Morgunpanell Swebbtv, frá vinstri til hægri: Mikael Willgert þáttastjórnandi, Boris Benulic, Kent Zachari og Gústaf Skúlason.
Undirrituðum var boðið að koma með í fimmtudagspanel Swebbtv í morgun þar sem rætt var um sænsku kosningarnar, fréttir um rússneska drónaárás í Leipzig, yfirgengilega tillitssemi Svía við aðra ásamt stuttri umræðu um ESB-kosningarnar á Íslandi. Þótti panelnum áhugavert hversu mikill munur var á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni í niðurstöðu kosninganna og sagði Boris Benulic að sama munstur þekkist í öllum aðildarríkjum ESB á meginlandinu.
„Þetta útskýrir vel hvað verið er að gera í Brussel. Þegar litið er til dæmis á allar höfuðborgir í Austur-Evrópu, þá sjást ESB-sinnaðir hópar alltaf mest í höfuðborgunum. Þar er hin staðbundna elíta. Og hún hefur alltaf forgang á ólíkum styrkjum frá Evrópusambandinu og hér er oft fólk sem blandast svo saman við skriffinnskuelítu ESB. Von der Leyen hefur ekki áhuga á því fyrst og fremst að Ísland verði aðili að ESB. Hún vill bæta nýrri staðbundinni elítu við veldi ESB. Þetta sjáum við allan tímann og peningarnir ná aldrei út til þeirra sem búa úti á landi.”
Boris benti á að Íslendingar væru þegar með aðgang að mikilvægustu sviðum eins og frjálsa markaðinum:
„Eiginlega ætti Von der Leyen að láta það duga en hún er samt sem áður ekki ánægð og vill hafa band um hálsinn á elítunni í Reykjavík.”
Þeir sem skilja sænsku geta horft á þáttinn hér að neðan. Umræðan um Ísland hefst eftir mínútu 43:
