Stjórnarfarslegt lögmæti forsenda lýðræðislegra kosninga

Logi Kjartansson lögfræðingur skrifar grein í Morgunblaði dagsins um „lýðræðisveislu“ ríkisstjórnarinnar sem hefur efnt til atkvæðagreiðslu á morgun um aðildarferli Íslands inn í ESB. Rekur hann í grein sinni grundvöll þeirrar kæru sem hann fyrir hönd umbjóðenda sinna hefur sent til yfirvalda, þar sem farið er fram á ógildingu kosninganna, þar sem ríkisstjórnin hafi ekki fylgt lögum, hvorki forsetaúrskurði um verkaskiptingu ráðherra og ráðuneyta, né stjórnarskrá Íslands eða lögum um Stjórnarráð Íslands. Segjast verður eins og er að þessi kæra er kærkomin á allan hátt, hún afhjúpar djúpt sár í stjórnarkerfinu sem enn er ekki gróið frá því útrásarvíkingarnir settu fjármálakerfið á hliðina 2008.

Útrásarvalkyrjur stjórnarráðsins lofa að selja landið dýrt

Ef eitthvað er, þá hafa siðlausir starfssiðir stjórnsýslunnar eða að minnsta kosti þess hluta hennar sem var tröllbundinn starfsháttum óreiðumanna í fjármálum, aukist frekar en minnkað með siðleysi þeirra embættismanna er nú fylla stjórnarráðið. Stjórnmálin eru tröllbundin stjórnmálaskoðunum sem ýtt hafa eðlilegum lagalegum starfsgrundvelli til hliðar og einkenna alla ákvarðanatöku framkvæmdavaldsins. Þannig hefur utanríkisráðherrann, forstöðukona flokks með tæplega 16% fylgi, göslast í framkvæmdavaldinu og brotið lög og reglur til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu sem skellt er á þjóðina með hraði, þegar öruggt er að flestir eru í fríi ekki síst hæstvirt Alþingi, svo örugglega sé ekki hægt að ræða málið þar opinberlega í augnsýn þjóðarinnar fyrr en eftir atkvæðagreiðsluna. Forsætisráðherrann segir einstakt tækifæri fyrir landsmenn í augnablikinu til að selja landið dýru verði.

Umræðuumhverfi einræðisríkja

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sniðganga einn stærsta fjölmiðil landsins Morgunblaðið sem gagnrýnir vegferð ríkisstjórnarinnar, þær þora ekki að mæta og svara spurningum upplýstra og heiðarlegra starfsmanna blaðsins sem bara vilja vinna störf sín vel á grundvelli faglegrar blaðamennsku. Blaðamannafélag Íslands ætti að vekja athygli á þessum mismun sem minnir meira á afstöðu einræðisríkja til opinberrar umræðu en frjálsa umræðu lýðræðisríkja. Í framhaldinu ef ríkisstjórn Kristrúnar fær vilja sínum framgengt, þá þurfa stjórnarandstæðingar að flýja neðanjarðar með skoðanaskipti sín. Í staðinn er ríkisútvarpið notað sem sýnt hefur grófa slagsíðu með því að útiloka fyrrverandi forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson frá viðtölum, þar sem hann leiðir hreyfinguna Áfram Ísland á hlið þeirra sem segja nei. Að auki eru eins og Logi bendir á um 300 síður lokaðar frá almenningi og alþingismönnum og hver veit nema að þar sé að finna hugsanlega leynisamninga utanríkisráðherra við Brussel? Hvað eiga menn annars að halda, ekki geta öll skjölin fjallað um hvaða leynivopn Nató geymir á Íslandi? …. Eða?

Allur þessi flumbrugangur er með ólíkindum og utanríkisráðuneytið orðið að áróðursmiðstöð fyrir ESB eins og einnig kemur fram í grein Loga Kjartanssonar, þótt það orð sé ekki notað en Logi skrifar um síðu utanríkisráðuneytisins, sem er „ætlað að hafa einstrengingsleg skoðanamyndandi áhrif á kjósendur” og vísar til valdníðslu, þegar svo háttar að ráðuneyti ryðst inn á löglegt starf annarra stofnana samfélagsins.

Logi bendir á það sem allir spyrja sig:

„Í annan stað hefur engan veginn verið upplýst og skilgreint og það leitt í ljós með lýðræðislega og lagalega haldbærum hætti af hálfu ráðherra eða annarra viðkomandi ríkisstofnana, að hvaða meginmarkmiði verið er hér að stefna með ESB-vegferð þeirri er hér um ræðir.“

Engin skýr markmið eru með þessari atkvæðagreiðslu, hún sögð áhættulaus þar sem ekki sé verið að sækja eftir aðild að ESB. Allir þeir sem þekkja til málsins, ekki síst ráðherrar í fyrri vegferð, vita að það eru ósannindi, sjónhverfing til að plata kjósendur beint í gildru Evrópusambandsins. Bæði Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson stíga nú fram og segjast ætla að kjósa nei. Steingrímur er sá ráðherra sem einna mest mæddi á ásamt Össuri og Jóhönnu og hefur því farið út fyrir þægindarammann með því að greina frá reynslu hinnar misheppnuðu umsóknar 2009.

Um „lýðræðisveislu“ verður tæplega að ræða og lýðræðisbragurinn því hverfandi

Logi hæðist að orðskrumi þeirra embættismanna sem víkja frá lagalegum grundvelli framkvæmdavaldsins og lýsa skötulíki hinnar endurteknu umsóknar sem „lýðræðisveislu“.:

„Vera má að einhverjir líti svo á að tilgreindar kosningar teljist markmið í sjálfu sér og einhvers konar „lýðræðisveisla“. Líkt og að framan greinir horfir málið í heild sinni þannig að réttu lagi allt öðruvísi og alvarlegar við. Með gildum rökum má halda því fram að ef kosningar eiga að geta talist lýðræðislegar verði þær a.m.k. að vera á lögmætum grundvelli reistar í meginþáttum. Að öllu framangreindu gættu má ljóst vera að um „lýðræðisveislu“ getur tæplega verið að ræða þann 29. ágúst og lýðræðisbragurinn þannig hverfandi.“

Þjóðólfur tekur undir þessi orð Loga og þakkar honum og umbjóðendum hans fyrir framtakið að kæra kosningarnar til úrskurðarnefndar kosningamála. Þjóðin verður að gera hærri kröfur til þeirra einstaklinga sem bjóða sig fram í slag stjórnmálaflokka um embætti ríkisvaldsins. Það er eina leiðin til að forða stjórslysi á borð við ólögmætar atkvæðagreiðslur og lögbrot óvandaðra ráðherra sem berjast fyrir eigin hag í stað hagsmuna þjóðarinnar.

Það verður að stöðva að einstaklingar eins og utanríkisráðherrann, geti komið með botnlaust siðleysi útrásarvíkinga beint inn í stjórnsýslu ríkisins og snúið þar öllu á hvolf eins og nú hefur verið gert.