Sumar-Davos eflir kínverska kommúnista til að ná heimsyfirráðum

1 .700 þátttakendur frá meira en 90 löndum eru núna í Peking til að ræða hvernig Kína getur komið í stað Bandaríkjanna sem ríkasta og sterkasta þjóð heims. Þetta er árlegur sumarfundur WEF með nýju meisturunum í Kína sem miðar að því að efla langtímaáætlun kínverska kommúnistaflokksins um að rífa niður alþjóðaskipulagið og mátt Bandaríkjanna.

Á bak við viðskiptatengsl og tæknilegt samstarf, þá nota kommúnistarnir sumar-Davos til að stuðla að fjölpólaheimi til að draga úr áhrifum Vesturlanda þar til Kína verður að lokum komið í stað Bandaríkjanna sem alþjóðlegt stórveldi.

Sumar-Davos hófst árið 2007 sem samstarf Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum, WEF, og kínverska kommúnistaflokksins, CCP. Þar sem WEF skipuleggur ráðstefnuna, þá auðveldar það alþjóðlegum þátttakendum að mæta án þess að það líti út sem að þeir styðji kínverskar stjórnmálaskoðanir. Þetta gerir vestrænum fyrirtækjastjórnendum kleift að taka þátt í stefnumótun kínverska kommúnistaflokksins en viðhalda samt sem áður „trúverðugri“ afneitun.

Yfir 1.700 þátttakendur frá 90 löndum

Fundurinn í Tianjin suðaustur af Peking í ár sýnir þennan tilgang afar skýrt; yfir 1.700 þátttakendur frá yfir 90 löndum komu saman til að ræða „framtíð sem er minna samofin Washington.“

Þátttakendalistinn lítur út eins og spurningakeppni í hver er hver í alþjóðlegum stórfyrirtækjum. Stór ráðgjafarfyrirtæki sem móta vestræna efnahagsstefnu, þar á meðal Deloitte eru tóngefandi samstarfsaðili og Bain & Company eru reglulegir þátttakendur og senda framkvæmdastjórana á þessa árlegu fundi. Formaður McKinsey & Company fyrir Stór-Kína kemur reglulega fram í pallborðsumræðum og tæknirisar eins og Intel nota vettvanginn til að tilkynna miklar fjárfestingar, þar á meðal 2,5 milljarða dala hálfleiðaraverksmiðju í Dalian. Evrópski flug- og geimferðarrisinn Airbus notaði sumarfundinn í Davos sem vettvang til að koma á fót fyrstu lokaframleiðslulínu sinni utan Evrópu og framlengdu samstarfið til ársloka 2025. Það sem er meira áhyggjuefni er að stórar vestrænar fjármálastofnanir og ráðgjafarrisar nota sumar-Davos til að réttlæta efnahagskerfi kommúnismans í Kína og hjálpa kommúnistaflokknum að þróa valkosti við alþjóðlegt samstarf undir forystu Bandaríkjanna.

Klaus Schwab – hægri hönd kínverskra kommúnista til að kollvarpa Bandarískum áhrifum í heiminum

Nærvera Klaus Schwabs, stofnanda WEF og arkitekts „Endurræsingarinnar miklu“ skiptir miklu. Þátttaka hans staðfestir endanlega að sá maður sem grefur undan fullveldi þjóða starfar með kínverskum kommúnistum til að ná heimsyfirráðum.

Sumarfundurinn í Davos er hluti af víðtækari áætlun Kína til að endurskipuleggja heiminn. Peking hefur byggt upp samshliða alþjóðlegt kerfi í verkefnum eins og Belti og braut, BRICS, Samvinnufélagi í Shanghai, Fjárfestingabanka Asíu og Alþjóða öryggisfrumkvæðinu. Belti og braut, sem var hleypt af stokkunum árið 2013, nær nú til 146 -150 landa með yfir eina trilljón Bandaríkjadala í innviðalánum. Eykur það skuldasöfnun samtímis sem byggðar eru mikilvægar hafnir, járnbrautir og fjarskiptanet bæði fyrir almenn afnot en einnig í hernaðarlegum tilgangi.

BRICS bandalagið ógnar beint notkun Bandaríkjadals sem alþjóða myntar. Það sem hófst sem óformlegt bandalag Brasilíu, Rússlands, Indlands, Kína og Suður-Afríku hefur aukist í tíu meðlimi með Egyptalandi, Eþíópíu, Indónesíu, Íran og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Að auki eru níu aðrar þjóðir með í samstarfinu, lönd eins og Kúba, Hvíta-Rússland og Malasía. Þetta bandalag hefur um helming jarðarbúa og yfir 41% af vergri landsframleiðslu heimsins. Yfirlýst markmið er að draga úr þörf á Bandaríkjadal í viðskiptum.

Kínverska öryggisátakið nær til yfir 100 landa

Kína hefur einnig hervætt efnahagsáskorun sína í gegnum Samvinnusamtökin í Shanghai, SCO, sem er öryggisbandalag tíu aðildarríkja með meðlimi eins og Rússland, Mið-Asíu, Indland, Pakistan, Íran og Hvíta-Rússland. Fjárfestingarbankinn í Asíu hefur yfirráð yfir 20% af olíuframleiðslu heims og 44% af jarðgasforðanum og heldur uppi sameiginlegum heræfingum og aðgerðum gegn hryðjuverkum.

Asíski innviðafjárfestingarbankinn, AIIB, hefur 110 aðildarríki, þar á meðal flesta bandamenn Bandaríkjanna og lykilþjóðir Nató og G7. AIIB ögrar Asíuþróunarbankanum sem er undir forystu Japans og verið hefur hornsteinn fyrir áhrif Bandaríkjanna í Asíu frá árinu 1966. Þar sem Kína á 27% atkvæðisrétt og 100 milljarða dala í hlutafé, þá býður AIIB þróunarríkjum skýran valkost við vestrænar fjármálastofnanir og stjórnarhætti þeirra.

Það sem er enn lúmskara er að kínverska alþjóðlega öryggisátakið, sem yfir 100 lönd styðja, tileinkar sér kenningu Rússlands um „ódeilanlegt öryggi“ sem Rússar studdust við þegar þeir fóru inn í Úkraínu. Það hjálpar kínverskum kommúnistum að skilgreina hernám Taívan sem innríkismál Kína og þá verða afskipti utanaðkomandi þjóða, sérstaklega Bandaríkjanna, skilgreind sem árás á Kína. Kínverski kommúnistaflokkurinn fordæmir líka stækkun Nató og segir bandalög Bandaríkjanna skapa öryggisleysi og óstöðugleika samtímis sem hann kynnir sig sjálfan sem valkost friðar gegn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna.

Sumar-Davos hefur aðeins einn tilgang: að veikja forystu Bandaríkjanna

Sumar-Davos er stefnumótandi ráðstefna fyrir öll þessi verkefni kínverska kommúnistaflokksins sem hefur andúð á Vesturlöndum. Á sumar-Davos er komið með nýjar tillögur, markmiðin fínpússuð og alþjóðlegir þátttakendur dregnir dýpra inn í samstarfið við kommúnistaflokkinn. Ráðstefnan er þannig bæði tilraunastofa og sjósetning alls kyns alþjóðlegra metnaðarfullra verkefna kommúnistaflokksins. Flokkurinn prófar nýjar hugmyndir og eflir samstarf í bandalögum sínum í þeim eina tilgangi að veikja forystu Bandaríkjanna.

(Stuðs við grein Dr. Antonio Graceffo, sérfræðings í málefnum Kína.)

Fara efst á síðu