SJARÍA – LÖG OG LÍFSSTÍLL ÍSLAMS

Kóraninn og Súnnan (fullkomin fyrirmynd Múhameðs fyrir lífið) eiga að vera leiðarljós alls mannkyns. Vandamálið er að Kóraninum og Súnnunni er ekki raðað þannig að auðvelt sé að túlka þau. Sjaría er lagabundið kerfi sem byggir á túlkun á Kóraninum og Súnnunni.

Eitt af mikilvægusta atriðium varðandi sjaría er að hún er talin vera lög Allah, æðri lögum manna, og að hún eigi að gilda jafnt um kafíra (aðra en múslima) sem múslima. Sem dæmi má nefna kröfur íslamskra samfélaga um breytingar á menningu okkar til að koma til móts við meginreglur hins pólitíska íslams, svo sem þegar múslimskir verkamenn krefjast þess að fá frí til bænahalda. Á meðan á föstu í Ramadan stendur eru gerðar kröfur um að kafírar borði ekki fyrir framan íslamska samstarfsmenn sína. Ein helsta tilslökunin gagnvart sjaría er stofnun sérstakra dómstóla fyrir fjölskyldurétt. Vandamálið er að tilslakanir gagnvart sjaría taka aldrei enda.

Sjaría er oft kölluð lög eða sjaría-lög. Sjaría nær þó yfir mun fleira en lagaleg málefni; hún tekur einnig til guðfræði, bæna, ölmusugjafa og föstu. Það er enginn þáttur lífsins sem sjaría nær ekki yfir. Hún tekur til kynlífs, hvernig skuli heilsa fólki og hvernig eigi að ganga frá erfðaskrám.

Sjaría skiptist í mismunandi skóla sem greinir á um smávægileg atriði. Allir skólarnir eru þó sammála um nauðsyn jihad og óæðri stöðu kristinna manna, gyðinga, trúleysingja og annarra kafíra. Samkvæmt sjaría er kafírum óheimilt að mótmæla eða deila um Kóraninn og Súnnuna eða gagnrýna Múhameð. Sögulega séð er það sjaría sem hefur eytt kristni og öðrum trúarbrögðum.

Heimildir eru sóttar til CSPII Alþjóðlegra miðstöðvar rannsókna á hinu pólitíska íslam

Hér er að finna hlekki í aðrar greinar sem tengjast skóla Þjóðólfs í íslam

1. HIÐ PÓLITÍSKA ÍSLAM5. TVÍHYGGJA9. JIHAD
2. FIMM MEGINREGLUR6. UNDIRGEFNI10. SJARÍA
3. ÞRÍLEIKUR7. KÓRANINN11. DHIMMI
4. KAFÍRAR8. MOHAMMED12. KONUR