Málfundafélagaið Frelsi og fullveldi hélt umræðufund í safnaðarheimili Seltjarnarkirkju í gær undir fyrirsögninni Á ystu nöf. Frummælendur voru þeir séra Geir Waage og Jón Magnússon hrl. Þjóðólfur náði í framsöguna gegnum texta YouTube sem lesa má hér að neðan. Þar fyrir neðan má hlýða á umræðuna á myndbandi af fundinum. En fyrst mynd af ályktun fundarins:

Framsaga séra Geir Waage
Fundarstjóri, heiðruðu fundarmenn.
Þeir sem kjósa á kjördag hafa sínar forsendur fyrir því hvernig þeir verja atkvæði sínu. Þær eru allar gildar og vega jafnt þegar atkvæðin verða talin. Sumir verja miklum tíma og fyrirhöfn í að mynda sér skoðun og vanda sig. Aðrir nota „mér finnst nú bara“-aðferðina og gera eins og þeim sýnist í svipinn. Atkvæðin eru jafn gild. Aðrir eru reiðir og láta reiðina ráða. Margir kunna raunar að hafa fullgilda ástæðu fyrir því. Þeir misstu ef til vill eignir sínar í hruninu og finnst þeir hafa verið barðir niður í hvert sinn sem þeir hafa reynt að reisa sig við síðan.
Þeir sáu á eftir íbúð sinni þegar hún var boðin upp í pakka sem fjársterk leigufélög keyptu á góðum kjörum, enda sögðust þau ætla að vera óhagnaðardrifin. Nú þurfa þessir sömu menn ef til vill að leigja hjá sömu félögum á ítrasta markaðsverði vegna þess að þeir standast ekki greiðslumat. Þeir fá hvergi lán sem þeir gætu þó betur staðið í skilum með en leiguna, því leigan er hærri en afborganirnar væru.
Í raun hefur fátt breyst í peningastefnu á Íslandi frá því fyrir hrun. Allt gengur út á að verja hag þeirra sem eiga og tryggja raunvexti af föstu og lausu fé. Afkoma lífeyrissjóðanna er þar einnig undir. Við Íslendingar búum enda að „besta lífeyriskerfi veraldar“, eins og allir vita. Því eru vextir hér háir og halda uppi verðbólgu ásamt sköttum og álögum ríkis og sveitarfélaga, sem láta hagnað af rekstri ganga fyrir öðrum skyldum sínum við velferð landsmanna.
Varðstaða stjórnmálastéttarinnar um kerfið bætir ekki úr

Ef ekki væri fyrir þessar tvær ástæður — raunvaxtastefnuna og kröfuna um hagnað af opinberri þjónustu — væru vextir og verðbólga hér líklega lægri en víðast hvar í nágrannalöndunum. Líklega er þetta kjarninn í því sem vanmáttugt fólk kallar spillingu á Íslandi: sífellt dýpkandi gjá milli þeirra sem hafa og hinna sem hafa minna. Varðstaða stjórnmálastéttarinnar um kerfið bætir ekki úr. Kjósendur kjósa yfir sig sama kláðann aftur og aftur og stjórnmálafólkið, með endurnýjað umboð, braskar sín á milli með nýfengna eða endurnýjaða aðstöðu sína „til góðra verka“, eins og það heitir á máli nýkjörinna alþingismanna eða hreppsnefndarfólks.
Nú er liðinn rúmur aldarfjórðungur síðan nefnd allra stjórnmálaflokka á Íslandi skilaði áliti, undir forystu Jóhannesar Nordal, um nauðsynlegar úrbætur á kvótakerfinu eftir að Hæstiréttur Íslands hafði krafist þess með dómi að það yrði lagfært. Síðan flokkarnir náðu sameiginlegri niðurstöðu sinni hafa þeir staðið saman um að hafast ekki að, láta málið líða hjá og raska ekki kerfinu. Það er líklega þetta pólitíska og félagslega tómlæti alþingismanna úr öllum flokkum — varðstaða þeirra um inngróna hagsmunagæslu íslenskrar auðstéttar — sem nærir og viðheldur reiði meðal þjóðarinnar.
Fyrir vikið eignast ungt fólk af alþýðustétt ekki þak yfir höfuðið heldur neyðist til að leigja á okurverði á hinum svokallaða frjálsa húsnæðismarkaði. Fasteignaverði er haldið háu til að tryggja raunvexti af dauðu fé. Auðsæld aðstöðustéttanna leynist engum. Ég held að allt þetta reiti marga til reiði. Þessi ítarlegi formáli er tilraun mín til að skýra lýsandi ummæli sem oft hefur verið vitnað til í aðdraganda kosninganna:
„Allt ríka pakkið á Íslandi ætlar að segja nei. Þess vegna segi ég já.“
Ég ætla ekki að leggja annað mat á þetta viðhorf en að það er fullkomlega gilt. Það er fullkomlega gild ástæða fyrir atkvæði á kjördag. Hver og einn gerir það sem honum sýnist. Hvað sem öllum vangaveltum líður er rétt og skylt að halda því til haga að íslenska þjóðin ræður yfir fullveldi sínu og getur kallað kjörna fulltrúa sína til ábyrgðar fyrir verk þeirra. Sjálf fer þjóðin með æðsta vald og ábyrgð á málum sínum. Hún getur falið öðrum þetta vald, eins og raunar liggur undir í kosningunum. Slík ákvörðun er hins vegar óafturkræf. Það tók Íslendinga um það bil sjö aldir að komast út úr síðasta ríkjasambandi sem við vorum í.
Með ólíkindum að blásið sé til kosninga sem varða fullveldi þjóðarinnar án þess að upplýst sé um breytingar á stjórnarskrá
Ríkisstjórn Íslands hefur enn ekki birt þjóðinni greinargerð um hvaða hluta ríkisvaldsins — og þar með fullveldis þjóðarinnar — stendur til að framselja Evrópusambandinu. Hún hefur ekki gert þjóðinni grein fyrir því hver ávinningurinn eigi að vera. Hún hefur ekki kynnt hvaða stjórnarskrárbreytingar hún hyggst leggja til í þessu samhengi eða hvaða mörk hún muni ekki fara yfir við framsal valdheimilda sem enn eru, Guði sé lof, hjá þjóðinni.
Það er með ólíkindum að blásið sé til kosninga sem varða fullveldi þjóðarinnar án þess að nokkuð af þessu liggi fyrir. Undir eru yfirráðin yfir landi, fiskimiðum, auðlindum, vatni og orkuauðlindum, utanríkisstefnu og landamærum — allt grundvallarforsendur sjálfstæðis og afkomu þjóðarinnar. Engin trygging liggur fyrir um varanlegar undanþágur sem taki mið af sérstöðu og grundvallarhagsmunum landsins.
EES-samningurinn tryggir okkur nú þegar fullan aðgang að innri markaði Evrópu og fjórfrelsinu, sem margir hampa sem fjöreggi. Ísland hefur jafnframt gert dýrmæta fríverslunarsamninga við lönd utan Evrópu, þar á meðal efnahagslegt stórveldi eins og Kína og önnur rísandi hagveldi. Þeir samningar falla niður við aðild að Evrópusambandinu, sem myndi framvegis eitt gera slíka samninga fyrir hönd allra aðildarríkjanna.
Aldrei skal Ísland verða falt – Það er ekki til sölu
Ég vík aftur að því sem ég rakti í inngangi ræðu minnar: ESB-aðild leysir ekki sjálfkrafa vandann vegna verðbólgu, vaxtastefnu eða óreiðu í ríkisfjármálum. Þjóðin þarf eftir sem áður að kjósa sér forystumenn og bera ábyrgð á þeim — og láta þá svara til saka fyrir gerðir sínar í kosningum, eða ekki, eins og reyndin hefur oftast verið.
Framsal fullveldis með inngöngu í ESB myndi þó að öllum líkindum að lokum svipta Ísland sjálfstæðri peningastefnu og krónunni. Þessi úrræði hafa hingað til dugað okkur til að rétta úr kútnum eftir kreppur og áföll í þjóðarbúskapnum. Í þessu samhengi er vert að minna á hið fornkveðna: „Árinni kennir illur ræðari.“
Samþykkt um að hefja aðildarviðræður er ekki hlutlaus könnun á því hvað kunni að vera í boði. Hún yrði skuldbindandi gagnvart Evrópusambandinu, markaði pólitíska stefnu landsins um aðild og byndi stjórnsýsluna við verkefnið um ófyrirsjáanlega framtíð, með ófyrirsjáanlegum kostnaði. Auk ríflega 100.000 ferkílómetra landsvæðis ræður íslenska þjóðin yfir 200 mílna auðlindalögsögu umhverfis landið, þar sem finna má mjög auðug fiskimið. Þannig séð er Ísland ekkert smáríki. Þegar við bætast lega landsins við flutningaleiðir milli heimsálfa og hernaðarlegt mikilvægi hennar er ekki um lítið teflt í þessum kosningum.
Sjálfstæði íslensku þjóðarinnar er dýrmætasta eign hennar. Það er grundvöllur frelsis hennar, afkomu og fullveldis. Stjórnarskráin og óskoraður réttur þjóðarinnar til yfirráða yfir auðlindum lands og sjávar skulu aldrei vera umsemjanleg.
Aldrei skal Ísland verða falt. Það er ekki til sölu.
Með þessum orðum hef ég efnislega gert grein fyrir tillögunni sem verður lesin upp þegar framsögum lýkur og borin undir fundinn áður en honum lýkur. Ég þakka áheyrnina.
Framsaga Jóns Magnússonar hrl
Fundarstjóri, góðir fundarmenn og ágæti formaður. Þakka þér fyrir stutta og góða framsögu.
Þegar við ræddum saman í dag sagði ég við séra Geir að spurningin væri hvor okkar yrði á undan með stuttan inngang og hvor kæmi á eftir með lengri og leiðinlegri ræðu. Hann sagði að það félli í minn hlut, því ég væri miklu betri en hann í að flytja langar og leiðinlegar ræður. Ég hef ekki getað spurt sóknarbörn séra Geirs hvort þetta sé rétt hjá honum.
Mér fannst athyglisvert þegar ágætur vinur okkar, Ólafur Ísleifsson, setti fundinn hér áðan. Þá fetaði hann að nokkru í fótspor frænda síns, Ólafs Ragnars Grímssonar. Ólafur Ragnar sagði gjarnan, áður en honum var bent á þetta: „Áður en ég tek til máls ætla ég að segja nokkur orð.“ Ólafur Ísleifsson sagði með svipuðum hætti: „Ég ætla að setja fundinn, en áður en ég geri það ætla ég að gera þetta.“
Við erum komin að lokum sérkennilegrar kosningabaráttu. Hún hefur meðal annars verið sérkennileg vegna þess að þeir sem ólmir vilja segja já á kjördag hafa fært mjög lítil rök fyrir því hvaða hagsmunir séu í húfi fyrir íslensku þjóðina, önnur en gjaldmiðlaskipti. Því er haldið fram að það að losna við krónuna og taka upp evru sé allra meina bót. Síðan eru tínd til atriði á borð við að auðveldara verði að fá lán og að greiðslumat verði með öðrum hætti. Slíkt er ekki reist á traustum rökum.
Í Kastljósi var nýlega langt viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Sérstakur fréttamaður í Brussel hefur daglega flutt fréttir sem eru hliðhollar þeim sem ætla að segja já á kjördag, stundum oftar en einu sinni á dag. Við getum einnig horft á Silfrið þegar við komum heim og velt fyrir okkur hvernig valið er í þáttinn, hverjir stjórna og hvaða hagsmuna er verið að gæta.
Við berjumst því að mörgu leyti eins og Davíð gegn Golíat forðum. Davíð hafði sigur og við skulum stefna að því sama.
Hver er ávinningurinn af aðild?
Það er spurningin sem við þurfum að velta fyrir okkur — ávinningurinn umfram það að vera EES-þjóð. Ég tel EES-samninginn að mörgu leyti gallaðan. Það þarf að uppfæra hann vegna þess að hann er kominn til ára sinna. Hægt hefði verið að gera betur, meðal annars með tilliti til fullveldis ríkisins og þess hvort samningurinn standist ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Ég tel að þar vakni verulega áleitnar spurningar.
Grundvallaratriðið er hins vegar að ESB er ríkjasamband sem stefnir að því að verða sambandsríki aðildarþjóða Evrópu. Evrópusambandið hefur aldrei farið í grafgötur með þann vilja að stofna sambandsríki Evrópu sem nái til allra Evrópuþjóða. Það hefur heldur aldrei verið leyndarmál að þótt ríki segi nei sé aðild boðin aftur síðar, samanber Noreg.
Þannig verður það einnig hér. Þótt við sigrum á laugardaginn, eins og ég vona innilega, þurfum við áfram að vera á verði. Bretar reyndu í áratugi að laga hlutina en það gekk ekki. Hvað myndi aðild kosta okkur og hvaða hagsmunir eru í húfi?
Ragnar Árnason, prófessor emeritus, og fleiri hafa reiknað út að greiðslur til ESB, umfram það sem við fengjum til baka, gætu numið um 50 milljörðum króna á ári. Sumir nefna hærri tölu. Fimmtíu milljarðar á ári eru 500 milljarðar á tíu árum. Hvað væri hægt að gera við það fé? Ávinningurinn þyrfti að vera verulegur til að réttlæta aðild og slíkar greiðslur.
Annað atriði er að viðskiptasamningar okkar við aðrar þjóðir, sem eru okkur mikilvægir, myndu falla úr gildi. Í þriðja lagi myndum við taka allt regluverk ESB upp í íslenska löggjöf, ef til vill með einhverjum tímabundnum undanþágum í sjávarútvegi og landbúnaði. Við myndum taka upp reglur ESB um fiskveiðar og fiskveiðistjórnun.
Í því sambandi hefur verið dreift röngum upplýsingum um að við gætum fengið miklar undanþágur eða breytingar. Hvernig hefur öðrum þjóðum sem sótt hafa um aðild og viljað halda í sérreglur vegnað? Niðurstaðan er alls staðar sú að möguleikarnir eru mjög takmarkaðir.
Yfirleitt hefur verið miðað við auðlindalögsögu allt að sex mílum og mislangt tímabil undanþága. Hvort sem um var að ræða Svíþjóð, Finnland, Danmörku, Bretland, Spán eða Möltu þurftu þessar þjóðir að sætta sig við sameiginlegt fiskveiðistjórnarkerfi Evrópusambandsins, með ákveðnum tímabundnum undanþágum varðandi veiðar, sérstaklega í eigin landhelgi. Það var það sem stóð til boða.
Reglur um greiðslumat byggjast á regluverki Evrópusambandsins

Ef menn halda að eitthvað miklu betra verði í boði fyrir Ísland er það mikill misskilningur. Samt byggist stuðningur sumra við aðild á þeirri hugmynd að við fáum svo góðar undanþágur frá regluverki sem Evrópusambandið hefur sjálft sagt að eigi ekki að breytast. Í gærkvöldi sá ég auglýsingamynd með ungu fólki sem sagðist ekki fá greiðslumat. Skilaboðin voru þau að með því að segja já myndi þetta allt verða auðveldara; fólkið fengi greiðslumat og gæti keypt sér þak yfir höfuðið.
Þegar málið er skoðað nánar — og þetta þekki ég vel vegna þess að ég starfaði lengi að neytendamálum — sést að reglur um greiðslumat byggjast á regluverki Evrópusambandsins. Grunnreglurnar koma þaðan. Við tökum þær upp en getum gert ákveðnar breytingar. Það er því á valdi forsætisráðherra og utanríkisráðherra, eftir atvikum, að gera breytingar til hagsbóta fyrir ungt fólk. Það hafa þau ekki gert.
Möguleikarnir eru takmarkaðir vegna þess að Evrópusambandið býr til umgjörðina. Þess vegna getur ungt fólk verið fast í þeirri stöðu að greiða háa húsaleigu, jafnvel miklu hærri en greiðslumat miðast við, en fá samt neitun þegar það vill fjárfesta í íbúð. Þetta gengur ekki. Einföld leit sýnir einnig að fasteignaverð á sambærilegum eignum í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn er hærra en í Reykjavík. Hvaða ávinning er þá verið að vísa til? Hugsanlega betri lánakjara.
Verð á peningum ræðst hins vegar af framboði og eftirspurn. Því meiri sem eftirspurn eftir fjármagni er, því hærri verða vextirnir. Við glímum við ákveðinn vanda í Seðlabankanum, en ég álasa seðlabankastjóra ekki sérstaklega. Hann er ágætismaður. Í íslenska stjórnkerfinu og fjármálakerfinu ríkir ákveðin trú á beitingu stýrivaxta. Það er sjónarmið út af fyrir sig.
Vandinn stafar þó ekki fyrst og fremst af seðlabankastjóra. Hann hefur sjálfur gagnrýnt þá sem auka þenslu í hagkerfinu. Hverjir eru það? Ríkið og sveitarfélögin, með endalausri lántöku. Fyrir vikið er eftirspurn eftir fjármagni hér miklu meiri en framboðið og verð á peningum verður hærra.
Við skulum athuga eitt í þessu samhengi. Ísland hefur um áratugaskeið tekið þátt í almennu fjármálakerfi Evrópu í gegnum EES. Hvaða banki sem er getur komið hingað og stofnað útibú. Hvaða tryggingafélag sem er getur stofnað hér deild eða útibú.
Erlend tryggingafélög hafa komið hingað í takmörkuðum mæli, en enginn erlendur viðskiptabanki hefur komið til Íslands til að bjóða betri vexti en bankarnir sem fyrir eru. Enginn.
EES-samningurinn er ekki nýr. Um 33 ár eru síðan hann var gerður og ekkert hefur gerst að þessu leyti. Enginn banki hefur komið hingað til að keppa um viðskipti, hvorki fyrir hrun, í hruninu né eftir það. Það segir okkur að fjármálastofnanir meta það ekki svo að sérstaklega eftirsóknarvert sé að koma hingað til að bjóða neytendalán á húsnæðismarkaði. Því miður.
Ég vildi svo gjarnan að raunin væri önnur og að við fengjum hagkvæmari vexti. Meira og minna er þó verið að slá tóninn á fölskum nótum.
Þjóðríkið og fullveldið
Við skulum næst skoða það sem kallað er þjóðríkið. Því hefur verið haldið fram að þjóðríkið sé liðið undir lok og eigi að heyra sögunni til. Alþjóðasinnaðir stjórnmálamenn og Evrópusinnar í Bretlandi og víða um álfuna héldu þessu fram. Markmiðið var að afmá landamæri og einfalda allt.
Síðan kom Covid. Þá risu landamærin skyndilega aftur og ríkin tóku upp ólíka stefnu, meðal annars í innflytjendamálum. Það sýnir að þótt vilji ESB sé að draga úr vægi þjóðríkisins er sú taug enn sterk. Við eigum ekki að sækjast eftir inngöngu í samband sem vill umfram allt koma í veg fyrir að þjóðríkin fái að standa sjálfstæð.
Jón Sigurðsson forseti, frelsishetja Íslendinga, gerði þjóðréttarlega stöðu Íslands að meginatriði. Barátta hans snerist um að Ísland væri frjáls þjóð en ekki hluti af Danaveldi.
Fullveldið hefur eðlilega verið dregið inn í umræðuna. Fyrrverandi forseti lýðveldisins talaði eins og fullveldi væri fljótandi hugtak, eitthvað sem gilti með einum hætti á einum stað og öðrum hætti annars staðar. Davíð Þór Björgvinsson prófessor talaði á svipuðum nótum, sem kom mér á óvart, enda hefur hann áður verið álitsgjafi stjórnvalda um fullveldisatriði og fjallað um þau með öðrum hætti.
Þegar mælt var fyrir sambandslagafrumvarpinu árið 1918, þegar Ísland varð frjálst og fullvalda ríki, sagði frummælandinn efnislega að frumvarpið byggðist á viðurkenndum rétti íslensku þjóðarinnar til að skipa öllum málum sínum eftir eigin vilja. Það fæli fyrst og fremst í sér staðfestingu og viðurkenningu á sjálfstæði hins fullvalda íslenska ríkis í sambandi við Danmörku um sama konung. Það fór ekkert á milli mála um hvað var samið.
Nú er sagt að við höfum þegar afsalað okkur fullveldi. Hvenær gerðum við það og með hvaða hætti? Bent er á að við séum í Sameinuðu þjóðunum, NATO og norrænu samstarfi og lútum alþjóðlegum reglum um flug og siglingar. Það er rétt, en ekkert fullveldisframsal felst í norrænu samstarfi. Það er heldur ekkert fullveldisframsal af okkar hálfu í NATO eða í varnarsamningnum við Bandaríkin.
Við höfum samþykkt að lúta alþjóðlegum umferðarreglum. Íslensk flugvél á leið til London getur ekki hafnað fyrirmælum flugumferðarstjóra um á hvaða braut skuli lenda. Við verðum að fylgja sameiginlegum reglum í samskiptum þjóðanna. Það hefur ekkert með afsal fullveldis að gera. Grundvallarinntak fullveldis er að frjáls og sjálfstæð þjóð setji eigin lög. Hún hefur vald yfir því hvað teljist lög í landinu, skipar dómara og ákveður almenna umgjörð réttarkerfisins, þar sem dómstólar eru sjálfstæðir.
Með aðild að Evrópusambandinu glötum við hvoru tveggja að hluta. Löggjafarvaldið færist að verulegu leyti úr landi og Evrópudómstóllinn verður æðsti dómstóll okkar í fjölda mála. Er þetta afturkræft? Gætum við ákveðið á þriðjudegi að þessar reglur giltu ekki lengur og tekið löggjafar- og dómsvaldið aftur í eigin hendur? Svarið er nei. Þá þyrftum við að ganga úr ESB. Hvernig gekk Bretum að ganga úr sambandinu? Hve langan tíma tók það og á hvaða kjörum tókst að ljúka málinu? Það gekk sannarlega illa.
Stjórnarskráin og EES
Fræðimenn hafa sett fram ýmsar skýringar á þessum málum. Ólafur Jóhannesson prófessor hélt því fram að reglur um fullveldið væru mjög víðtækar. Segja má að rök hans hafi verið þau að meðan 21. grein stjórnarskrárinnar væri í gildi væru möguleikar á framsali ríkisvalds mjög takmarkaðir.
Samt höfum við framselt vald að einhverju marki. Í sambandi við EES-samninginn þarf að hafa í huga að, þvert á það sem stundum er haldið fram, hefur í raun aldrei reynt fyrir Hæstarétti Íslands á stjórnskipulegt gildi samningsins í þau rúmlega 30 ár sem hann hefur verið í gildi.
Ýmis skyld mál hafa komið fyrir dómstóla en ekki sjálf grundvallarspurningin um stjórnskipulegt gildi EES-samningsins. Við getum því stundað fræðilegar vangaveltur um hvort matið sé rétt eða rangt. Ég tel að álit svokallaðrar fjórmenninganefndar, sem kölluð var til að meta hvort EES-samningurinn samræmdist stjórnarskrá, standist ekki. Illa var staðið að málinu og gagnrýni kom þegar fram á sínum tíma. Yngri fræðimenn hafa síðan velt þessu fyrir sér. EES-samningurinn frá 1992 er ekki sama fyrirbærið í dag og þegar við gengum inn í samstarfið. Hvað hefur breyst?
Við höfum meðal annars gerst aðilar að Schengen. Davíð Þór Björgvinsson og Björg Thorarensen unnu skýrslu um aðildina að Schengen. Síðan hafa bæst við framkvæmd samkeppnisreglna, evrópskt fjármálaeftirlit, viðskiptakerfi ESB og þriðji orkupakkinn. Það er athyglisvert hvað Björg Thorarensen, núverandi hæstaréttardómari, hefur sagt um málið. Hún telur augljóst að framsal valds fari ekki lengur fram á afmörkuðu sviði heldur sé orðið virkt og heildstætt. Þar með séu stjórnskipulegar forsendur samþykkis EES-samningsins frá 1992 brostnar.
Hún setur fram þessa spurningu: Getur fullvalda ríki afsalað sér fullveldi sínu með óafturkræfum hætti án þess að fullveldið sé þar með liðið undir lok? Rökrétt niðurstaða hennar er að svo sé ekki.
Fullveldinu, sem barist var fyrir um aldir, má ekki fórna fyrir einn baunadisk
Nú er gert lítið úr þessu og reynt að lýsa stöðunni öðruvísi en hún raunverulega er. Við skulum heldur ekki gleyma því sem helstu stjórnendur Evrópusambandsins hafa sagt opinskátt: Vilji ríki njóta reglna sambandsins verði þau að taka allan pakkann. Engin rós er án þyrna. Menn geta valið hvort þeir opna pakkann og hvort þeim finnist hann girnilegur. Þeir geta líka valið hvort þeir stinga sig á þyrnum rósarinnar. Eins og maðurinn sagði:
„Af hverju í ósköpunum ætti ég að skoða hús sem mig langar ekki að sjá og mér dettur ekki í hug að búa í?“
Jón Baldvin Hannibalsson spurði á sínum tíma: „Hver fer inn í brennandi hús?“ Nú talar hann með öðrum hætti, en var eldurinn sem hann vísaði til nokkurn tíma slökktur? Svarið er nei. Ef eitthvað er hefur hann magnast. Það sem reynt er að lokka okkur út í má líkja við að fjölskylda búi í fjölbýlishúsi en samþykki að aðrir geti komið inn í íbúðina hvenær sem þeim sýnist og ákveðið hvað sé í matinn og hvernig veggirnir skuli vera á litinn. Það er í raun það sem um ræðir.
Ef við gerumst aðilar að ESB fá önnur aðildarríki áhrif hér á landi hvenær sem þeim hentar. Ég vil ekki sjá það. Ég neita að sætta mig við að fullveldinu, sem barist var fyrir um aldir, verði fórnað fyrir einn baunadisk. Þar vísa ég til frásagnarinnar af bræðrunum Jakob og Esaú. Esaú kom svangur af veiðum og Jakob bauð honum mat gegn frumburðarréttinum. Esaú samþykkti vegna hungursins.
Ætlum við að afsala okkur fullveldisréttinum í von um einhvern tímabundinn og hugsanlegan ábata í augnablikinu? Það gengur ekki. Skáldkonan Hulda orti ljóðið „Hver á sér fegra föðurland?“ Við skulum hafa lokaorð þess í huga þegar við tökum ákvörðun í kjörklefanum á laugardag:
„Svo aldrei framar Íslands byggð sé öðrum þjóðum háð.“
Takk fyrir.
