Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi eru „niðurlæging fyrir ESB“ og þungt högg gegn þeirri hugmynd að framtíð Evrópuríkja hljóti að liggja innan sambandsins. Þetta segir Fraser Myers, aðstoðarritstjóri breska miðilsins Spiked, í harðorðri grein um íslensku kosningarnar.
Myers segir að eftir Brexit-kosninguna árið 2016 hafi sú skoðun orðið ráðandi meðal evrópskra valdastétta að útganga Bretlands hefði verið einstakt frávik. Önnur Evrópuríki hefðu séð mistök Breta og ríki utan sambandsins myndu fremur sækjast eftir aðild en fylgja fordæmi þeirra.
„Þjóðaratkvæðagreiðslan á Íslandi á laugardag hefur nú sprengt þessa frásögn í loft upp,“ skrifar Myers.
Hann vísar til þess að 53% Íslendinga hafi ekki aðeins kosið að standa áfram utan ESB heldur hafnað því að hefja á ný aðildarviðræður.
Ótti við fiskveiðar ekkert „heimskulegur“
Myers gagnrýnir sérstaklega viðbrögð stuðningsmanna ESB við ósigrinum. Hann rifjar upp að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi fyrir kosningarnar lýst ótta við „Brexit-augnablik“ og rætt um gervigreind, erlend afskipti og rangupplýsingar úr „handbók Nigel Farage“. Eftir kosningarnar hafi Politico síðan beint sjónum að fiskveiðunum og árangri nei-hreyfingarinnar undir yfirskriftinni „It’s the fish, stupid“.
Myers segir ekkert heimskulegt við það að Íslendingar hafi áhyggjur af framtíð fiskveiða innan ESB. Hann bendir á gríðarlegt efnahagslegt vægi sjávarútvegs fyrir Ísland og segir loforð íslenskra stjórnvalda og embættismanna ESB um mögulegar sérlausnir varðandi fiskveiðar augljóslega ekki hafa sannfært kjósendur.
Myers vísar jafnframt til reynslu Breta og segir að þrátt fyrir Brexit hafi ESB tryggt sér áframhaldandi aðgang að breskum fiskimiðum til margra ára. Deilur um fiskveiðar hafi jafnvel haft áhrif á viðræður ESB og Bretlands um varnarsamstarf.
„Er virkilega líklegt að hin víðfeðmu fiskimið Íslands yrðu undanþegin afskiptum ESB?“ spyr Myers.
Mesta kosningaþátttaka frá lýðveldisstofnun
Myers vekur einnig athygli á umfangi niðurstöðunnar. Kosningaþátttakan hafi verið 82%, sú mesta frá þjóðaratkvæðagreiðslunni um stofnun lýðveldisins árið 1944. Fyrir utan tvö kjördæmi í Reykjavík hafi meirihluti kjósenda alls staðar á landinu hafnað áframhaldandi aðildarferli.
Sérstaka athygli veki breyting meðal yngri kjósenda. Þeir hafi framan af verið taldir líklegir til að tryggja já-sigur en undir lok kosningabaráttunnar hafi kannanir bent til þess að staðan hefði snúist við og yngri kjósendur hallast að nei í hlutföllunum 60 gegn 40.
Öryggisrökin dugðu ekki
Myers telur að önnur niðurstaða kosninganna ætti sérstaklega að valda áhyggjum í Brussel. Stuðningsmenn aðildar hafi kynnt ESB sem örugga höfn fyrir Ísland í óstöðugum heimi – gagnvart Rússlandi, Kína og ófyrirsjáanleika Donalds Trump. Meðal annars hafi deilan um Grænland gefið íslenskum ESB-sinnum sterkt pólitískt vopn.
En það dugði ekki. Að mati Myers sýnir niðurstaðan að íslenskir kjósendur hafi einfaldlega ekki samþykkt þá fullyrðingu að ESB-aðild væri besta tryggingin fyrir öryggi landsins.
Það hafi þýðingu langt út fyrir Ísland. Brussel hafi eftir Úkraínustríðið í auknum mæli reynt að réttlæta tilvist og frekari samþættingu sambandsins með öryggismálum og hugmyndinni um „strategískt sjálfstæði“ Evrópu. Sú sýn kunni að höfða til dyggra stuðningsmanna ESB en íslenska niðurstaðan sýni að hún sannfæri ekki endilega kjósendur.
Ísland verðmætara fyrir ESB en ESB fyrir Ísland
Myers segir einnig að ekki megi vanmeta hversu mikill fengur Ísland hefði verið fyrir Evrópusambandið. Þótt íbúarnir séu aðeins um 400 þúsund sé landið auðugt, pólitískt stöðugt og með einhver hæstu laun í Evrópu. Landfræðileg staða Íslands geri landið síðan sérstaklega mikilvægt vegna vaxandi stórveldissamkeppni á norðurslóðum.
Bandaríkin og önnur vestræn ríki, Rússland og Kína horfi öll til norðurslóða vegna nýrra siglingaleiða, hráefna og hernaðarlegrar þýðingar svæðisins. Niðurstaða Myers er afdráttarlaus:
„ESB hafði alltaf miklu meira að vinna með aðild Íslands en Ísland.“
„Verkefni á niðurleið“
Myers telur íslensku niðurstöðuna jafnframt undirstrika stærra vandamál Evrópusambandsins. Aðild virðist að hans mati helst eftirsóknarverð fyrir fátækari ríki á jaðri Evrópu. Á sama tíma kjósi sum ríkustu lönd álfunnar að standa utan sambandsins. Hann nefnir Sviss, Noreg, Liechtenstein og Mónakó.
Hann bendir einnig á að ESB hafi ekki bætt við sig nýju aðildarríki síðan Króatía gekk inn árið 2013, en á sama tíma misst Bretland eftir Brexit.
„Þetta er verkefni á niðurleið, ekki í sókn,“ skrifar Myers.
Hann lýkur greininni með því að hrósa íslenskum kjósendum fyrir að hafa staðið gegn þrýstingi og hafnað þeirri hugmynd að velja þurfi á milli fullveldis annars vegar og öryggis og velmegunar hins vegar. Í sífellt óstöðugri heimi sé, að mati Myers, mikilvægara en nokkru sinni fyrr að þjóðir haldi sjálfstæði sínu.
