Sænska ríkisstjórnin lánar 300 milljarða sænskra króna til vígbúnaðar – annars verða börnin að læra rússnesku

Ríkisstjórnin útskýrir gífurlegar lánafjárfestingar sínar í varnarmálum með Rússagrýlunni.

Allir flokkar á sænska þinginu styðja vígbúnaðaráform ríkisstjórnar upp á 300 milljarða sænskra króna sem taka á að láni. Ríkisstjórnin skrifar í fréttatilkynningu:

„Lánafjármögnunin gæti leitt til skuldaaukningu um allt að 300 milljarða króna.“

250 milljarðar króna munu fara í hernaðarvarnir og 50 milljarðar í borgaralegar varnir.

Fjármálaráðherra Svíþjóðar Elisabeth Svantesson sagði á blaðamannafundi á fimmtudag:

„Við ætlum að vernda landið okkar og einnig byggja upp varnargetu með öðrum. Og í grundvallaratriðum, til að segja það skýrt, þá snýst þetta líka um að börn okkar og barnabörn þurfi ekki að læra að tala rússnesku.“

Að sögn varnarmálaráðherrans Pål Jonson er markmiðið að gera Svíþjóð öruggari:

„Þessi samningur ryður brautina fyrir sögulegri endurvopnun varnarmála sem gerir Svíþjóð og Nató öruggari. Nú verða allir sem að málinu koma, ríkisstjórnin, varnarmálayfiröld og aðilar í almannavörnum, að gera sitt ítrasta til að flýta fyrir endurvopnun á næstu árum.“

Fara efst á síðu