„Segðu nöfn fórnarlambanna, Kamala“

Átrúnaðargoð RÚV-rugludallanna í Glæpaleiti, ný-bolsévikinn Kamala Harris, getur ekki sagt nöfn einstakra fórnarlamba sem ólöglegir innflytjendur í Bandaríkjunum hafa drepið. Bara í síðustu viku voru ólöglegir innflytjendur handteknir fyrir að nauðga tveimur konum í New York, nauðga ófrískri konu í Massachusetts ásamt tilraun til nauðgunar á enn einni konu þar. Ólöglegur innflytjandi eftirlýstur fyrir 23 morð var handtekinn í vikunni.

Það er einkenni bolsévismans að spyrða saman alla einstaklinga og ekki ræða um fólk sem einstaklinga. Í Bandaríkjunum birta samtökin Byggjum framtíð Ameríku „Building America’s Future“ nýja mynd þar sem tekin eru fáein dæmi um ódæðisverk ólöglegra innflytjenda. Nöfn fórnarlambanna eru Jocelyn Nungaray, Laken Riley, Joselyn Toaquiza og Rachel Morin.

Boðskapur myndarinnar er hvatning til Kamala Harris að reyna að segja nöfn fórnarlamba í stað þess að reyna að komast í feitara embætti. Sýnt er fram á, hvernig Harris hefur ekki unnið störf sín sem yfirmaður með landamærum Bandaríkjanna. Í stjórnartíð Bidens eru opinberar tölur um að 7, 2 milljónir ólöglegra innflytjenda hafi komið til Bandaríkjanna á þremur árum. Það eru einungis tölur um þá sem vitað er um. Raunverulega talan er miklu hærri og gæti verið álíka stór og íbúafjöldi Svíþjóðar um 11 milljónir í dag.

Kamala hefur gjörsamlega mistekist verkefnið að takast á við landamærakreppuna. Á Youtube myndskeiði neðar á síðunni má sjá, hvernig hún reynir að ljúga sig út úr því að hafa ekki heimsótt suður landamærin og afsakar það með því, að „hún hafi heldur ekki heimsótt Evrópu, ha, ha, ha.“

Sjá má myndskeiðið á X hér að neðan:

Hér má heyra orð Patty Morin, móður Rachel Morin sem ólöglegur innflytjandi myrti, þegar hún var úti að hlaupa nálægt heimili sínu í Maryland:

Fara efst á síðu