Vilhjálmur Bjarnason fv. þingmaður skrifaði grein í Morgunblaðið 25. september þar sem hann hneykslast út í bændur vegna þess að Bændasamtökin hvöttu fólk til að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Fyrirsögn greinar hans var: Sókn til fortíðar – Að viðhalda óbreyttu ástandi í sveitum. Hann er grútspældur jámaður sem skammar bændur fyrir að vilja ekki ganga með í Evrópusambandið. Það er sama og sókn til fortíðar að segja nei við að Ísland gangi í ESB samkvæmt honum. Æska Íslands á enga aðra framtíðarmöguleika en að Ísland sé með í ESB að mati Vilhjálms.
Greinilega fylgist Vilhjálmur Bjarnason harla illa með bændamálum innan ESB. Hvers vegna skyldi maður sem hefur bændur á hornum sér og lítur niður til matvælaframleiðslu svo sem að vera að eyða tíma í slíkt? Hann hefur eflaust ekki heyrt af útrýmingu bændabýla í Hollandi með nauðungarkaupum ríkisins sem kom Mark Rutte frá völdum vegna uppreisnar bænda. Eða erfðaskatta Verkamannaflokksins á bændur sem gerði það að verkum að ekki var hægt að reka búskap sem erfðist milli kynslóða eins og áður. Eða samninga von der Leyen við Suður-Ameríkuríki um að kaupa ódýrar landbúnaðarafurðir þaðan hjá bændum sem þurfa ekki að keppa við bændur ESB á jafnréttisgrundvelli varðandi umhverfisreglugerð, vinnureglugerð og loftslagsskatta. Eða mótmælum bænda sem keyrðu traktóra sína frá löndum ESB til Brussel og dreifðu mykju yfir stofnanir ESB…Dæmin eru mörg.
Það er ekki óþekkt en með eindæmum málefnalaust að kenna bændum um allt illt á Íslandi. Í samanburði við þingmenn eru bændur mikilvægari, þegar kreppir að. Þeir framleiða mat. Þingmenn framleiða lög sem ekki verða í askana látin. Í seinni heimsstyrjöldinni var mikilvægasta spurning um lífsafkomu fjölskyldunnar að ná sér í reit til að framfleyta fjölskyldunni á því sem reiturinn gat gefið: kartöflur, rófur, gulrætur m.fl. Í stríði eru meiri líkur að lifa af ef maður þekkir bónda í stað þingmanns.
Ég svaraði Vilhjálmi góðlátlega með einföldu reikningsdæmi í Mbl. í dag. Þegar reiknivélin var tekin í fjósið kom í ljós að Vilhjálmur Birgisson kostaði skattgreiðendur þrisvar sinnum meira en bóndinn:
„Samkvæmt yfirliti Alþingis námu laun og kostnaðargreiðslur vegna hans 16.478.211 krónum árið 2017, þar með talin biðlaun. Miðað við verðlagsleiðréttinguna í þessum samanburði eru það um 25,84 milljónir á verðlagi ágúst 2026.
Til að gæta sérstakrar gestrisni í sveitinni skulum við lækka þá upphæð um 21,52 prósent. Það er sami hlutfallslegi frádráttur og fæst þegar aðeins framlög samkvæmt búvörusamningum eru talin með, í stað heildarframlags til landbúnaðarmála. Þetta er kostnaðarliður í launabókhaldi Alþingis og svo ekki halli á Vilhjálm nýtur hann sama afsláttar og bóndinn. Eftir standa 20,28 milljónir króna.
Meðaltal framlaga samkvæmt búvörusamningum er um 6,49 milljónir á bónda á ári, miðað við 3.000 bændur. Þrír bændur gera 19,47 milljónir. Einn Vilhjálmur á afslætti er því enn dýrari í þessum samanburði en stuðningurinn við þrjá meðalbændur. Það munar meira að segja um 810 þúsund krónur. Reiknivélin skilar afgangi, þótt hún kunni ekkert á orgel.”
Spurningin sem stendur eftir, þegar upp er staðið er: Hvers vegna verður opinber fjárveiting að tákni stöðnunar þegar hún fer í sveit en að fjárfestingu í skynsemi þegar hún fer á Alþingi?
„Bóndinn fær stuðning og er spurður hvort starf hans eigi framtíð fyrir sér. Fyrrverandi þingmaður fær laun, kostnaðargreiðslur og biðlaun og sest síðan niður til að útskýra framtíðina fyrir bóndanum. Það hlýtur að vera innifalið í verðinu.
Undir lok greinarinnar birtast stúlkur í buxum sem tákn framfara. Látum þær endilega halda buxunum. Vilhjálmur má á meðan máta pilsfald Framtíðarinnar og stíga í pontu.
Á verðmiðanum stendur enn: Rúmlega þrír bændur fyrir einn þingmann í framtíðarpilsi. Afsláttur innifalinn.”

