Susan Kokinda hjá Promothean Acction ræðir tvær tilkynningar sem birtust á föstudag (sjá Youtube að neðan): annars vegar færslu Trumps forseta á Truth Social um símtal hans við Vladímír Pútín, þar sem Rússland samþykkti að útvega þegar í stað yfir 300.000 tonn af dísilolíu fyrir bandarískan markað og heimsmarkað, og hins vegar tilkynningu Marcos Rubio utanríkisráðherra um refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum. Hún heldur því fram að hvort tveggja sé liður í baráttu ríkisstjórnarinnar gegn alþjóðahyggjukerfinu, glóbalizmanum, sem varð til eftir stríð og einum af hugmyndasmiðum þess, George Soros. Þetta er seinni hluti greinarinnar, þann fyrri má lesa hér.
3. kafli: Rubio lamar Alþjóðlega sakamáladómstólinn
Sama dag og forsetinn tilkynnti um samninginn um rússneska dísilolíu tilkynnti Marco Rubio refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum. Rubio tók skýrt fram hvert raunverulegt markmið dómstólsins væri. Hann sagði:
„Nú vilja sérfræðingar alþjóðahyggjunnar, sem sitja hinum megin við hafið og skeyta engu um skoðanir ykkar, að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gangi lengra. Þeir vilja sækja kjörna leiðtoga okkar til saka fyrir að tryggja þjóðaröryggi okkar. Þeir vilja meiri völd og vilja öðlast þau á kostnað fullveldis okkar.“
Skotmarkið er fullveldi þjóða. Og það er engin tilviljun. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn varð ekki til að frumkvæði almennra borgara í einhverju landi. Hann spratt úr neti stofnana og samtaka. Open Society-tengslanet Georges Soros var þar í miðjunni. Það þrýsti á um stofnun dómstólsins, fjármagnaði hann og beindi honum að þeim skotmörkum sem tengslanetið vildi.
Eitt þeirra er Vladímír Pútín, sem hefur verið opinbert skotmark Alþjóðlega sakamáladómstólsins frá stofnun hans. Því má sjá að samningurinn sem Trump gerði við hann hefur áhrif á fleiri en einum vettvangi.
Skoðum nú hverjum valdakerfið verðlaunaði einnig í þessari viku. Nóbelsnefndin veitti Navi Pillay friðarverðlaun ársins. Pillay er sprottin úr því alþjóðlega stofnanakerfi sem Soros kom á fót. Hún var dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Síðan varð hún mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna og síðar formaður nefndar á vegum þeirra sem komst að þeirri niðurstöðu að Ísrael hefði framið þjóðarmorð á Gaza. Formaður Nóbelsnefndarinnar sagði þetta um mikilvægi þess að hún hlyti verðlaunin:
„Á tímum þegar við stöndum frammi fyrir áskorunum sem ógna sjálfri tilveru okkar, þar á meðal fleiri stríðum og átökum en heimurinn hefur séð um langt skeið, er þjóðaréttur ekki lengur aðeins viðbót við frið og öryggi. Hann er algjör nauðsyn.“
Stöldrum nú við þetta. Friður og öryggi eru ekki aðalatriðið. Þjóðarétturinn er algjör nauðsyn. Það merkir að það séu stofnanirnar sjálfar, fremur en árangurinn, sem skipti raunverulega máli. Og reynslan sýnir það.
Pillay starfaði sem dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn fyrir Rúanda, sem naut stuðnings Sameinuðu þjóðanna, og var forseti hans í fjögur ár. Stöðvaði það stríðið eða áframhaldandi dráp á hundruðum þúsunda manna? Nei. Hver gerði það? Donald Trump, sem Nóbelsnefndin heldur áfram að hunsa. Forsetinn brást sjálfur við með langri færslu um önnur stríð sem hann hefur bundið enda á. Hann lauk henni svo með þessum orðum:
„Friðarverðlaun Nóbels hafa verið svipt trúverðugleika sínum til frambúðar af fámennum hópi öfgafullra hugmyndafræðinga sem eru andvígir lýðræði og óvinir siðmenningar.“
Þessi barátta gegn óvinum siðmenningar er sú djúpstæðari barátta sem veldur uppnámi meðal alþjóðahyggjumanna og Soros. Hún snertir nefnilega sjálfar hugmyndirnar sem verklag alþjóðahyggjunnar byggist á.
4. kafli: Aþena gegn hinu opna samfélagi
Í þessari viku gaf Trump forseti út yfirlýsingu í tilefni Kólumbusardags og vitnaði þar í orð páfa frá árinu 1892. Flestir flettu fram hjá þessu. En ef yfirlýsingin er lesin samhliða ræðu Marcos Rubio í Aþenu birtist sú hugmynd sem George Soros hefur varið allri ævi sinni í að reyna að grafa undan. Hápunktur ræðu Rubios var þegar hann áréttaði þá klassísku meginhugmynd sem við fengum í arf frá Grikkjum:
„Það er sannfæringin um að hægt sé að öðlast þekkingu á hinu óþekkta. Sú vissa að hægt sé að kanna heiminn, mæla hann, kortleggja og skilja; að í alheiminum ríki skynsamleg skipan sem lúti ákveðnum grundvallarlögmálum – lögmálum sem menn geti greint og mannshugurinn skilið.“
Flestir gera sér ekki grein fyrir því hversu mjög þessi orð stangast á við hugmyndir Karls Popper, læriföður Georges Soros. Soros nam hjá sir Karl Popper við London School of Economics. Hugmynd Soros um hið opna samfélag var sótt í titil einnar af bókum Poppers.
Kjarni heimspeki Poppers var sú hugmynd að enginn sannleikur væri til sem maðurinn gæti staðfest og öðlast þekkingu á. Popper trúði ekki, og Soros trúir ekki, því sem Rubio sagði: að til séu lögmál sem menn geti greint og mannshugurinn skilið. Þetta er kjarni átaka milli heimsveldisskipunar og vestrænnar siðmenningar.
Í heimsveldinu ert þú dýr sem upplifir heiminn en skilur hann aldrei. Þú bregst við út frá skynjun þinni einni saman, á meðan þeir sem telja sig yfir þig hafna stjórna þér, eða yfirþjóðlegar stofnanir á borð við Alþjóðlega sakamáladómstólinn og Alþjóðaviðskiptastofnunina.
En í þeim heimi sem spratt úr klassískri grískri menningu fyrir 2.500 árum skilur maðurinn grundvallarlögmál alheimsins, eins og Rubio sagði, og hagar gerðum sínum samkvæmt þeim. Þetta er meginhugmynd lýðveldisins eins og Platón skildi hana. Þetta er líka meginhugmynd bandaríska lýðveldisins og það sem Donald Trump trúir á.
Í yfirlýsingu sinni í tilefni Kólumbusardags heiðraði forsetinn Kristófer Kólumbus fyrir að hafa flutt með sér auðugar hefðir vestrænnar siðmenningar og rutt brautina fyrir tilurð bandarísku þjóðarinnar tæpum þremur öldum síðar. Síðan vék yfirlýsing forsetans að páfabréfi Leós XIII frá árinu 1892, sem var gefið út í tilefni af því að 400 ár voru liðin frá siglingu Kólumbusar. Þar var vitnað í orð páfans um að Kólumbus hefði leitað að „einhverju meira og æðra“.
Hvar finnur maður þetta „meira og æðra“? Ekki í heimi Karls Popper.
Páfinn hafnaði afstöðu þeirra sem „einskorða allar hugsanir sínar og viðfangsefni við vitnisburð skilningarvitanna“ og neita að leita að nokkru æðra. Þess í stað beindi páfinn sjónum sínum að hinum miklu hugsuðum, sem „leitast þvert á móti yfirleitt við að varðveita æðri hugsjónir, því þeir eru öðrum mönnum fremur færir um að taka við innsæi og innblæstri guðlegrar trúar“.
Þetta er það „meira og æðra“ sem Kólumbus sóttist eftir, sem forsetinn lofaði og Marco Rubio lýsti svo vel. Samningur Bandaríkjanna og Rússlands um dísilolíu braut því þær landpólitísku viðjar sem Soros hafði lagt á samskipti ríkjanna, og refsiaðgerðirnar gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum greiddu lagalegu valdakerfi hans þungt högg.
En raunverulega höggið fólst í því að Bandaríkjaforseti og utanríkisráðherra hans lýstu því yfir að hægt væri að öðlast þekkingu á sannleikanum og að frjálsir menn gætu stjórnað sér sjálfir með hann að leiðarljósi. Þessu getur Soros ekki útrýmt með peningum, refsiaðgerðum eða málaferlum.
Og þess vegna er hann í uppnámi.
Þetta var samantekt laugardagsins. Takk fyrir að horfa.
