Spænska lögreglan gerði nýverið húsleit í höfuðstöðvum ráðandi sósíalistaflokks vegna rannsókna varðandi spillingu Santos Cerdán, fyrrverandi ráðherra. Þetta er enn eitt hneykslið fyrir Pedro Sánchez forsætisráðherra, og ríkisstjórnina sem er umvafin ásökunum um mútur og spillingu.
Spillingin er mikil í fjölskyldu Pedro Sánchez forsætisráðherra en eiginkona hans Begoña Gómez, hefur verið í rannsókn síðan í apríl 2024 vegna meintrar valdníðslu og spillingu. Hún er sökuð um að hafa notað afstöðu sína til að hafa áhrif á viðskiptasamninga við ríkisstjórnina.
- Begoña Gómez er sökuð um að hafa skrifað undir meðmælabréf árið 2020 sem hjálpaði kaupsýslumanninum Juan Carlos Barrabés að tryggja opinberan samning að upphæð 7,7 milljónir evra.
- Bróðir Pedro Sánchez, David Sánchez, á yfir höfði sér ákærur sem tengjast földum peningum.
- Verið er að rannsaka fyrrum samgönguráðherra, José Luis Ábalos og ráðgjafa hans, Koldo García, fyrir að tryggja læknasamninga í skiptum fyrir þóknun.
- Santos Cerdán, háttsettur embættismaður sósíalista og náinn bandamaður Sánchez, er flæktur í spillingarmál varðandi opinbera samninga.
„Spænska lögreglan fór inn í höfuðstöðvar ráðandi sósíalistaflokks á föstudag til að afrita tölvupósta Santos Cerdan, fv. embættismann flokksins. Afsögn hans… kom af stað alvarlegri stjórnmálakreppu.
Dómarinn Leopoldo Puente, sem rannsakar ásakanir á hendur Cerdan og fyrrverandi samgönguráðherra, Jose Luis Abalos, fyrirskipaði að flokkurinn léti óeinkennisklædda lögreglumenn fá aðgang að húsnæðinu. “
Lögreglunni var einnig falið að vaka yfir bankareikningum Cerdan og fyrirtækja sem þekkt voru fyrir mútur og fjárhagslega óreiðu. Alls verða 500 bankareikningar athugaðir.