlögum ríkisins svo íslenskir skattgreiðendur séu ekki látnir standa fyrir því að villutrú biskups og samtakanna fái að eyðileggja kirkjuna á Íslandi.

Fara efst á síðu