„Rússneskir kafbátar“ voru hvalur að leysa vind

Greinilega gerir Rússafóbían sem svo kallaðir jafnaðarmenn eru duglegastir við að hrína yfir, vart við sig hvar sem er í Evrópu. Margir muna eftir eilífum eltingarleik sænska sjóhersins við „rússneska kafbáta“ í sænska skerjagarðinum sem aldrei fundust. Nýlega var breski sjóherinn í viðbragðsstöðu, þegar háþróaður sónar greindi óþekkt hljóð í sjónum undan strönd Skotlands. En í stað þess að vera rússneskir njósnakafbátar að miða sprengjum á breska kafbáta kom í ljós að dularfullu hljóðin komu frá hval sem var að leysa vind.

Tvö aðskilin hljóð voru tekin upp nálægt kafbáta- og kjarnorkuvopnastöð Breta í Skotlandi.

Breski sjóherinn var að farast á taugum yfir því, að í gangi væru rússneskar neðansjávarnjósnir með sjálfstýrðum kafbátum Rússahers sem væru að kortleggja hljóðeinkenni breskra kafbáta.

En eftir nánari skilgreiningu komust sérfræðingarnir að þeirri vandræðalegu niðurstöðu að hljóðin komu frá prumpandi hval. Talsmaður breska hersins staðfestir í viðtali við The Sun:

„Við höfum skilgreint hljóðin og teljum núna að þetta sé sjávarspendýr, hvalur.“

Jafnvel þó að þetta hafi bara verið prumpandi hvalur að þessu sinni, þá tekur breski sjóherinn enga áhættu. Heimildarmaður The Sun úr varnarmálaráðuneytinu segir:

„Við verðum alltaf að gera ráð fyrir því versta.“

Það var og…Kannski er taugaveiklunin orðin slík að það þarf ekki meira en einn hval sem prumpar hressilega til að hleypa kjarnorkustríði af stað?

Fara efst á síðu