Þar kom þá loksins að því að forsætisráðherrann tæki blaðið frá munninum – og talaði lýtalausa amerísku. Enda var viðtalið ekki ætlað íslenskum áheyrendum heldur hugsað sem alþjóðlegt innlegg í persónulegri kosningabaráttu Kristrúnar Frostadóttur fyrir kommissjónersstöðu hjá ESB ef Íslendingar láta plata sig til að kjósa já í ágúst. Það er mikilvægara en áhugamál landans. Hér kynna Davosmenn, SÞ og ESB hinn nýja alþjóðaleiðtoga sem fer fyrir Vestur-Norðrinu og á að bjarga andliti glóbalizmans og ESB. Katrín Jakobsdóttir hefur sett fordæmið, núna komin í vel launaða göbbelsstöðu SÞ sem talsmaður grænu lyganna sem tengja á við alræðisvald WHO í heilbrigðismálum. Íslenska kvennahreyfingin er hertekin af spilltum valdasjúkum femínazistum sem nota Ísland og íslenska ríkið sem stökkpall í eigin framapoti á alþjóðavettvangi.
Fyrrum blaðafulltrú Tony Blair, Alistair Campbell og meðpoddkastari hans, Rory Stewart, undruðust yfir því, hvers vegna Kristrún Frostadóttir talaði ekki með alvöru breskum Manchester hreim eftir skólaveruna þar, áður en hún hóf störf sem bankamær í alþjóðlega fjármálahverfinu Canary Wharf í London. En það var of langt mál að útskýra það – right.
Hágrátandi fólk á götum úti í Brexit-áfalli
Í staðinn minntist Kristrún á hina hræðilegu Brexit áfallareynslu sína, þegar hún varð vitni að því að hágrátandi Bretar flykktust í hópum út á götu vegna þess að meirihlutinn vildi yfirgefa ESB:
„Ég man eftir fólki sem bókstaflega grét úti á götum af áfalli. Það gat einfaldlega ekki trúað niðurstöðunni. Hún var svo langt fyrir utan það sem það hafði gert sér í hugarlund að hún sprengdi allan þeirra hugsunarheim.”
Það sem hefur sprengt hugsunarheim Kristrúnar Frostadóttur er að hún veltist um á milli flokka í leit að metorðum sem hún fann loksins í afgangi Samfylkingarinnar eftir fyrra ESB brölt. Þá grýtti þjóðin Samfylkingunni út í horn sem hímdi þar í klessu eftir Icesave ófarirnar. Þeim leik lauk með því að íslenska þjóðin skoraði eitt mark en ESB og Samfylkingin 0. Frostadóttir hælir sér mjög á alþjóðavettvangi fyrir að hafa reist Samfylkinguna úr öskunni segir dæmi um stórkostlega leiðtogahæfileika sína sem verða ljósið í stjórnmálaeyðimörk ESB. Mun hún frelsa sambandið frá afturhaldsstjórnmálum miðalda og þungum stálstrokleðrum allra möppudýra í Brussel að hætti Jóhönnu af Örk svo nafn hennar verði greypt í mannkynssöguna um aldur og ævi.
Ísland næstum meðlimur í ESB
Ísland er að sögn Kristrúnu Frostadóttur þegar komið 75% í ESB og vegna einstakrar góðsemi hennar og af því að Íslendingar hafa aldrei fengið að kjósa um ESB, þá fá þeir núna að kjósa já til að sjá. Hún upplýsir alheim um að kosningarnar 29. ágúst snúist alls ekki um inngöngu í ESB. Ekki á neinn hátt:
„Þannig að þetta er ekki þjóðaratkvæðagreiðsla um að ganga í Evrópusambandið?
Nei.
Það myndi þá koma síðar ef þið vinnið þessa?
Þetta er þjóðaratkvæðagreiðsla um að ná samningi. Með öðrum orðum: Viljið þið að við opnum viðræður á ný og ljúkum samningaviðræðunum? Þegar við höfum síðan samning í höndunum verður haldin önnur þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem þið segið annað hvort já eða nei.”
Þar sem þetta er ekki þjóðaratkvæðagreiðsla um að ganga í Evrópusambandið en sagt að ljúka eigi samningi sem borinn verður undir atkvæði, þá er það eina sem vitað er um samninginn að hann er ekki um inngöngu Íslands í ESB. Engu er líkar en að hinn nýi alheimsforingi jafnaðarmanna sé ný múhamma og ESB sé Allah og komið verði með nýjan Kóran í stað gömlu versanna. Íslendingar eiga að kjósa já til að sjá múhömmu koma til baka með hina einu forskrift af sannleika lífsins og allir eiga að falla á kné í undirgefni og sverja þess eið að fylgja múhömmu í blíðu og stríðu og drepa alla aðra hugsun en þá sem hún boðar.
Gamli heimurinn er ónýtur
„Við höfum deilt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga í ESB í áratugi. Rökin hafa verið alls konar „hvað ef“ rök. Að þeir muni taka allan fiskinn okkar, eða að við fáum atvinnuleysi, eða að allt verði fjárhagslega öruggt, eða að við verðum fyrir gríðarlegu menningaráfalli. Það hafa verið bæði mjög neikvæðar og mjög jákvæðar ýkjur í umræðunni.”
Foringi jafnaðarmanna þekkir landsmenn betur en nokkur annar að eigin sögn enda hlustar hún mjög á alls konar fólk og leyfir því að finna að á það sé hlustað, að það sé einhvers virði. Í þessum könnunarleiðöngrum hefur hún tekið eftir því að ónýta íslenska krónan er „alltaf efst í huga fólks auk þess að vera hindrun fyrir atvinnulífið”. Íslensk fyrirtæki eru einokunarfyrirtæki á samkeppnislausum markaði sem enginn vill hafa enda nærast þau á verðbólgubáli með því að velta hækkunum út í verðlagið. Þarna hefur hin alþjóðlega stjarna brugðist við með fádæma snerpu sem tekið er eftir langt út fyrir raðir miðstjórnanna í Brussel og Peking enda skattasleggja hennar svo nútímaleg að alþjóðlegir alræðisstjórnendur roðna í einfeldni fyrir að hafa ekki uppgötvað hana sjálfir.
Bankahrunið byrjaði sem tískubóla erlendis en Íslendingar eru duglegir við að gera lítinn hlut að óviðráðanlegri bólu sem að lokum springur. Við fáum að vita að það var Samfylkingin sem bjargaði Íslandi eftir bankahrunið enda orðið Icesave ekki til í kratakóraninum. Landsmenn eru bara nothæfir til að játa því, hvað jafnaðarmenn eru góðir að leyfa því að kjósa já til að sjá opinberunarbókina.
Davíð var svo lengi við völd vegna þess að sumarbústaður ráðherrans var símalaus
Samfélagsfjölmiðlastjarnan frá Ankara slær Newton við með nýrri uppgötvun við myndaskoðun í stjórnarráðinu. Þegar hún virti fyrir sér myndir af fyrri forsætisráðherrum rakst hún á mynd af manni sem hafði verið forsætisráðherra í 13 ár en hún sjálf aðeins í 18 mánuði. Skerpa leiðtogans birtist í fullri dýrð þegar hún komst að því, að Davíð Oddsson var forsætisráðherra svo lengi vegna þess að það var enginn sími í sumarbústað forsætisráðherrans:
“Ég var að ræða þetta við einn sem hafði unnið lengi innan stjórnkerfisins. Hann sagði mér sögu um það hvernig hann hefði í raun aldrei náð almennilega tali af þessum forsætisráðherra. Á sínum tíma starfaði þessi maður sem lögreglumaður. Eitt sinn fór hann að sumarbústað forsætisráðherrans til að færa honum skilaboð, vegna þess að hann var ekki með síma í sumarbústaðnum. Þá rann upp fyrir mér hvers vegna þessi maður gat setið við völd í þrettán ár.”
Bandaríkin óvinur Íslands ásamt öðrum hægri popúlistum í heiminum
„Hvernig bregst sósíaldemókratía við þessum óútreiknanlega hægri-popúlisma í anda Trumps sem einkennir heiminn í dag?” spyr fyrrum áróðursmeistari breska Verkamannaflokksins og hægri hönd Tony Blair.
Hin nýja alþjóðastjarna glóbalizmans hefur þungar áhyggjur af þróun popúlismans í Bandaríkjunum og Evrópu og hefur áður bent á að ástæðan fyrir því að þjóðaratkvæðinu á Íslandi var flýtt um ár er vegna yfirlýsinga Trumps um Grænland. Hún hefur lært vel á námskeiði glóbaliztanna í Davos sem tefla henni núna fram sem helsta vopni sínu til að ná yfirráðum yfir norðvestrinu. Augljóslega mun já á Íslandi ýta undir að Norðmenn gangi inn í ESB og þá fengi ESB fiskimið Íslands og olíu Noregs á einu bretti. Kristrúnu Frostadóttur er lyft upp á sviðið sem eins yngsta forsætisráðherra í heimi sem hefur á ótrúlega skömmum tíma endurreist sósíaldemókratismann á Íslandi og er með aðdáunarverða snerpu, skerpu og sleggju til að berja niður óþæga ESB-andstæðinga á norðurslóðum. Græðgi glóbalizmans þekkir engin mörk og sannleikurinn einskis virði nema um aðdáun á eigin prédikun sé að ræða. Og að sjálfsögðu lýsir nýji alþjóðaleiðtoginn áhyggjum yfir því að Marine Le Pen eða Jordan Bardella gætu orðið forseti Frakklands. Að AfD sækir fram í Þýskalandi. Að til eru Svíþjóðardemókratar, Sannfinnar og að hægripopúlisminn er á uppleið á Norðurlöndum. Síðan er það auðvitað Trump í Bandaríkjunum…. Sannir glóbaliztar nota orðið hægripopúlismi eins og íslamistar orðið villutrúarmenn. Staðreyndir eru fyrir bjána. Sósíalismi fyrir þá gáfuðu og réttsýnu.
Samfélagsmiðlastjarnan frá Ankara sem talar óaðfinnanlega amerísku er holdgervingur fyrir markmið glóbalizmans að ná auðlindunum af Íslandi, Noregi sem og öðrum löndum. Sjálfri lýsir hún sér sem Jóhönnu af Örk sannleikans sem hlustar á litla manninn og réttir fram hjálparhönd. Hún segir heiðarleika vera einn mikilvægasta eiginleika stjórnmálamanna nútímans og að hlusta á fólk. Það má bera saman við heiðarleikann í loforði hennar og Samfylkingarinnar um að ESB-málin yrðu ekki á dagskrá þetta kjörtímabil. Það má bera saman við heiðarleikann í loforði hennar um að ná niður vöxtum og verðbólgu. Hjá Kristrúnu Frostadóttir byrjar sagan ár 2022, þegar hún tók við formennsku í Samfylkingunni með 94,59 prósent greiddra atkvæða. Hún notar Samfylkinguna, Stjórnarráðið og landsmenn til að skapa sér vel launuð atvinnutækifæri á alþjóðavettvangi, því athyglissýki hennar og metorðagirnd verður einungis svalað með því að vera stjarna á myndum með öðrum alvöru alþjóðlegum stjórnmálastjörnum sem ætla að koma á sósíalisma á jörðinni.
Vonandi sér þjóðin gegnum þennan farsa og stöðvar hertöku á sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar með því að kjósa nei í ágúst.
