Skattfé notað til að fjármagna óeirðirnar í Los Angeles

Í nýjum þætti Ísafoldar upplýsti Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur, um peningagreiðslur ríkisins til einkasamtaka sem þykjast vera „góðgerðastofnanir“ en eru í raun milliliður sem notar fé skattgreiðenda undir fölsku flaggi og borgar atvinnumótmælendum til að efna til óeirða og skemmdarverka og jafnvel vopnaðra átaka í þeim pólitíska tilgangi að koma höggi á Bandaríkjastjórn og forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Íris Erlingsdóttir skrifaði nýverið grein um fjármögnun svo kallaðra „góðgerðastofnana“ sem lifa á opinberum styrkjum en nota svo féð til allt annarra hluta en góðgerðastarfsemi.

Í nýjasta þætti Ísafoldar ræðir hún meðal annars um óeirðirnar í Los Angeles og ber saman misnotkun á opinberu fé við Samtökin 78 á Íslandi en þau virðast fastur og vaxandi liður á fjárlögum ríkisins.

Íris nefndi dæmi frá Los Angeles og sagði:

„Í Los Angeles byrja mótmælin með nokkur hundruð mótmælendum og svo nokkrum klukkutímum síðar, þá eru fleiri þúsund manns úti á götum sem eru allir klæddir í sams konar stutterma boli. Þeir eru með faglega prentuð skilti, allt undirbúið. Það er ekki eins og fólk hafi setið heima og krotað á klósettpappír og límt það á eitthvað skilti og hlaupið út. Þetta er allt vel skipulagt.“

„Josh Hawley er búinn að fara fram á rannsókn á þessu og stærstu samtökin í LA hafa fengið 45 milljónir dollara á síðasta ári af skattfé almennings. Við fjármögnum þennan djöfulgang.“

Íris ber saman stöðu Samtakann 78 á Íslandi og segir fjárframlög ríkisins hafa hækkað úr 6 milljónum ár 2017 upp í tæpar 100 milljónir ár 2024. Síðan nota samtökin féð til að njósna um einstaklinga á samfélagsmiðlum og kæra eins og Pál Vilhjálmsson blaðamann og Eld Smára formann Samtakanna 22 og ofsækja eins og saklausar húsmæður á Norðurlandi sem eru að aðstoða innflytjendur við að aðlagast Íslandi.

Bandaríkjaþing rannsakar misnotkun á opinberu fé

Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley er formaður nefndar Bandaríkjaþings um glæpamennsku og hryðjuverkastarfsemi hefur hafið rannsókn á fjárveitingum til samtaka sem stuðla að innanlandsóeirðum. Meðal annars hefur hann sent Angélicas Salas, framkvæmdastjóra, Sambands mannréttinda innflytjenda bréf þar sem hann krefst gagna um afskipti sambandsins og fjármögnun til óeirða innflytjenda í Los Angeles. Hann segir hvatningu til uppreisnar gegn ríkinu ekki rýmast innan laga um mannréttindi fyrir innflytjendur samanber bréfið hér að neðan:

Greiddu fylkisstjóranum hálfa milljón dollara en fengu 34 milljónir í staðinn

Kevin Kiley bendir á að „góðgerðaraðilinn“ að baki óeirðunum í Los Angeles hafi greitt hálfa milljón dollara í kosningasjóð Newsom fylkisstjóra Kaliforníu. Síðan hafi góðgerðasamtökin fengið 34 milljónir dollara í ríkisstyrk frá Kaliforníu:

Hér að neðan er meira um málið:

Fara efst á síðu