Með því að láta innflytjendur fara á námskeið í „frjálslyndum gildum“ er hægt að fá þá til að hætta að nauðga. Það segir innflytjendaráðherra Svíþjóðar, Mats Persson, í samtali við Expressen.
Samkvæmt nýrri rannsókn háskólans í Lundi eru 63% allra þeirra sem dæmdir hafa verið fyrir nauðgun á árunum 2000-2020 fæddir erlendis eða eiga foreldra sem fæddir eru erlendis. Mats Persson innflytjendaráðherra tilkynnir að yfirvöld grípi til „öflugra aðgerða til að vinna gegn þessari þróun.“ Skylda á nýja innflytjendur að fara á námskeið og læra sænska siði. Person segir:
„Við þurfum að takast á við kvíðann í Svíþjóð og gera okkur grein fyrir því að gildi gegna miklu hlutverki.“
Mats Persson nefnir „feðraveldi“ og aðra afstöðu til jafnréttis kynjanna en gilda í Svíþjóð sem ástæður fyrir hlutfalli innflytjenda í nauðgunartölum. Persson krefst harðari refsinga og skýrari leiðbeininga til nýinnfluttra um það sem gildir í Svíþjóð. Hann segir:
„Við viljum að fræðslan fjalli í miklu meira mæli um frjálslynd gildi, kvenréttindi, málefni heiðursofbeldis og auðvitað líka málefni í kringum kynhneigð. Við ætlum ekki aðeins að upplýsa heldur einnig tryggja með prófi að fólk skilji hvað það er sem gildir í okkar landi.“
Til að fá varanlegt dvalarleyfi í framtíðinni þarf núna að sýna fram á að viðkomandi kunni sænsku og styðji „frjálslynd gildi.“
Í tölum rannsóknar frá 2021 sýndi það sig að af þeim sem eru fæddir erlendis, þá komu 34,5% frá Mið-Austurlöndum eða Norður-Afríku, 19,1% frá Afríku og 15% frá Austur-Evrópu.