Vonandi er ástandið ekki orðið svona slæmt á Íslandi. En viðvörunarbjöllurnar hringja. Hér er saga dagsins frá sænskum skóla sem íslenska menntakerfið gerir sér far um að herma eftir: Nokkrir nemendur við skóla í Värmland í Svíþjóð eiga svo erfitt með að skilja einn kennara sinn að núna þarf að fá túlk til aðstoðar við að greina hvað hefur farið úrskeiðis í kennslunni.
Fréttablaðið NWT í Värmland fjallar um málið, sem varðar skóla á gagnfræðaskólastigi. Skólinn er ekki nafngreindur í frétt blaðsins. Foreldrar sem rætt var við lýsa endurteknum samskiptavanda, bæði í kennslustundum og í félagslegum samskiptum. Þeir telja að tungumálamisskilningur torveldi nemendum að tileinka sér námsefnið og óttast að ástandið muni til lengri tíma hafa áhrif á skólagöngu og námsárangur barnanna. Eitt foreldri segir málið afar brýnt.
„Barnið mitt kom heim og sagði að þetta gengi ekki,“ segir foreldri við blaðið.
Samkvæmt fréttinni hafa nokkrir forráðamenn og nemendur reynt að ná sambandi við skólastjórann og sveitarfélagið til að fá málið kannað. Eitt foreldri segir að margir tölvupóstar hafi verið sendir en erfitt hafi reynst að fá viðbrögð frá ábyrgðaraðilum. Áhyggjur foreldra hafi á sama tíma aukist.
„Við erum nokkur sem höfum áhyggjur af þessu. Við reynum að ná sambandi við einhvern og fá einhvern til að gera eitthvað, en fáum ekkert svar. Ég veit að fleiri hafa sent tölvupóst, en það berast engin svör.“
Skólastjórinn viðurkennir vandann
Fyrir nokkrum vikum sendi skólastjórinn skilaboð til viðkomandi nemenda og foreldra þeirra. Þar staðfestir hann að skólanum hafi borist ítrekaðar ábendingar um að kennslan gangi ekki sem skyldi og nefnir sérstaklega sænskukunnáttu kennarans.
„Þið sem fáið þessi skilaboð eigið barn sem er í kennslu hjá kennaranum okkar, NN. Mér hafa borist margar ábendingar um að hvorki þið forráðamenn né nemendur teljið þetta ganga sem skyldi. Fyrst og fremst vegna sænskukunnáttu NN,“ skrifar skólastjórinn.
Skólinn segir að þegar hafi verið rætt við kennarann um vandann og að sérstakur fundur verði haldinn með aðstoð túlks. Markmiðið sé að fá skýrari mynd af því hvar vandinn liggi og hvað þurfi að gera til að bæta ástandið. Skólastjórinn segir jafnframt að frekari stuðningur verði veittur. Sveitarfélaginu beri að tryggja kennurum þann stuðning sem þeir þurfi til að geta sinnt starfi sínu.
„Ég geri mér fulla grein fyrir vandanum og ræði hann við NN. Við höfum einnig bókað fund í þessari viku með túlki til að geta greint almennilega hvar vandinn liggur,“ skrifar skólastjórinn.
Eitt foreldri gagnrýnir að skólinn þurfi að fá túlk til að kanna tungumálavandann og telur þörfina fyrir túlkun í sjálfu sér sýna hversu alvarlegt ástandið sé. Skólastjórinn vill ekki tjá sig um málið í fjölmiðlum og vísar til þess að það varði einstakan starfsmann og friðhelgi einkalífs hans.
