Skattgreiðendur fjármagna óeirðirnar í Los Angeles

Íris Erlingsdóttir fjölmiðlafræðingur sem býr í Bandaríkjunum sendi Þjóðólfi pistil um óeirðirnar í Los Angeles. Hún segir óeirðirnar vel skipulagt ofbeldi sem fjármagnað er af skattgreiðendum og samtökum George Soros sem greiddi meðal annars kommúnistasamtökum yfir sjö milljónir dollara fyrir halda uppi mótmælum gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Óeirðirnar í Los Angeles eru ekki grasrótar-mótmæli, heldur vel fjármögnuð og vel tengd skipulögð ofbeldisstarfsemi

Það eru skattgreiðendur sem fjármagna öfga-vinstrisinna í gegnum fjölda „góðgerðar“samtaka. Stærst þeirra eru Coalition for Humane Immigrant Rights L.A. (CHIRLA) og The Party for Socialism and Liberation (PSLWEB). Aðalforsprakkinn er Angelica Salas, framkvæmdastjóri CHIRLA). Á fjölmiðlafundi sl. föstudag boðaði hún til mótmæla gegn ICE og fjandinn var laus. Sem var ætlunin.

Á nokkrum klukkustundum voru nokkur hundruð „mótmælendur“ orðnir að þúsundum óeirðaseggja, sem (örugglega alveg af tilviljun) voru klæddir í eins stuttermaboli, með fagmannlega prentuð glansskilti.

CHIRLA and vinir þeirra í Sósíalista og frelsisflokknum (Party for Socialism and Liberation (PSL)) eru vel fjármagnaðir, vel tengdir og hafa staðið fyrir skipulögðum „mótmælum“ gegn stjórnmálamönnum – sérstaklega Donald Trump – sem vilja að bandarísk lög um innflytjendur séu virt.

Skattgreiðendur fjármagna þessi samtök og  ofbeldisstarfsemi þeirra

CHIRLA fékk $45 milljónir í opinbera styrki árið 2023, mest frá Kaliforníuríki: $34 milljónir frá California Department of Social Services, the California Arts Council, the Governor’s Office of Emergency Service Department of Homeland Security. Skattfé er notað til að þjálfa grunnskóla- og háskólanema í marxisma og ofbeldi og til að kenna þeim hvernig hjálpa á fólki sem er ólöglega í Bandaríkjunum að brjóta innflytjendalög. Auk skattgreiðenda er George Soros’s Open Society Foundation einn af fjársterkustu stuðningsaðilum CHIRLA.

Indivisible – samtök kommúnista sem standa fyrir anti-Trump mótmælum fengu $7 milljónir frá George Soros Open Society Foundation.

Við munum frelsa Los Angeles

Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley hefur farið fram á rannsókn á starfsemi CHIRLA.

Donald Trump hefur sagt að sum hverfi Los Angeles sé í höndum eiturlyfjaglæpahringja sem breytt hafi hverfunum í sorphaug. Hann sagði á fimmtudaginn:

„Við munum ekki líða að ráðist sé á borg í Bandaríkjunum og hún hertekin af erlendum óvin. Það er það sem þeir eru….Við munum frelsa Los Angeles og gera borgina aftur frjálsa, hreina og örugga.“

Hér að neðan eru nokkra myndir af átökunum:

Fara efst á síðu