Í stjórnmálaályktun milliþings Sambands ungra sjálfstæðismanna á Eskifirði September 2026 segir að meirihluti Íslendinga hafi hafnað óvissuferð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur til Brussel í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Segja ungir Sjálfstæðismenn að við blasi að fenginni þeirri niðurstöðu að takast af ábyrgð á við stöðuna í efnahagsmálum:
„Ríkisstjórnin virðist hins vegar ekki hafa vilja til þess og hafa allar aðgerðir hennar hingað til aðeins aukið verðbólgu og þar með kallað fram vaxtahækkanir.“
Ríkisstjórnarflokkarnir guldu afhroð í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Í kjölfarið klauf ríkisstjórnin þjóðina í herðar niður í ESB-málinu og nú boðar hún umfangsmestu skattahækkanir á Íslandi síðan Jóhönnustjórnin var og hét.
„Margumtöluð sleggja forsætisráðherra hefur afhjúpað hversu innihaldslaus verkfærakista ríkisstjórnarinnar er. Sleggjunni hefur verið beitt á ungt fólk, heimilin og atvinnulífið, en hvorki á vexti né verðbólgu. Erindi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er að þrotum komið.“
„SUS skorar því á ríkisstjórnina að blása til þingkosninga og gefa landsmönnum kost á að fela nýju fólki það verkefni að endurreisa traust á stjórn efnahagsmála og ná niður vöxtum og verðbólgu. SUS telur einsýnt að í næstu þingkosningum eigi Sjálfstæðisflokkurinn að leggja höfuðáherslu á að létta byrðar heimilanna með því að vinda ofan af skattahækkunum sitjandi ríkisstjórnar, taka útlendingamálin föstum tökum og ráðast að rót vandans á húsnæðismarkaði: gjaldheimtu, regluverki og opinberum hindrunum sem standa í vegi fyrir auknu framboði húsnæðis.
Samband ungra sjálfstæðismanna vill frjálst samfélag þar sem einstaklingurinn ræður för, ekki ríkisvaldið. Við trúum því að framtíð Íslands byggist á frelsi, ábyrgð og frumkvæði einstaklingsins, ekki miðstýringu og sívaxandi ríkisumsvifum.“
„Fullveldinu megum við aldrei afsala okkur. Við eigum að skila landinu betra en við tókum við því.“
– Bjarni Benediktsson eldri.
Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan:
