Logi Kjartansson lögmaður skrifaði grein í Morgunblaðið 22. maí s.l. um lögmæti boðaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í ESB. Bendir meðal annars á að ekki verður gengið í sambandið að óbreyttri stjórnarskrá. Fer hann yfir stjórnskipunarlög Íslands og bendir á hið augljósa að „frumskylda sérhvers stjórnvalds, ekki síst ráðherra sem æðsta handhafa framkvæmdarvalds á tilheyrandi málefnasviði, er sú að fara að lögum og vinna að þeim markmiðum sem þar eru boðin.”
Logi bendir einnig á að við inngöngu Íslands í ESB, þarf að breyta stjórnarskrá Íslands vegna framsals löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdavalds til ókjörinna búrókrata í Brussel. Sumir reyna að villa um fyrir fólki að aðild að ESB sé tvíhliða viðskiptasamningur milli jafn rétthárra aðila. Ekkert er fjarri lagi. Fyrir það fyrsta er Evrópusambandið ekki ríki og því ekki um neina venjulega tvíhliða milliríkjasamninga að ræða. ESB er ólýðræðislegt bandalag ríkja, þar sem aðildarríkin hafa framselt fullveldi til ókjörinnar framkvæmdastjórnar sambandsins.
Þeir sem heyrðu ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar á fundi Áfram Ísland í dag heyrðu hann lýsa því, hvernig það voru tveir þjóðhöfðingjar, Angela Merkel kanslari Þýskalands og Emmanuel Macron forseti Frakklands sem ákváðu að Ursula von der Leyen yrði valdamesti embættismaður Evrópusambandsins. Síðan ákvað von der Leyen einsömul að Kalla Kajas yrði utanríkismálastjóri sambandsins. Um 40 þúsund manna búrókrataher fer með fullveldi aðildarríkjanna og sinnir hagsmunum miðstjórnarinnar í Brussel. Það er ljóst að örþjóð sem Ísland hefur lítið í þennan mannskap að gera.
Þar sem aðildarumsókn að ESB fjallar um framsal ríkisvalds Íslands til ESB og breytingu stjórnarskrár, þá fellur málið undir svið forsætisráðuneytisins og ekki utanríkisráðuneytisins samkvæmt forsetaúrskurði, lögum um stjórnarráð og sjálfri stjórnarskrá Íslands.
Logi Kjartansson hefur sýnt fram á að þessu verklagi stjórnarskrárinnar hefur ekki verið fylgt varðandi samþykkt þingsályktunartillögu utanríkisráðherrans um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Ekki er um neina smá handvömm að ræða heldur er um „valdarán” utanríkisráðherrans að ræða sem hefur tekið sér vald sem hún hefur ekki samkvæmt lögum. Eðli málsins samkvæmt ætti slík handvömm að valda uppnámi lagadeildar Háskóla Íslands, lögfræðinga innan stjórnsýslunnar og hjá alþingismönnum á Alþingi.
En það heyrist varla stuna né hósti.
Hvað veldur?
Einu fjölmiðlarnir sem hafa fjallað um málið eru Morgunblaðið, Þjóðólfur og Útvarp Saga.
Hvar eru lögfræðingarnir? Eru þeir í losti vegna alvöru málsins? Ef málið væri glatað frá byrjun hefðu örugglega lögfræðingar Efstaleitis látið í sér heyra.
Logi Kjartansson vinnur nú við áframhald málsins og mun Þjóðólfur fylgjast með og segja frá. Þjóðólfur hvetur alla til að hjálpa Loga Kjartanssyni með því að styðja málið fjárhagslega, því sjálf stjórnarskráin er undir og ekki við unandi að ráðamenn geti leyft sér að hunsa stjórnlög íslenska ríkisins án þess að eitthvað verði gert. Það er mikilvægt fyrir almenning að þessi rannsókn haldi áfram til þess að hægt verði að forma mögulega stefnu í kjölfarið.
Reikningsnúmer fyrir greiðslur er nr. 0515-26-2556 kt. 060875-4059
