Samstöðufundur kl 14:00 á Austurvelli laugardaginn 14. júní

Ísland þvert á flokka heldur fund á morgun laugardag kl 14:00 á Austurvelli.

Ræðumenn fundarins eru

Sigfús Aðalsteinsson – Inngangur

Baldur Borgþórsson fv. varaborgarfulltrúi og einkaþjálfari

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður

Ágústa Árnadóttir, lýðræðissinni

Umræðuefni sem fyrr er að gagnrýna stefnu stjórnvalda í málefnum hælisleitenda.

Verður fróðlegt að fylgjast með hvort sú hatursorðræða sem dembdist yfir fundarmenn eftir síðasta fund, þar sem engin óhróðursyrði voru látin ónotuð eins og rasistar, öfgafólk og svo framvegis, verði áfram haldið eða hvort fulltrúar yfirvalda fari nú að reyna að ræða málin í alvöru.

ÁFRAM ÍSLAND!

Fara efst á síðu