Rússneska sendiráðið sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna afstöðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands, sem sagði spurð um afstöðu til skrifa framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins um að Frakkland ætti að skjóta kjarnorkusprengjum á Rússland, að tilvitnun Ólafs Ragnars Grímssonar í Lavrov utanríkisráðherra Rússlands væri margfalt verri. Við sem þekkjum Þorgerði Katrínu vitum að hún gerir lítið annað en að skaða hagsmuni Íslands… í nafni Íslands. Þjóðólfur mun birta grein Lavrovs síðar svo lesendur geti sjálfir metið hversu hættulegri afstaða hans er en sturlaðs framkvæmdastjóra eins valkyrjuflokkanna. Hér er tilkynning Rússanna:
Russian Embassy in Reykjavik
Tisdag 3 november 2026 kl.00:17
„
Sendiráðið hefur tekið eftir ummælum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra Íslands í umræðum í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi þann 2. nóvember 2026, sem birtar voru í RÚV (https://www.ruv.is/…/2026-11-02-tist-lavrovs-alvarlegra…) og á vefsíðu „Morgunblaðsins“ (https://www.mbl.is/…/segir_ummaeli_heimis_mas_ekki…/). Ummælin voru við orð Heimis Más Péturssonar framkvæmdastjóra og upplýsningarfulltrúa þingflokks Flokks fólksins, sem situr í ríkisstjórn Íslands, sem hann lét falla varðandi færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta á samfélagsmiðlinum „X“.
Til áminningar: Heimir Már Pétursson hefur áður kallað á Emmanuel Macron að „hætta að tala og senda herlið til að berjast fyrir Úkraínu og Evrópu, og undirbúa kjarnorkusprengjur til tafarlausrar árásar“ (https://www.mbl.is/…/heimir_mar_hvatti_macron_til_ad…/).
Í þessu sambandi er sendiráðið afar undrandi að heyra ráðherrann halda því fram, að í þessu samhengi sé það mun alvarlegra að ónafngreindur „fyrrverandi leiðtogi landsins“ hefði deilt grein eftir Sergey Lavrovs utanríkisráðherra Rússlands „Alþjóðlegt samstarf á norðurslóðum: áskoranir og tækifæri“ (https://mid.ru/ru/foreign_policy/briks/2136949/?lang=en) á samfélagsmiðlinum „X“.
Því miður verður maður að gera sér ljóst þá staðreynd, að samkvæmt rökhyggju Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur virðist deiling á grein rússnesks starfsbróður hennar og kynning á efni greinarinnar vera meira ógn en yfirlýsingar hins háttsetta embættismanns innan stjórnarflokksins, sem ótvírætt kallar eftir kjarnorkuvopnastigmögnun í Evrópu.
Hins vegar er einnig nokkur ástæða til varlegrar bjartsýni: utanríkisráðherrann hefur þó staðfest, að íslenska ríkisstjórnin ótvírætt styðji kjarnorkuvopnaafvopnun.”
Kurteisari en bréf sendiráðsins er vart hægt að vera. Þar er Þorgerði meira að segja gefinn sá möguleiki, að hún meini nú kannski eitthvað með orðum sínum um kjarnorkuafvopnun.
Við sem þekkjum starfsstíl kúlulánadrottningarinnar sem plataði hluta Sjálfstæðisflokksins með sér yfir í Viðreisn, vitum að hana skortir bæði haldbæra vitræna dómgreind og skipulagsgáfu framkvæmda til að hægt sé að taka nokkuð mark á henni varðandi stjórnmál yfirleitt og þá utanríkismálin sérstaklega. Hún byrjaði á því að fljúga til Brussel eftir að hún komst til valda í valkyrjustjórninni – verstu stjórn Íslands frá stofnun lýðveldisins – til þess að fá ESB-sprautu beint í æð. Eftir það er hún eitt ömurlegasta bergmál klikkuðu kerlinganna í framkvæmdastjórninni sem allar eru á sterum fyrir vopnaframleiðendur og djúpríki þeirra á Vesturlöndum.
Þorgerður Katrín er sú manntegund sem almannarómur telur að selji ömmu sína fyrir fimmaur. Ólafur Ragnar Grímsson bendir réttilega á að málflutningur hennar sé á svo lágu plani að ekki sé takandi neitt mark á honum. Sjálf geiflar utanríkisráðherrann sér í samfélagsmiðlum með fjölskyldunni til að velta sér upp úr athyglinni sem götustelpa.
Hún og valkyrjusystur hennar eru að steypa Íslandi í gröfina. Hætt er við að almenningur á Íslandi muni þá ekki geta sýnt sömu kurteisi og rússneska sendiráðið í Reykjavík gerir í hennar garð eftir enn ein skaðlegu ummæli hennar á alþjóðavettvangi.
