Á fimmtudag birti sænska ríkisstjórnin ný gögn (sjá pdf að neðan) með korti af 180 svo kölluðum aðskildum svæðum í Svíþjóð eða innflytjendahverfum. Alls búa yfir 700.000 manns á þessum svæðum – þar af eru yfir 170.000 börn.
Gögnin voru unnin af Hagstofunni í Svíþjóð, SCB, og Húsnæðismálastofnun fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þau sýna mynd af svæðum sem einkennast af lélegum skólaárangri, miklu atvinnuleysi, bótaskyldu, glæpum, þröngbýli íbúa og lélegri kosningaþátttöku.
Það eru þessir þættir sem skilgreina að mati stjórnvalda þau svæði sem einkennast af aðskilnaði. Svæðin má finna í gagnvirku korti á heimasíðu hagstofunnar.
Samkvæmt gögnunum eru aðskildu svæðin í 66 sveitarfélögum í Svíþjóð. Yfirlýst markmið með samantektinni er til að „skipuleggja, hanna og framkvæma aðgerðir“ til að draga úr vandamálunum.
Vandamál er að fá kennara og starfsfólk félagsþjónustu til starfa á þessum svæðum sem einkennast af vonleysi og miklum glæpum. Meiningin er að sveitarfélög og önnur yfirvöld geti borið saman vandamál á milli ólíkra svæða og greint þau til þessa verða betur í stakk búin að takast á við þau.
Ríkisstjórnin lýsir frumkvæðinu sem skrefi í þá átt að „eyða aðskilnaði“ – en engin bein aðgerðaáætlun var kynnt með gögnunum.