Frúin með sleggjuna ætlaði að slá niður verðbólgu og vexti. En allur krafturinn fer í að veita þjóðinni náðarhöggið að ganga í Evrópusambandið. Núna er eina markmið sleggjunnar að berja þjóðina inn í ESB. ESB er svar við öllum vandamálum á Íslandi. Sérstaklega þeim sem sleggjumenn ríkisstjórnarinnar skapa með afskipta- og aðgerðarleysi í efnahagsmálum og knýr Seðlabankann til að hækka stýrivexti. Sleggjufólkið segist treysta þjóðinni og heimtar „staðreyndir” á borðið. Þær staðreyndir eru innganga Íslands í ESB.
Logið er að þjóðinni að ekkert sé að marka inngöngu landsins í ESB og hægt verði að snúa við þegar snaran er komin um háls hennar eftir aðlögun stjórnlaga að lagabákni ESB og ekkert vantar uppá nema samþykki alþingis og undirskrift forsetans.
Sannleikurinn er sá að verið er að leggja gildru fyrir þjóðina. Hægt verður að lemja þjóðina inn í ESB án þess að nokkur síðari atkvæðagreiðsla verði haldin. Hvað eiga menn að gera þá, þegar Ísland verður orðinn meðlimur í ESB með leifturhraða sleggjunnar og síðan verða alþingiskosningar og ný stjórn kemst til valda?
Þá er það orðið of seint að snúa til baka.
Ólafur Ragnar Grímsson fv. forseti Íslands er hunsaður af ríkisfjölmiðli landsmanna. Hvar eru viðtölin við hann? Útvarpið er keypt af ESB til að halda bara sinni hlið mála að þjóðinni. Fylla miðilinn með halelújasöng um dýrðina í ESB. Svo mikið treysta nú ráðherrar þjóðinni að ríkismiðilinn fær ekki að tala við venjulegt fólk lengur.
Sleggju þarf að mæta með annarri sleggju. Dómi þjóðarinnar.
Vonandi verður neiið svo stórt eftir rúma viku að allar kosningabrellur ráðamanna og svindl í kringum þessar kosningar hverfi í einu höggi.
Þjóðólfur veit að atkvæðagreiðslan verður kærð til landsstjórnar.
Meira um það síðar í dag.
