Sjúk tillaga SÞ: Bann við „afneitun á loftslagsbreytingum“

Sameinuðu þjóðirnar ræða áberandi tillögu sem myndi gera það ólöglegt að efast um ráðandi stefnu SÞ í loftslagsmálum. Fjölmiðlar, fyrirtæki og einstaklingar sem eru ósammála loftslagsstefnu Sameinuðu þjóðanna eiga þá á hættu að verða lögsóttir og dæmdir fyrir brot á þessum lögum verði þau samþykkt. Varað er við sögulegri ógn gegn tjáningarfrelsinu.

Sameinuðu þjóðirnar styðja frumkvæði sem vill gera refsivert að miðla upplýsingum sem stangast á við núverandi loftslagsstefnu SÞ. Í nýlegri skýrslu (sjá pdf að neðan) eru stjórnvöld um allan heim hvött til að setja lög gegn „rangfærslum.“ Að sögn The Guardian vekur tillagan spurningar um takmörk frjálsrar umræðu og hlutverk fjölmiðla í frjálsu samfélagi.

Kæra ber fjölmiðla og fyrirtæki

Samkvæmt skýrslu frá Alþjóðanefnd um upplýsingaumhverfið (IPIE) ber að refsa þeim fyrirtækjum sem draga loftslagsstefnuna í efa. Fjölmiðlar og auglýsingafyrirtæki sem flytja slík skilaboð eru skilgreind sem ábyrg. Sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna, Elisa Morgera, vill að ríki „refsi fjölmiðlum og auglýsingastofum“ sem dreifa upplýsingum sem fylgja ekki loftslagsstefnu SÞ.

Gagnrýni á skilvirkni endurnýjanlegrar orku og kostnað við loftslagsbreytingar eða efasemdir um jarðefnaeldsneytislausa stefnu er í hættu að verða flokkuð sem glæpur.

Frumkvæðið var formlega gangsett í loftslagsviðræðum í Bonn, þar sem Brasilía er að safna stuðningi fyrir að halda næstu alþjóða loftslagsráðstefnu COP. Bretland, Frakkland, Chile og Marokkó hafa lýst yfir stuðningi og búist er við að sænsk stjórnvöld styðji tillöguna.

Verður að fjarlægja „rangar upplýsingar“

Dr. Klaus Jensen, fræðimaður við Kaupmannahafnarháskóla og einn af aðalhöfundum skýrslunnar, segir:

„Við verðum að fjarlægja rangar upplýsingar svo að fólk geti kosið rétt.“

Hann beinir spjótum að samfélagsmiðlum, íhaldssömum hugveitum og iðnaðarsamtökum sem ábyrg fyrir að dreifa röngum upplýsingum sem „grafa undan loftslagsstefnunni.“ Jensen telur að núverandi upplýsingaflæði „líkist samsæri“ sem beinist gegn löggjafanum.

Fara efst á síðu