Starfsfólk BBC fær lægri laun ef það er hvítt

Hvítt starfsfólk BBC er með lægra miðgildi tímakaups en samstarfsfólk sem ekki er hvítt í öllum launaflokkum nema einum. Munurinn er mestur 13,2 prósent, að því er GB News greinir frá.

Mestur er munurinn í lægsta launaflokki fyrirtækisins. Í fjórum öðrum launaflokkum er miðgildi tímakaups einnig hærra hjá svörtu og asísku starfsfólki og öðrum þjóðernisminnihlutahópum samanlagt en hjá hvítu starfsfólki. Aðeins í einum launaflokki er miðgildið hærra hjá hvítu starfsfólki, um 0,6 prósent.

BBC rekur sérstakar starfsþróunaráætlanir fyrir svokallað starfsfólk úr minnihlutahópum og hefur það markmið að 20 prósent starfsfólks tilheyri þjóðernisminnihlutahópum. Að sögn fyrirtækisins hafa markmið um fjölbreytni ekki áhrif á laun.

Þegar litið er til alls starfsfólks mælist launastaða hvítra þó enn 0,7 prósentum hærri samkvæmt heildarmælikvarðanum. BBC skýrir það með því að hvítt starfsfólk gegni oftar hærra launuðum störfum.

John Whittingdale, fyrrverandi menningarmálaráðherra, leggur áherslu á að laun eigi alfarið að byggjast á verðleikum starfsfólks og framlagi þess í starfi.

„BBC vinnur að sanngjörnum og jöfnum launum fyrir alla,“ segir talsmaður fyrirtækisins.