Réttarkerfið sem pólitískt vopn í Brasilíu

Alexandre de Moraes hæstaréttardómari til vinstri og Lula da Silva forseti Brasilíu til hægri.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er öflugur þátttakandi í umræðunni um heimsmálin. Hér skrifar hann grein í The Conservative um svindl og vélráð sósíalista í Brasilíu. Sem kunnugt er var Lula da Silva hleypt úr fangelsi fyrir tilstuðlan hæstaréttardómarans Alexandre de Moraes og gat þar með tekið þátt í forsetakjöri sem annars hefði ekki orðið. Allt þetta mál er umvafið djúpri spillingu og ofsóknum gegn stjórnarandstæðingum, aðallega Jair Bolsonaro fyrrverandi forseta Brasilíu.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar:

Þann 21. september 2026 skrifuðu þrír Evrópuþingmenn, Adam Bielan, Mariusz Kamiński og Carlo Fidanza, Kaju Kallas, utanríkis- og öryggismálastjóra Evrópusambandsins. Þeir lýstu áhyggjum af því að dómskerfinu í Brasilíu virtist beitt gegn pólitískum andstæðingum stjórnvalda og að spilling kynni að þrífast innan hæstaréttar landsins. Þingmennirnir þrír vöktu sérstaklega athygli á athöfnum Alexandre de Moraes, hæstaréttardómara sem almennt er talinn dyggur bandamaður núverandi forseta Brasilíu, Lula da Silva.

Moraes felldi úr gildi sakfellingu Lula

Lula, leiðtogi Verkamannaflokksins, sem er langt til vinstri í stjórnmálum, og forseti Brasilíu frá 2003 til 2011, var sakfelldur fyrir spillingu og peningaþvætti árið 2017. Honum var því meinað að bjóða sig fram í forsetakosningunum 2018, sem hinn óhefðbundni hægrimaður Jair Bolsonaro vann. Bolsonaro er fyrrverandi herforingi, þekktur fyrir að tala tæpitungulaust, þótt honum sé stundum mislagðar hendur í orðavali. Lula var aftur sakfelldur árin 2018 og 2019 og sat í fangelsi í meira en ár. Augljósasta ákæran á hendur honum laut að því að hann hefði þegið mútur í formi kostnaðarsamra endurbóta á strandhúsi sínu gegn ábatasömum verksamningum við ríkið. Árið 2021 var Moraes meðal þeirra hæstaréttardómara sem felldu sakfellingu Lula úr gildi vegna formsatriðis í málsmeðferð: málið hefði ekki verið rekið fyrir dómstóli á réttum stað. Svo hentuglega vildi til að dómararnir biðu þar til fyrning kom í veg fyrir að hægt væri að rétta yfir honum á ný.

Moraes reyndi að þagga niður í gagnrýnendum Lula

Lula gat því boðið sig fram gegn Bolsonaro árið 2022. Í kosningabaráttunni reyndi Moraes, sem forseti yfirkjördómstólsins, að þagga niður í gagnrýnendum Lula undir því yfirskini að verið væri að stemma stigu við „falsfréttum“. Þegar Brasilíumenn á samfélagsmiðlum neituðu að hlýða beindi Moraes spjótum sínum að samfélagsmiðlunum sjálfum. Það leiddi til átaka við Elon Musk, eiganda X, sem upplýsti að Moraes hefði fyrirskipað lokun reikninga áberandi þingmanna og blaðamanna. Bandaríski blaðamaðurinn Glenn Greenwald, sem er búsettur í Brasilíu, hefur ítarlega fært sönnur á valdníðslu Moraes.

Lula sigraði Bolsonaro naumlega, með 50,9 prósentum atkvæða gegn 49,1 prósenti. Eftir kosningarnar var gögnum frá fólki nákomnu Bolsonaro lekið til fjölmiðla. Þau sýndu að sumir þessara einstaklinga höfðu rætt valdarán hersins og að einn þeirra hefði jafnvel nefnt að ráða Moraes af dögum. Í öðrum löndum hefði það þýtt að Moraes viki sæti í málinu. Engin tengsl hafa hins vegar verið staðfest milli þessa makks og hinna vítaverðu óeirða í höfuðborg Brasilíu, Brasilíu, 8. janúar 2023, þegar skemmdarvargar réðust á aðsetur hæstaréttar. Bolsonaro var þá staddur í Bandaríkjunum.

Moraes sakfelldi Bolsonaro á veikum sönnunargögnum

Moraes stýrði rannsókninni á óeirðunum. Þótt ekkert tengdi Bolsonaro beint við þær sakfelldu hann og þrír aðrir dómarar, allir stuðningsmenn Lula, Bolsonaro í september 2025 fyrir að hafa lagt á ráðin um valdarán hersins. Þeir dæmdu hinn sjötuga fyrrverandi forseta í 27 ára fangelsi. Einn dómaranna, Luiz Fux, skilaði 452 blaðsíðna sératkvæði. Þar hélt hann því fram að dómstólinn skorti lögsögu, að engar haldbærar sannanir væru fyrir virkri þátttöku Bolsonaro í ómótuðum áformum annarra og að ákæruvaldið hefði kaffært málið í 70 terabætum af að mestu óviðkomandi og óskipulögðum gögnum, þar á meðal 225 milljónum skilaboða.

Náin tengsl Moraes við svikahrapp

Bolsonaro er meinað að bjóða sig fram í kosningunum 2026 og því býður sonur hans, Flávio, sig fram gegn Lula í hans stað. Framboð hans varð tímabundið fyrir áfalli þegar upplýst var að hann hefði beðið fjármálamanninn Daniel Vorcaro, sem nú er rúinn trausti eftir fall Master-bankans, um fjárframlag til heimildarmyndar um föður sinn. Önnur uppljóstrun hefur þó reynst mun afdrifaríkari. Eiginkona Moraes, Viviene Barci de Moraes, sem sést á myndinni hér að ofan ásamt eiginmanni sínum og Lula, hafði gert þriggja ára samning við Master-banka Vorcaro um lögfræðiráðgjöf fyrir 25 milljónir Bandaríkjadala. Þá sýna skilaboð sem lekið hefur verið að Vorcaro spurði Moraes, skömmu áður en hann var handtekinn, hvort hann ætti að flýja Brasilíu. Þessi skilaboð benda til mun nánari tengsla Moraes og Vorcaro en áður var vitað um. Áhyggjurnar sem Evrópuþingmennirnir þrír lýstu í bréfi sínu til utanríkis- og öryggismálastjóra ESB virðast því eiga við rök að styðjast.