Já sinnum skortir rök fyrir málstaðnum. Það sem þeir eru duglegir í að gera er að kasta lygum og skít á þá sem vilja ekki að Ísland undirgangist valdsvæði Evrópusambandsins. Það nýjasta eru dylgjur og persónulegar árásir Þorvalds Gylfasonar í garð Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins. Morgunblaðið greinir frá þessum dylgjum já-prófessorsins og yfirlýsingu Bauenbacher (sjá hér að neðan). Yfirlýsing Baudenbacher barst mbl.is á ensku sem birtir hana í íslenskri þýðingu:
Yfirlýsing Baudenbacher
„Hinn 26. ágúst 2026 birti netmiðillinn EUobserver í Brussel viðtal við prófessor Þorvald Gylfason, sem ég þekki ekki. Í textanum eru rangar og meiðandi ásakanir um mig. Þorvaldur gaf í skyn að ég hefði unnið fyrir Pútínstjórnina í Moskvu, hefði verið fulltrúi rússnesks ólígarka sem reyndi að komast hjá refsiaðgerðum ESB í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og hefði verið fenginn til Íslands af nei-hliðinni. Þessar ásakanir eru rangar.
Hinn 10. ágúst 2026, að boði prófessoranna við Háskóla Íslands, Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Ragnars Árnasonar, hélt ég opinberan fyrirlestur í Reykjavík um Ísland fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB þann 29. ágúst 2026. Í þeirri ræðu hélt ég því fram að Ísland væri betur sett sem samningsaðili að EES-samningnum í EFTA-stoðinni en sem aðildarríki Evrópusambandsins. Ég hef einnig komið þessu víðar á framfæri í blaðagreinum og hlaðvörpum: að grafa undan EES-samningnum væri skammsýn stefna fyrir ESB, þar sem þetta annað evrópska fyrirkomulag gæti einn daginn reynst gagnlegt til að koma löndum eins og Bretlandi, Sviss eða Tyrklandi í nánara samband við stofnanir ESB.
Það er fyrst og fremst athyglisvert að blaðamaður EUobserver, Soňa Weissová að nafni, gaf mér ekkert tækifæri til að tjá mig fyrir birtingu. Þegar um alvarlegar persónulegar ásakanir er að ræða hefðu góðir blaðamannasiðir krafist þess að haft væri samband við viðkomandi fyrirfram.
Aðstæðurnar tala sínu máli. Fyrirlesara sem tekur óþægilega lagalega og evrópupólitíska afstöðu er ekki mætt með rökum nokkrum dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, heldur er hann ófrægður með ásökunum um meint náin tengsl við Rússland. Herra Gylfason hefur augljóslega sérstakt orðspor á Íslandi. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá úr hvaða hópum slík persónuleg árás kann að vera pólitískt þægileg.
Hinn 26. ágúst 2026 kl. 20:51 að mið-evrópskum tíma sendi ég EUobserver tölvupóst með eftirfarandi efni:
„Andmælaréttur: Svar við röngum fullyrðingum prófessors Þorvaldar Gylfasonar (EUobserver, 26. ágúst 2026)
Í grein sem birt var 26. ágúst 2026 er haft eftir prófessor Þorvaldi Gylfasyni að ég sé „þekktur fyrir að hafa unnið fyrir Pútínstjórnina í Moskvu“, að ég sé „þekktur fyrir að hafa verið fulltrúi rússnesks ólígarka sem reyndi að komast hjá refsiaðgerðum ESB í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu“ og að ég hafi verið „fenginn til Íslands“ af nei-hliðinni. Allar þessar fullyrðingar eru rangar og staðreyndir málsins eru opinberar. Á engum tímapunkti var haft samband við mig til að fá umsögn.
Í fyrsta lagi var nýlegur fyrirlestur minn á Íslandi haldinn að boði prófessoranna Hannesar Gissurarsonar og Ragnars Árnasonar við Háskóla Íslands. Ég þáði boðið án endurgjalds og fékk engin laun; skipuleggjendur greiddu aðeins fyrir ferðakostnað og gistingu.
Í öðru lagi er umrætt umboð ekkert leyndarmál. Það varðar Vélfag ehf., íslenskt fyrirtæki í fiskvinnslutækni sem íslensk stjórnvöld beittu refsiaðgerðum árið 2025 og véfengir nú þær aðgerðir fyrir Eftirlitsstofnun EFTA. Íslenskur lögmaður fyrirtækisins óskaði eftir skipun minni sem lögmanns og utanríkisráðuneyti Íslands samþykkti hana formlega. Hvort aðgerðirnar samræmist EES-rétti er nú til meðferðar hjá þar til bærum stofnunum, þar sem slík mál eiga heima.
Í þriðja lagi er rétturinn til lögmannsaðstoðar, þar með talið í pólitískt viðkvæmum málum, hornsteinn réttarríkisins. Í grundvallarreglum Sameinuðu þjóðanna um hlutverk lögmanna segir að lögmenn skuli ekki vera bendlaðir við skjólstæðinga sína eða málstað þeirra vegna starfa sinna. Réttarkerfi ESB tryggir fyrir sitt leyti einstaklingum og lögaðilum sem sæta refsiaðgerðum aðgang að lögmanni og endurskoðun dómstóla í Lúxemborg. Að túlka nýtingu þessara réttinda sem þjónustu við erlent ríki er ekki röksemdafærsla heldur dylgjur. Að slík fullyrðing sé sett fram þremur dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, gegn lögmanni frekar en gegn rökum hans, talar sínu máli.
Í ljósi þess að þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst, bið ég EUobserver að birta þetta svar og leiðrétta rangfærslurnar innan 24 klukkustunda frá móttöku. Ég áskil mér allan rétt vegna endurtekningar á þessum röngu fullyrðingum.“
EUobserver hefur ekki dregið til baka þessar röngu ásakanir. Ég hef ekki einu sinni fengið svar.
Þar sem atkvæðagreiðslan fer fram eftir tvo daga á íslenska þjóðin rétt á að vita sannleikann svo hún geti kosið með fullri vitneskju. Ég er Morgunblaðinu þakklátur fyrir að samþykkja þennan texta til birtingar með stuttum fyrirvara.“
