Enginn var til staðar til að mæta Rubio þegar hann kom til Höfða.
Eftir ósigur sinn í ESB-kosningunum reyna valkyrjurnar að pússa ímynd sína gagnvart Bandaríkjunum en tekst það misvel eins og sást skýrlega í heimsókn Marco Rubio. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, nýlega til Íslands. Í opinberri móttöku á Höfða var enginn fulltrúi Íslands tilbúinn að taka á móti Rupio þegar hann kom, heldur var hann látinn standa fyrir neðan tröppurnar og bíða, þar til Valkyrju númer eitt þóknaðist að koma út og ganga til móts við hann. Valkyrjurnar notuðu forseta Bandaríkjanna til að reyna að hræða Íslendinga til undirgefni við ESB, sem mistókst sem betur fer. ESB-þríkrækjan Þorgerður Katrín pönkaðist á sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi fyrir fánamynd Bandaríkjaforseta, allt til að votta undirgefni Íslands til Brussel. Ekki skrýtið að Trump-hatari New York Times reyndi að gera veður úr því á blaðamannafundi utanríkisráðherranna í Reykjavík. Rupio viftaði burtu teiknimynd á samfélagsmiðlum en Þorgerður gat ekki á sér setið að ræða aðeins um málið.
Á þessum blaðamannafundi virtist Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, vera að taka próf í munnlegri ræðuræpulist frá Brussel. Eins og forstokkuðum búrókrötum er einum lagið blaðraði hún í endalausri orðræpu út og suður og samhengislaust, þannig að sem áheyrandi spurði maður sig, hvort hún skildi sjálf nokkuð af því sem hún talaði um. Hún er að minnsta kosti þrjátíu árum á eftir ítölskum evrudýrkendum sem féllu á kné undir forystu fjármálaráðherra Ítalíu þess tíma og tæmdu öll orð ítölsku orðabókarinnar um dásemd evrunnar áður en hún var innleidd þar í landi um síðustu aldamót.
Með pínlegum endalausum orðavaðli til að þykjast merkileg, alla vega fyrir sjálfri sér, þá lét íslenski utanríkisráðherrann þann bandaríska standa eins og skólastrák sem beið eftir því að fröken kennari leyfði honum að segja nokkur orð. Öll framkoma Þorgerðar var leikrit sem sýndi að eiginlega mætti nú bandaríski utanríkisráðherrann þakka fyrir það að hafa fengið áheyrn á Íslandi. Hvílík niðurlæging fyrir Ísland að koma fram á jafn óvirðulegan hátt gagnvart traustasta bandamanni sínum vegna fordóma Valkyrjustjórnarinnar.
Vonandi tekst Bandaríkjamönnum og Íslendingum að ná saman, þrátt fyrir Valkyrjurnar og popúlisma íslensku ríkisstjórnarinnar og spyrna sameiginlega gagnvart þessum sósíalísku alræðisöflum sem drepa allt frumkvæði, einstaklingsréttindi og sköpunargáfu hvar sem hönd verður við komið. Gott fólk bæði hjá bandarískum stjórnvöldum, frumkvöðlar og fjárfestar, mun vinna góð störf í samvinnu við gott fólk á Íslandi, frumkvöðla og fyrirtæki. Samstarfið finnst og mega valkyrjurnar fara í skammarkrókinn fyrir glóbalízkan ESB-áróður gegn Íslandi og Bandaríkjunum.

