Það var sérstaklega áhugavert og fróðlegt að hlusta á þá Bjarna Benediktsson formann atvinnurekenda og Vilhjálm Birgisson verkalýðsforingja ræða saman um ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar. Umsjónarmaður þáttarins var Andrés Magnússon blaðamaður Mbl. sem tókst að halda utan um einhverja álitlegustu efnahagsumræðu í þjóðmálunum í seinni tíð. Það sem var svo ánægjulega eftirtektarvert, var hversu sammála þeir Bjarni og Vilhjálmur voru í skilgreiningu sinni á vandanum.
Vissulega eru mótsetningar á sviði útfærslu en raunverulegur vilji til að ná niður verðbólgunni og lækka vexti leyndi sér ekki. Grundvöllurinn er framleiðslugeta fyrirtækjanna og sala, þaðan koma launin og þótt Bjarni minntist á að kaupgeta almennings á Íslandi væri með þeim hærri í samanburði við mörg önnur sambærileg lönd, þá er ekki víst að barnafjölskyldur með íþyngjandi húsnæðislán séu endilega sammála því.
Það bætir svo ekki úr skák að við völd er ein fjandsamlegasta ríkisstjórn gagnvart almenningi og fyrirtækjum í landinu síðan fyrsta hreina vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var við völd. Botnlaust hatur valkyrjanna á að frumkvöðlar fái að njóta erfiðis eins og árásir á sjávarútveg og aðra atvinnuvegi sýnir að stefna stjórnarinnar er að koma á hreinræktuðum sósíalisma á Íslandi. Ríkisbúskapur ofar öllu er mottó valkyrjanna, þótt það heiti að sjálfsögðu eitthvað allt annað í þeirra munni.
Þetta hatur slær beint út yfir almenning sem fær líka óþvegnar krumlur ríkisvaldsins í budduna með kílametragjöldum og alls kyns öðrum skattahækkunum. Þessu mun alls ekki linna hjá þessari ríkisstjórn, skattahækkanir munu halda áfram, verðbólga mun aukast og vextir hækka enn frekar. Valkyrjurnar munu kenna Donald Trump og Pútín um getuleysi sitt til að leysa vandann, ausa má endalaust í stríðið í Úkraínu, hleypa má endalaust inn fólki sem kemur í þeim eina tilgangi að lifa áhyggjulausu lífi á kostnað íslenskrar alþýðu. En við völdum Samfylkingarinnar og Viðreisnar má ekki hrófla.
Þess vegna er það gott mál að almenningur fari að láta í sér heyra á Austurvelli og krefjist nýrra þingkosninga.
Eins og Bjarni og Vilhjálmur bentu á og kom síðar einnig fram í afstöðu landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga, að almennum gjaldskrárhækkunum verði haldið innan 2.5% á næsta ári, þá er einstök samstaða um það hjá þessum mikilvægustu aðilum vinnumarkaðarins að vinna saman og taka ábyrgð í sameiginlegu átaki á þjóðarvísu til að ná tökum á efnahag landsins.
Eftir situr ríkið og vissir forréttindahópar til dæmis þingmenn sem ekki sætta sig við sömu launahækkanir og láglaunafólk og ákveða sífellt hærri laun í eigin vasa. Boltinn er hjá ríkisstjórninni en með sósíalískri afstöðu valkyrjanna um að peningar vaxi á trjám og það sé bara að hækka skatta til að leysa öll vandamál, þá mun ríkisstjórnin sparka sprunginni blöðru framan í landsmenn með nýjum verðhækkunum og sköttum.
Eina leiðin til að þjóðin geti lagt sitt að mörkum til slíkrar þjóðarsamstöðu er að ríkisstjórnin víki og fólk kjósi nýja stjórn sem skilur hvað forsvarsmenn fyrirtækja og verkalýðsfélaga eru að segja.
Á morgun er útifundur á Austurvelli klukkan 13.00. Vonandi fyllist völlurinn og allt í lagi að fari að heyrast í pottum og pönnum aftur.
