Stöðva verður siðleysi útrásarvalkyrjanna

Núna þegar þjóðin hefur svarað valkyrjunum og hafnað ESB-tálsýn þeirra, þá þarf að kafa dýpra í það umhverfi sem þær hafa skapað í valdastofnunum ríkisins með stjórnmálalegu framferði sínu. Þjóðin bað ekki um þessa atkvæðagreiðslu. Valkyrjurnar þvinguðu hana upp á þjóðina undir kringumstæðum sem ekki samrýmast lýðræðislega siðmenntuðum þjóðum. Logi Kjartansson hefur bent á það í lögfræðilegum greinargerðum, pistlum og viðtölum, að sú stjórnmálamenning sem valkyrjurnar hafa tekið með sér inn í stjórnarráð Íslands, er ekki samhljóma þeirri lýðræðislegu lagalegri umgjörð sem stjórnarskráin setur fyrir framkvæmdavaldið. Sniðganga við stjórnarskrána er algjör og lögum rústað í því siðleysi sem aðallega utanríkisráðherrann hefur verið í forystu fyrir. Í einni greininni spyr Logi:

„Álítur Alþingi Íslendinga ráðherra og ríkisstjórn landsins bundna af stjórnarskrá og lögum í samræmi 
við þær frumskyldur sem í því sambandi hafa frá fornu fari verið viðurkenndar og gildandi taldar, eða er í lagi að leyfa hér það sem nánast mætti þá nefna stjórnarfarslegan anarkisma (ríkisvaldsvirkjað stjórnleysi) í jafnvel stærstu og afdrifaríkustu grundvallarmálefnum ríkisins og lýðveldisins Íslands og þá um leið vegna m.a. réttaröryggis einstaklinga og almennings hér?”

Þetta er þyngsta spurningin eftir að þjóðin hefur hafnað vegferð ríkisstjórnarinnar og þessari spurningu verður Alþingi að svara. Ástæða er til að setja þetta strax á borðið vegna viðbragða valkyrjanna eftir kosningarnar, meðal annars hótun utanríkisráðherrans að keyra bókun 35 gegnum þingið og múlbinda þannig löggjöf Evrópusambandsins sem æðri íslenskum lögum og stjórnarskrá lýðveldisins. Valkyrjurnar sýna engan skilning á útkomu kosninganna að öðru leyti en að þær lofa að halda ekki áfram viðræðum sínum við embættismenn ESB það sem eftir er kjörtímabilsins. Hver veit hvaða loforð ríkisstjórnin hefur gefið embættismönnum Evrópusambandsins og gætu mögulega geymst á þeim síðum sem ríkisstjórnin felur bæði fyrir þingi og þjóð?

Ríkisstjórnin og utanríkisráðherrann sérstaklega hafa brugðist trausti kjósenda með brölti sínu sem hefur fyrir utan að kljúfa þjóðina í tvær andstæðar fylkingar, kostað tíma svita og peninga. Krafan um afsögn ríkisstjórnarinnar, í það minnsta utanríkisráðherrans, er í reynd algjör lágmarkskrafa þegar málin eru skoðuð og framferði valkyrjanna dregið fram í dagsljósið.

Stjórnmálamenn sem gæta ekki að framkvæmd laga í embættisstörfum sínum eru óhæfir til að gegna slíkum störfum. Logi hefur bent á lagagrundvöll framkvæmdavaldsins. Eftir bankahrun 2008 var lögð sérstök áhersla á að stjórnskipan landsmanna yrði endurbætt í kjölfar reynslu af siðlausum útrásarvíkingum sem settu fjármálakerfið á hliðina og kostuðu tugi þúsunda landsmanna heimili sín. Til dæmis voru lög um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurði endurbætt, þannig að núna úrskurðar forsetinn sérstaklega að tillögu forsætisráðherra eftir kjör nýrrar ríkisstjórnar sérstaklega um valdsvið ráðherra og verkefnaskiptingu ráðuneyta.

Ef þessum lögum væri fylgt hefðu valkyrjurnar ekki getað böðlast áfram með Evrópusambandsaðildina á þann hátt sem orðið hefur og þjóðin andmælt með neiinu. Það siðleysi sem ráðherrar þessarar ríkisstjórnar hafa gerst sekar um er í órafjarlægð frá stjórnarskrárbundnum sáttmála þjóðarinnar um þingræðislegt stjórnarfar og stingur alfarið í stúf við anda lýðveldisins og fullveldi þjóðarinnar.

Vegna þessa ætti forsetinn að rjúfa þing og boða til nýrra alþingiskosninga. Stjórnin er vanhæf til stjórnunar og hefur brotið gegn ríkjandi forsetaúrskurði og stjórnarskrá Íslands.

Miðað við orð flokksformannanna þriggja, þá sýna þær engan annan ásetning en að sitja áfram og ekki læra af mistökum sínum, hvað þá að hlýða kalli kjósenda. Þjóðin fær í næstu alþingiskosningum tækifæri til að skipta út stjórnmálamönnum og fá aðra í staðinn. En með þessari afstöðu valkyrjanna er baráttunni engan veginn lokið. Allra síst eftir hótanir utanríkisráðherrans um áframhaldandi valdníðslu í þágu Evrópusambandsins.

Ef alþingi megnar ekki að fara með eftirlitshlutverk sitt gagnvart framkvæmdavaldinu, þá verður þjóðin að setja fram skýra kröfu um afsögn ríkisstjórnarinnar og biðja forseta Íslands um þingrof til að stöðva áframhaldandi skemmdarverk siðleysis í nafni Evrópusambandsins. Málið er eins og Logi hefur bent á:

„Aðalvandinn sem Alþingi Íslendinga stendur frammi fyrir….hverfist ekki síst um virðingu fyrir því lögbundna skipulagi sem ráð er fyrir löngu gert að íslenska ríkið byggi á samkvæmt stjórnarskrá og öðrum landslögum, og; hvort Ísland geti talist lýðræðissamfélag og réttarríki í reynd – eða þá bara alls ekki.”