Í óbirtu rannsóknarhandriti frá Henry Ford Health kemur fram tölfræðilegt samband milli bólusetninga og meiri tíðni tiltekinna langvinnra sjúkdóma hjá börnum. Samanburðurinn byggðist á sjúkraskrárgögnum 18.468 barna. Henry Ford Health sagði efti að niðurstöðurnar voru ljósar að „alvarlegir aðferðafræðilegir annmarkar kæmu í veg fyrir að draga mætti áreiðanlegar ályktanir af niðurstöðunum.“ Ljóst er að niðurstöðurnar pössuðu ekki við lygaáróður um bóluefnin og þess vegna voru þær ekki birtar.
Í rannsóknarhandritinu Impact of Childhood Vaccination on Short and Long-Term Chronic Health Outcomes in Children: A Birth Cohort Study voru borin saman börn án skráðrar bólusetningar og börn sem höfðu fengið að minnsta kosti eina bólusetningu. Í fyrrnefnda hópnum voru 1.957 börn en í þeim síðarnefnda 16.511. Höfundar handritsins eru Lois Lamerato, Abigail Chatfield, Amy Tang og Marcus Zervos. Þar er lýst tengslum bólusetninga við meðal annars astma, atópískra sjúkdóma, sjálfsofnæmissjúkdóma og taugaþroskaraskanir. Í frásögninni sem hér er vitnað til lýsir ræðumaðurinn rannsókninni og túlkun sinni á niðurstöðunum:
„Árið 2020 fékk ég eintak af rannsókninni. Þar voru birtar niðurstöður greiningar þar sem borin voru saman börn sem höfðu verið skráð hjá Henry Ford frá fæðingu á árunum 2000 til 2016: annars vegar börn sem höfðu ekki fengið neinar bólusetningar og hins vegar börn sem höfðu fengið eina eða fleiri. Rannsóknin byggðist á raunverulegum sjúkraskrám.
Loksins lá því fyrir stór rannsókn þar sem bólusett og óbólusett börn voru borin saman með heilsufarsgögnum frá stórri bandarískri heilbrigðisstofnun — nokkuð sem hafði ekki áður verið til staðar, eins og bandaríska læknavísindastofnunin IOM hafði bent á. Í upphafi rannsóknarinnar var útskýrt að markmiðið væri að draga úr hikandi afstöðu til bólusetninga með því að fullvissa foreldra um að bólusetningaráætlun bandarísku sóttvarnastofnunarinnar CDC væri örugg.
Niðurstöður rannsakendanna voru hins vegar þær að tíðni astma meðal bólusettra barna var 4,29-föld miðað við óbólusett börn, tíðni atópískra sjúkdóma, það er ofnæmistengdra sjúkdóma, 3,03-föld, tíðni sjálfsofnæmissjúkdóma 5,96-föld og tíðni taugaþroskaraskana 5,53-föld. Þar á meðal var tíðni þroskaseinkunar 3,28-föld og tíðni talraskana 4,47-föld. Allar þessar niðurstöður voru tölfræðilega marktækar. Eina raunverulega vandamálið við rannsóknina, og ástæðan fyrir því að hún var ekki send til birtingar, var að niðurstöðurnar samræmdust ekki þeirri sannfæringu og stefnu að bóluefni væru örugg. Hefði hún sýnt að bólusett börn væru heilbrigðari hefði hún án efa verið birt þegar í stað. En vegna þess að hún sýndi hið gagnstæða var henni stungið ofan í skúffu.“
Í yfirlýsingu Henry Ford Health segir að handritið hafi ekki staðist fyrstu innri rýni vegna annmarka á gögnum og aðferðafræði. Stofnunin hafnar jafnframt fullyrðingunni um að niðurstöðunum hafi verið haldið frá birtingu vegna þess að þær væru óþægilegar.
Hér að neðan er dæmi um föður eftir að sjö ára gamall sonur hans fékk hjartabilun eftir sprautuna:
