Lögreglan í Svíþjóð mun bráðlega geta fylgst með almenningi með andlitsgreiningu og gervigreind – í rauntíma. Taka á þúsundir eftirlitsmyndavélar í notkun fyrir árið 2027.
Gunnar Strömmer, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, segir ný lög á leiðinni svo hægt verði að hefjast handa fljótlega við innleiðingu kínverska kúgunarkerfisins. Lögreglan getur byrjað að notast við andlitsgreiningar í rauntíma frá og með 1. janúar 2026 samkvæmt minnisblaði sem ríkisstjórnin hefur nýlega sent til samráðs.
Yfirvöld segja ofbeldisglæpi vera kerfisógn í Svíþjóð með öllum skotárásum og sprengingum. Sagt er að eftirlitsmyndavélar með andlitsgreiningu sé lögreglunni nauðsynlegt verkfæri til að koma í veg fyrir glæpi á skilvirkan hátt.
Samkvæmt Strömmer er mikilvægt að lögreglan geti fylgst með öllum með myndavélum sem nota andlitsgreiningu og gervigreind í rauntíma til að vernda almenning. Lögreglan getur þá fundið eða borið kennsl á einstaklinga sem hún er fað eltast við. Gunnar Strömmer ber fyrir sig getuleysi yfirvalda í baráttunni gegn glæpamönnum sem ástæðu til eftirlitskerfisins og segir í viðtali við sænska sjónvarpið:
„Þetta er mikilvægt vegna þess að við sjáum að glæpamenn eru svo duglegir að nota nýja tækni og þá verðum við að tryggja að góðu öflin í samfélaginu geti líka gert það.“
Sænski dómsmálaráðherrann hefur engar áhyggjur af skerðingu persónuverndar en telur að að þessi njósnatæki séu nauðsynleg í Svíþjóð nútímans. Verið er að auka fjölda eftirlitsmyndavéla og stefnt að því að hafa 5.000 myndavélar í notkun um allt land fyrir lok árs 2027.