Sænska varnarrannsóknastofnunin FOI hefur gefið út 124 síðna rit um kjarnorkuvopn og viðbúnað vegna hugsanlegrar kjarnorkuárásar. Ritið er ætlað almenningi jafnt sem stjórnvöldum, heilbrigðisstarfsfólki og viðbragðsaðilum. Þar er meðal annars fjallað um skjól gegn geislavirku úrfalli og viðbrögð fyrstu klukkustundirnar eftir sprengingu.
Ritið nefnist FOI informerar om – Kärnvapen og var kynnt á vef stofnunarinnar 23. september. Markmiðið er að auka þekkingu á kjarnorkuvopnum og gera sænskt samfélag betur undirbúið ef til árásar kemur. FOI greinir frá útgáfunni hér.
Jessica Strömbro, yfirmaður kjarnorkuógnardeildar FOI og ábyrgðarmaður ritsins, segir að jafnvel takmarkað skjól geti skipt máli:
„Jafnvel einfalt skjól hefur þýðingu ef maður er ekki of nálægt sprengingunni.“
Auk leiðbeininga fyrir almenning er fjallað um verkefni björgunarþjónustu og heilbrigðiskerfis við slíkar aðstæður.
Fyrstu klukkustundirnar skipta sköpum
Í umfjöllun Samnytt um ritið eru rakin ráð FOI til þeirra sem lifa af kjarnorkusprengingu. Þar kemur fram að geislavirkt úrfall geti borist með vindi sem ryk eða fínn sandur. Nálægt sprengistað geti það byrjað að falla innan um 15 mínútna.
Geislavirknin sé mikil fyrst en dvíni hratt. Þess vegna skipti skjól fyrstu klukkustundirnar sérstaklega miklu máli.
Samkvæmt ráðunum getur verið varasamt að leggja strax af stað langa leið frá svæðinu. Fólk gæti þá verið berskjaldað þegar úrfallið er hættulegast. Betra geti verið að leita tafarlaust í nærtækt skjól, svo sem kjallara eða innri hluta stærri byggingar, en að ferðast langt til að komast í sérstakt byrgi.
Bílar veiti litla vörn gegn geislavirku úrfalli. Fái fólk geislavirkt ryk á sig geti það hins vegar dregið úr mengun með því að bursta rykið af sér og skipta um föt.
Birgðir og upplýsingar nauðsynlegar
Í ráðleggingunum er jafnframt lögð áhersla á að fólk geti dvalið í skjóli í nokkra daga. Til þess þurfi nauðsynjar og leið til að fylgjast með upplýsingum frá yfirvöldum.
Útvarp geti skipt miklu máli þar sem búast megi við alvarlegum truflunum á farsímakerfum, eða að þau verði óvirk fyrst eftir sprengingu.
Meginboðskapur leiðbeininganna er að leita skjóls, halda kyrru fyrir í skjóli, fylgjast með upplýsingum og aðstoða aðra eftir getu.
Saga, fæling og afleiðingar
Ritið fjallar einnig um sögu kjarnorkuvopna, vígbúnaðarkapphlaupið, fælingarstefnu og alþjóðlega samninga. Sérstaklega er farið yfir afleiðingar sprengingar, þar á meðal höggbylgju, varmageislun, jónandi geislun og geislavirkt úrfall.
Útgáfan er fræðslu- og viðbúnaðarrit. Í kynningu FOI er ekki fullyrt að kjarnorkuárás á Svíþjóð sé yfirvofandi, heldur lögð áhersla á að þekking geti bætt viðbrögð við hugsanlegri árás.
Upplýsingar um ritið og niðurhal hjá FOI.

Grænt = vörn, ljósgrænt einhver vörn, rautt engin vörn, ljósrautt geislavirkt ryk.
