Myndin er tekin á mótmælum gegn Spjalleftirlit ESB.
Meirihluti þingsins hafnaði tillögunni en það dugði samt ekki til að fella Spjalleftirlit ESB, CHAT CONTROL
Evrópuþingið hefur samþykkt að framlengja umdeildar reglur sem gera netfyrirtækjum og skilaboðaþjónustum kleift að skanna einkasamskipti notenda eftir áður þekktu efni sem tengist kynferðisofbeldi gegn börnum. Gagnrýnendur telja að reglurnar geti orðið yfirskin fyrir þróun í átt að víðtækara eftirliti með einkasamskiptum borgaranna. Atkvæði féllu 314 gegn 276 og vildi meirihlutinn stöðva framlenginguna, en þar sem krafist var algers meirihluta allra þingmanna (360) fór tillagan engu að síður í gegn.
Um er að ræða tímabundna löggjöf sem jafnan er kölluð „Chat Control 1.0“, en hún var tekin upp árið 2021 og veitir netrisum heimild til að skanna, á frjálsum grundvelli, samskipti notenda eftir áður þekktu efni sem tengist kynferðisofbeldi gegn börnum.
Við atkvæðagreiðsluna höfnuðu 314 þingmenn tillögu ráðherraráðsins, 276 greiddu atkvæði með tillögunni og 17 sátu hjá.
Þrátt fyrir að andstæðingar tillögunnar hefðu þannig verið í meirihluta, þá dugði það ekki til að fella hana. Við aðra meðferð lagasetningarferlisins var krafist 360 atkvæða, eða meirihluta allra þingmanna Evrópuþingsins, til að breyta eða hafna afstöðu ráðherraráðsins.

Þingið samþykkti breytta útgáfu af tillögunni. Ein mikilvægasta breytingin sem þingið knúði fram er að samskipti sem eru varin með fullri enda-til-enda dulkóðun eru undanþegin reglunum. Það þýðir að þjónustur með enda-til-enda dulkóðun, eins og til dæmis Signal og WhatsApp, falla ekki undir þá skönnun sem hér um ræðir.
Önnur breytingartillaga fól í sér að takmarka skönnun við tilvik þar sem fyrir liggur raunverulegur grunur um tiltekinn einstakling, í stað þess að heimila víðtækara, frjálslegt eftirlit með samskiptum.
Sú tillaga hlaut einnig stuðning fleiri þingmanna en greiddu atkvæði gegn henni, en var engu að síður felld þar sem hún náði ekki þeim algera meirihluta sem krafist var.
Gagnrýnendur vara við eftirliti
Ákvörðunin hefur sætt harðri gagnrýni frá talsmönnum um friðhelgi einkalífsins, sem telja að reglurnar opni fyrir eins konar almennu eftirlit með einkasamskiptum fólks. Patrick Breyer, fyrrverandi þingmaður Evrópuþingsins fyrir Pírataflokkinn, hefur lengi gagnrýnt Chat Control og telur rangt að fara yfir skilaboð fólks án einstaklingsbundins gruns eða dómsúrskurðar.
Hann hefur bent á að baráttan gegn kynferðisofbeldi gegn börnum þurfi skilvirk úrræði, en að almenn skönnun geti grafið undan friðhelgi einkalífs án þess að skila nægjanlegum árangri. Talsmenn reglnanna halda því fram á sama tíma að markmiðið sé að berjast gegn dreifingu efnis sem sýnir kynferðisofbeldi gegn börnum og að tæknifyrirtæki þurfi að hafa möguleika á að greina slíkt efni.
Ákvörðunin kemur í kjölfar óvenjulegs pólitísks ferlis. Evrópuþingið hafði áður greitt atkvæði gegn framlengingu tímabundnu reglnanna, en málið kom síðar aftur til meðferðar eftir að ráðherraráð ESB vísaði því aftur til þingsins. Gagnrýnendur hafa dregið ferlið í efa og telja að það hafi takmarkað lýðræðislega umræðu og gert kleift að taka aftur upp tillögu sem áður hafði verið stöðvuð.
„Að Chat Control skuli halda áfram gegn vilja meirihluta þeirra þingmanna sem greiddu atkvæði er farsi og skaðar lýðræðið,“ sagði Breyer við Brussels Signal.
Ef aðildarríki ESB í ráðherraráðinu samþykkja ekki breytingar Evrópuþingsins tekur við svokallað sáttameðferðarferli. Þá þurfa Evrópuþingið og ráðherraráðið að reyna að ná sameiginlegu samkomulagi.
Svíþjóðademókratar berjast gegn eftirliti stóra bróðurs í Brussel
Af sænsku flokkunum á Evrópuþinginu greiddu Móderatar, Kristdemókratar, Sósíaldemókratar og Miðflokkurinn atkvæði með áframhaldandi heimild til skönnunar. Svíþjóðademókratar, Frjálslyndir og Vinstriflokkurinn greiddu atkvæði gegn framlengingu. Umhverfisflokkurinn sat hjá.
Tillaga frá Svíþjóðademókrötum var samþykkt með eins atkvæðis mun. Flokkurinn telur að það geti leitt til sáttameðferðar og enn einnar atkvæðagreiðslu um málið. Í færslu á X minna Svíþjóðademókratar kjósendur á að muna hvernig flokkarnir greiddu atkvæði á ESB-þinginu þegar gengið verður til þingkosninga í Svíþjóð 13. september.
„SD berst gegn eftirlitsríki ESB og við munum aldrei gefast upp!“ skrifar Evrópudeild flokksins, sem Charlie Weimers veitir forystu.

Stærra Chat Control-málið er enn óafgreitt
Atkvæðagreiðslan sem hér um ræðir snýr að tímabundnu úrræði. Á sama tíma halda áfram viðræður um umfangsmeiri varanlega löggjöf, sem oft er kölluð Spjalleftirlit 2.0 „Chat Control 2.0“. Það lagafrumvarp gæti haft mun víðtækari áhrif á það hvernig heimilt verður að hafa eftirlit með stafrænum samskiptum innan ESB og er enn til pólitískrar meðferðar.
