Tækniveldi á bak við ritskoðunarmúr – Kína lokar á vestræna miðla

Stafrænn Kínamúr: Tækni í þjónustu ritskoðunar og eftirlits ríkisvaldsins. Mynd: Gervigreind.

Kína hefur náð miklum tækniframförum en aðgangur almennings að upplýsingum er enn háður ströngu eftirliti kommúnistaflokksins. Google, YouTube, Facebook og fjölmargir vestrænir fréttamiðlar eru lokaðir á meginlandi landsins. Tæknilegar framfari skila þannig ekki borgurunum því tjáningar- og upplýsingafrelsi sem er grundvallarþáttur þess lýðræðis sem við þekkjum á Vesturlöndum (enn þá að minnsta kosti).

Umræða um efnahagslegt og tæknilegt „kraftaverk“ Kína gefur ófullkomna mynd ef stjórnarfarið er skilið út undan. Samkvæmt Freedom House búa netnotendur í Kína við einhverjar verstu aðstæður heims hvað netfrelsi varðar. Stjórnvöld hindra aðgang að erlendum upplýsingum, stýra umræðu innanlands og beita fólk viðurlögum vegna tjáningar á netinu.

Þarna birtist grundvallarmunur á tækniframförum og pólitísku frelsi. Ríki getur þróað háþróaða tækni án þess að veita borgurum sínum frelsi til að gagnrýna valdhafana.

Google og vestrænir samfélagsmiðlar lokaðir

Kínversk stjórnvöld halda úti umfangsmiklu kerfi aðgangshindrana sem gengur undir heitinu „eldveggur Kína“, eða Great Firewall. Með því er komið í veg fyrir að almenningur geti með venjulegum nettengingum nýtt ýmsa miðla og þjónustu sem teljast sjálfsagður hluti daglegs lífs á Vesturlöndum.

Þar á meðal eru Google-leitarvélin og Gmail, auk Facebook og Instagram. YouTube og X eru einnig meðal þeirra miðla sem hafa verið lokaðir árum saman, samkvæmt Freedom House.

Lokanirnar takmarkast ekki við samfélagsmiðla. Fréttavefir BBC og The New York Times eru einnig meðal þeirra sem kínverskir netnotendur hafa ekki frjálsan aðgang að.

Sjálf alfræðiorðabókin lokuð

Wikipedia hefur heldur ekki sloppið undan ritskoðuninni. Árið 2019 var aðgangshindrunum útvíkkað úr kínversku útgáfunni yfir í allar tungumálaútgáfur alfræðiorðabókarinnar.

Rannsóknarhópurinn OONI skjalfesti lokunina með netmælingum. Þær sýndu hvernig tengingar við Wikipedia voru hindraðar með tæknilegri síun.

Þetta snýst því um meira en að fjarlægja einstakar færslur. Heilir upplýsingabankar eru gerðir óaðgengilegir.

Vestræn fyrirtæki taka einnig þátt í síuninni

Ekki eru allar vestrænar netþjónustur lokaðar. Aðgangur getur hins vegar verið háður því að fyrirtækin lagi sig að ritskoðunarkerfinu.

Bing-leitarvél Microsoft er dæmi um slíkt. Rannsókn Citizen Lab sýndi umfangsmikla pólitíska og trúarlega síun í kínverskri þjónustu hennar. Í rannsókninni reyndist sú ritskoðun að sumu leyti víðtækari en hjá helsta kínverska samkeppnisaðilanum.

Vestrænt vörumerki er því engin trygging fyrir frjálsum aðgangi að upplýsingum þegar þjónustan starfar innan kínverska kerfisins.

Vald flokksins ræður mörkunum

Ritskoðunin beinist meðal annars að gagnrýni á flokksforystuna, lýðræðisbaráttu og viðkvæmum sögulegum og pólitískum málefnum. Netfyrirtæki þurfa að fjarlægja efni og loka reikningum, en notendur geta sætt alvarlegum viðurlögum vegna tjáningar sinnar. Freedom House lýsir þessu eftirlitskerfi í úttekt sinni á Kína.

Hér er skarpasti samanburðurinn við vestrænt lýðræði. Þar eru frjáls fjölmiðlun, opinber gagnrýni og möguleikinn á að skipta um valdhafa í frjálsum kosningum grundvallarviðmið. Í kínverska einflokksríkinu er upplýsingaflæði hins vegar undirlagt valdi kommúnistaflokksins sem stjórnar ríkinu.

Vestræn lýðræðisríki eru ekki hafin yfir gagnrýni vegna takmarkana á tjáningarfrelsi. Það breytir þó ekki eðlismuninum á lýðræðisskipan sem á að þola andóf og eins flokks ríkis sem stjórnar aðgangi almennings að upplýsingum um sjálft sig.

Nákvæmt umfang lokana getur breyst eftir tíma og netsambandi. GreatFire birtir mælingar á aðgengi að einstökum vefjum, sem gera kleift að fylgjast með framkvæmd ritskoðunarinnar.

Aðdáun á tækniframförum Kína má ekki verða að blindu gagnvart þessu stjórnarfari. Háþróuð tækni er ekki mælikvarði á frelsi. Þegar henni er beitt til að hindra upplýsingar og kæfa gagnrýni verður hún tæki valdhafanna gegn þeim réttindum sem lýðræðið á að vernda.

ESB í kínversk fótspor

Vestrænir valdhafar hafa margir hverjir dásamað Kína og þá oft í sambandi við viðskipti. Samtímis þegja þeir um alræðisfyrirkomulag kommúnismans, dagleg mannréttindabrot og mannsdráp í auðgunarskyni (sala á líffærum) eða til að losna við óþægilega gagnrýni.

ESB er að fara í kínversk fótspor með ritskoðun á Internet og alræðiseftirliti með almenningi með hlerun á öllum einkasamskiptum á Internet.